Vera - 01.08.2001, Page 59
Dœmisaga úr raunveruleikanum
Vilborg fékk draumastarfið sem sölumaður í heiidsölu
fyrir tæpum 3 árum og átti í fyrstu gott samstarf við for-
stjóra, framkvæmdastjóra og sölustjóra fyrirtækisins.
Síðastliðið ár fór hins vegar að bera á samstarfsörðug-
leikum milli stjórnenda og urðu ákvarðanatökur þeirra
misvísandi í kjölfarið. Tillögur Vilborgar í sölumálum
voru algerlega hundsaðar og í raun unnið þvert gegn
þeim með neikvæðum afleiðingum fyrir viðskiptavini
fyrirtækisins og Vilborgu. Lýsandi dæmi um þetta voru
t.d. reglubundnar heimsóknir f verslanir. Stjórnendur
fyrirtækisins voru sammála því að treysta þyrfti sam-
bandið við þær en framkvæmdastjóri hindraði hins veg-
ar Vilborgu í því að fara í þessar heimsóknir á þeim
tíma sem óskað hafði verið eftir af hálfu viðskiptavinar-
ins og krafðist þess að hún færi þegar honum þóknað-
ist jafnvel þó vitað væri að verslunin væri lokuð. í slík-
um tilfellum hafði hún uppiýst framkvæmdastjóra um
hvorutveggja en hann skellt skollaeyrum við og skamm-
aði hana síðan fyrir að bera ekkert úr býtum úr siíkri
ferð.
Við þetta gat Vilborg ekki unað til lengdar og gekk á
fund framkvæmdastjóra þar sem hún sagðist ekki geta
unnið starf sitt vegna ósamræmi í söluaðgerðum
stjórnenda fyrirtækisins. Þá varð úr að haldnir yrðu
reglulegir skipulagsfundir. Einn slfkur fundur var haid-
inn en síðan ekki söguna meir og var tímaskorti stjórn-
enda ætíð borið við.
Þegar hér var komið sögu hætti sölustjóri fyrirtækis-
ins í fússi og uppfrá því fór framkvæmdastjóri að beita
Vilborgu enn meiri ruddaskap. Hann hellti séryfir hana,
lamdi í borð hennar, henti í hana gögnum, bar hana
röngum sökum, öskraði og skammaðist. Þetta var meira
en Vilborg gat þolað og brast hún oft í grát í vinnunni.
Hún fór að kvfða því að mæta til vinnu, streitan jókst
gífurlega og við bættust alvarlegar svefntruflanir. Fyrir
kom að hún treysti sér ekki í vinnuna vegna andiegrar
vanlíðunar. Framkvæmdastjóra var kunnugt um líðan
hennar og forstjóra einnig en þeir létu sem ekkert væri.
Loks afréð Vilborg að ræða við framkvæmdastjóra
um líðan sfna, sem gaf lítið útá það og mánuði síðar
gafst hún upp og sagði upp störfum. Framkvæmdastjóri
sagðist gera sér grein fyrir að hún hefði verið að velta
þessu fyrir sér og spurði þá Vilborg hvort hann vildi
ræða ástæðu uppsagnarinnar, hún væri honum fullljós.
Framkvæmdastjóri vildi ekki fara útí þá umræðu en játti
því að vita hver ástæðan væri. Hann hefur hins vegar
ekki viljað kannast við ábyrgð sfna í máli Vilborgar eftir
að kjaramáladeild VR var upplýst um málið.
o
• Fjölbreytni
■ Engin heimavinna
• Engin próf
• Námskeiö um þaö sem skiptir máli
Leikmannaskóli þjóðkirkjunnar
Pantaðu bækling!
Viltu Iæra
um Iífiö?
Leikmannaskóli þjóðkirkjunnar kynnir
eftirfarandi námskeið sem haldin verða
í Háskóla íslands á haustönn 2001
Stefnur og straumar í frumkristni.
Kennari: dr. fil. Jón Ma. Ásgeirsson prófessor
Tími: Fjórir mánudagar 17/9, 24/9 1/10, 8/10.
Kl. 18:00-20:00. Verð kr. 3.500,-
Að hugga og hlusta - námskeið í sálgæslu.
Kennari: sr. Gunnar Rúnar Matthíasson, sjúkrahúsprestur
Tími: Fjórir miðvikudagar 3/10,10/10, 17/10, 24/10.
Kl. 18:00-20.00. Verð kr. 3.500,-
Hin mörgu andlit Maríu.
Kennari: dr. Arnfríður Guðmundsdóttir lektor.
Tími: Fjórir þriðjudagar 16/10, 23/10, 30/10, 6/11.
Kl. 18:00-20:00. Verð kr. 3.500.-
Nánari upplýsingar eru veittar hjá
Leikmannaskóla þjóðkirkjunnar
Biskupsstofu, Laugavegi 31,
150 Reykjavík
Sími: 535 1500
Bréfsími: 511 1501
Netfang: frd@biskup.is
Konur eru konum bestar.
Kennari: Petrína Mjöll Jóhannesdóttir guðfræðingur.
Tími: Tveir miðvikudagar 14/11 og 21/11.
Kl. 19:00-22:00. Verð kr. 2.300,-
Námskeið í Háskóla Islands
* Fjölbreytni
* Engin heimavinna
* Engin próf
* Námskeið um það sem skiptir máli