Vera - 01.08.2001, Qupperneq 60
Viðtöl: Elísabet Þorgeirsdóttir
Hólmfríður Einarsdóttii
ma rkaðsstjóri Kaupþings hf.
Myndir: Þórdís
Mikill vöxtur hefur einkennt starfsemi Kaupþings undanfar-
in misseri og í kjölfarið hafa umsvif Markaðsdeildar Kaup-
þings aukist til muna. Kaupþing opnaði til að mynda fimm
erlendar skrifstofur á síðasta ári og hafði Hólmfríður þá
umsjón með fjölda ráðstefna og kynningarfunda bæði á
innlendri og erlendri grundu. Auk hefðbundinna markaðs-
og kynningarmála hér á landi og erlendis heyra ráðstefn-
ur, móttökur og námskeið undir starfssvið hennar.
markaðsstarf miðar að og sjáum um að henni sé
framfylgt enda er hún alveg á okkar ábyrgð," segir
Hólmfríður. „Gerð auglýsinga- og kynningarefnis
er oft unnið í samstarfi við íslenskar auglýsinga-
stofur en hugmyndir koma einnig frá útibúunum
ytra, þar sem þau þekkja sín markaðssvæði vel,
og við semjum síðan við auglýsingastofur í við-
komandi löndum um útfærsluna." Árið 1998 hóf
Kaupþing útrás sína með opnun dótturfélags í
Luxemþorg og starfa þar um 80 manns í dag.
Starfsemin þar hefur gengið mjög vel og í kjölfar-
ið hefur bankinn opnað skrifstofur f Færeyjum,
Kaupmannahöfn, Stokkhólmi, Sviss, New York og
á Spáni. „Við verðum að gæta að hönnunarstaðli
okkar þegar samið er við erlendar auglýsingastof-
ur til að tryggja fmynd okkar. Erlendu samskiptin
hafa verið sérlega skemmtileg og víkkað sjón-
deildarhring minn mikið. í tengslum við opnan-
irnar hafði ég t.d. umsjón með móttökum og
blaðamannafundum. Það skiptir miklu máli að
faglega sé að öllu slíku staðið."
Kynntust á Landsmóti UMFÍ
Hólmfríður Einarsdóttir er 28 ára frá Bolungarvík. Hún lauk
verslunarprófi frá Verzlunarskóla íslands, fór síðan á nátt-
úrufræðibraut í Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi og
tók stúdentspróf bæði af náttúrufræði- og hagfræðibraut.
„Viðskiptin höfðu vinninginn og ég fór að vinna í Markhús-
inu um það leyti sem það var stofnað. Þar fékk ég mikinn
áhuga á markaðsmálum og ákvað að læra rekstrarfræði á
markaðssviði við Tækniskóla íslands. Ég vann hjá Kaup-
þingi samhliða náminu sem ég lauk í janúar árið 1999. Ég
er sérlega ánægð með námið í Tækniskólanum þar sem
það var mjög hagnýtt og í nánum tengslum við atvinnulífið.
Við fengum t.d. dýrmæta reynslu með því að vinna raunhæf
verkefni svo sem markaðsáætlanir og markaðsrannsóknir
fyrir ýmis fyrirtæki", segir Hólmfríður.
Fimm manna markaðsdeild
Hólmfríður tók við markaðsmálum Kaupþings í janúar 1999
og var þá eini starfsmaðurinn, en nú starfa fimm manns í
deildinni sem Hólmfríður veitir forstöðu. „Markaðs- og
kynningarmálin eru á okkar könnu og sjáum við m.a. um
allar auglýsingar, bæklingagerð og ritstjórn vefsvæðis
Kaupþings. Við vinnum markvissa markaðsáætlun sem allt
Hólmfrfður kynntist eiginmanni sínum, Ragnari
Þór Ragnarssyni, á Landsmóti UMFÍ árið 1987.
Þau eiga sjö ára gamlan son og von á öðru barni
í október. Ragnar er tölvunarfræðingur og starfar
sem tæknilegur framkvæmdastjóri Landsteina ís-
land.
„Áhugamál mfn utan vinnunnar snúast fyrst og
fremst í kringum fjölskylduna. íþróttaáhugi okkar
er mikill og við stundum golf af kappi á sumrin
og skíði á veturna. Þetta eru íþróttir sem öll fjöl-
skyldan getur stundað saman og bæði holl hreyf-
ing og góð útivera."
Hólmfríður á sex eldri systkini sem öll búa á
Vestfjörðum og það gera foreldrar hennar einnig.
„Ég sakna auðvitað fjölskyldunnar en aftur á móti
er þeim mun skemmtilegra að fá þau í heimsókn.
Barnið sem ég geng með verður átjánda barna-
barn foreldra minna svo þetta er orðin býsna stór
fjölskylda. Við förum vestur þegar við getum og
sonur okkar vill helst vera þar allt sumarið," sagði
Hólmfríður.
60