Vera - 01.08.2001, Síða 62
Margit Einarsdóttir
Tryggingamiðstöðinni
Myndir: Gréta
Margit Einarsdóttir tók við starfi markaðsstjóra Trygg-
ingamiðstöðvarinnar í janúar sl. en starfið varð til þeg-
ar Tryggingamiðstöðin sameinaðist Tryggingu hf. í
nóvember 1999. Margit starfar nóið með öðrum deild-
um fyrirtækisins og hefur yfirumsjón með markaðs-,
kynningar- og auglýsingamólum.
Margit er 38 ára, stúdent frá MH 1983. Hún lærði fjöl-
miðlafræði í Ohio University í Athens í Ohio með
áherslu á vinnu við sjónvarp og útvarp og lauk BS prófi
1990. Frá 1990 til 1997 vann hún hjá fyrirtækinu Kynn-
ing og markaður (KOM) og kynntist þarýmsum hliðum
markaðsstarfs. Hún varð svo markaðsstjóri hjá Sam-
skipum í hálft ár en frá 1997 til 1999 vann hún á auglýs-
ingastofunni Góðu fólki, í birtingardeild, þar sem hún
kynntist hinni hlið auglýsingastarfsins, vann m.a. við
birtingaáætlanir og markaðsrannsóknir. En þá flutti fjöl-
skyldan til Grímseyjar þar sem maður Margitar gerðist
kaupfélagsstjóri og hún varð fréttaritari fyrir Morgun-
blaðið og tónmenntakennari við grunnskólann. „Þegar
ég vann hjá KOM fann ég fljótt að mér fannst gaman að
skipuleggja ráðstefnurog blaðamannafundi, útbúa
gögn og vinna við beina markaðssetningu. Starfið sem
ég er í núna á því mjög vel við mig," segir Margit.
Að þjóna viðskiptavininum
„Þegar ég tók við starfinu hér í markaðsdeildinni var
það vel skipulagt og í góðum farvegi, ég hef því haldið
áfram á svipaðri braut og forveri minn. Ég funda reglu-
lega með fulltrúum annarra deilda til þess að halda
góðu upplýsingaflæði og fá hugmyndir frá þeim. Trygg-
ingamiðstöðin er með útibú á fimm stöðum á landinu
og umboðsmenn víðar. Ég heimsæki þessa staði til að
samræma merkingar og þess háttar. Það er mikilvægt
að upplýsingaflæðið sé gott og þar skiptir vefsvæði líka
miklu máli en það er tmfif.is
Eitt helsta verkefni markaðsstjóra er að þjóna við-
skiptavinum fyrirtækisins - „hvað vill kúnninn?" er
spurning sem við spyrjum oft. Árið 1999 fékk Trygginga-
miðstöðin verðlaun í flokknum bein markaðssetning
fyrir skyndihjálpartöskuna sem send var til allra sem
kaupa heimilistrygginguna TM öryggi. Nú stendur við-
skiptavinum á aldrinum 20 til 55 ára til boða 30% af-
sláttur af barnabílstólum og fleiri vörum fyrir barnið í
bílnum í barnavöruversluninni Ólavía og Oliver í Glæsi-
bæ. Ég hef svo verið að undirbúa þátttöku okkar í heim-
ilissýningunni í september, þar sem við verðum með
bás, og sjávarútvegssýningin á næsta ári verður stórt
verkefni. í haust mun fyrirtækið veita í þriðja sinn for-
varnaverðlaunin Varðbergið fyrir aðbúnað og öryggi á
vinnustöð'um," segir Margit.
Góð samvera minnkar samviskubitið
Margit og maður hennar, Guðmundur Emil lónsson yfir-
matreiðslumaður á Fjörukránni í Hafnarfirði, eiga tvo
syni, 9 ára og 2 ára. Hún segist hafa vera ákeðin í því að
vera a.m.k. ár heima með þann yngri en þegar þau
fluttu til Grímseyjar var hann einmitt nýfæddur. „Við
áttum frábæran tíma saman í Grímsey, náðum svo vel
að vera saman og minnka stressið. Ég hef því ekki nærri
eins mikið samviskubit þegar ég er í vinnunni núna
eins og ég hafði áður. Okkur finnst nauðsynlegt að
komast í sumarbústað nokkrum sinnum á ári til að ná
góðri slökun og samveru. Okkur finnst líka mjög gaman
að bjóða fólki f mat, borðum t.d. alltaf með vinahjónum
einu sinni f mánuði. Mér finnst gott að sökkva mér í
bækur og finnst besti tíminn til lestrar frá september til
áramóta. Ég hef Ifka gaman að alls kyns föndri, fór t.d.
bæði á námskeið í keramik og trévinnu þegar ég bjó í
Grfmsey. Kvenfélagið stóð fyrir þessum námskeiðum og
ég gekk að sjálfsögðu í kvenfélagið," segir Margit.