Vera - 01.08.2001, Qupperneq 63
*3VLarkaðsstjóra
Hrefna Bachmann réðst til Símans haustið 1 999 en þó
óttu sér stað miklar skipulagsbreytingar í fyrirtækinu.
Hún segir að þessi tími hafi verið einstaklega spennan-
di og boðið upp ó mörg tækifæri í markaðsmólum þar
sem unnið var að því að breyta ímynd fyrirtækisins úr
þungu ríkisfyrirtæki í sveigjanlegt einkafyrirtæki.
Framundan eru líka spennandi tímar því unnið er að
útboði og stefnt að sölu Símans á haustmánuðum og
jafnframt flutningi úr gamla húsinu við Austurvöll.
Hrefna er 31 árs. Hún flutti til Bandaríkjanna með forel-
drum sínum 15 ára gömul og lauk þar menntaskólaná-
mi en stundaði nám við Fjölbrautaskólann í Breiðholti í
tvö ár til að halda tengslum við íslenskt samfélag. Þá
kynntist hún manni sínum og þau stunduðu framhalds-
nám í Bandaríkjunum frá 1990 til 1999.
„Ég tók AS gráðu í tískumarkaðsfræði í Melbourne í
Florida. Við fluttum svo til Phoenix í Arizona þar sem
ég tók BS gráðu í viðskiptafræði og MBA gráðu í
markaðsfræðum við Western International University
1999. Ég vann síðan hjá Carlson Wagonlit Travel sem
er ein stærsta ferðaskrifstofa heims. Um þetta leyti var
eldri dóttir okkar að byrja f skóla. Maðurinn minn var
byrjaður að vinna og eftir því sem ábyrgð starfa okkar
jókst vorum við meira að heiman. Við spurðum okkur
þá: Er þetta lífið sem við viljum lifa? Svarið var að við
vildum komaheim," segir Hrefna.
Að búa til nýja ímynd
Þegar Hrefna hóf störf hjá Símanum í september 1999
var hún viðskiptastjóri og sá um stærstu fyrirtækin sem
eru í viðskiptum við Símann. Að ári liðnu var sett á lag-
girnar markaðsdeild og var hún sett yfir fyrirtækjahluta
hennar sem var í raun ný deild en þar eru nú fjórir
starfsmenn auk Hrefnu.
„Ég vinn náið með Jóhanni Friðleifssyni
markaðsstjóra einstaklingssviðs, sem sér um þjónustu
við heimilin, en auk þjónustu við fyrirtækin eru t.d.
Símaskráin, markaðsrannsóknir og greiningar á mínu
starfssviði. Það eru miklar nýjungar hjá Símanum. Við
erum að bjóða fyrirtækjum IP-net, nýtt samskiptanet
sem á sveigjanlegan og hagkvæman hátt gerir kleift að
setja upp fyrirtækjavíðnet sem getur annast öll víðtekin
fjarskipti; flutt tal, myndir og gögn. IP-netið veitir
fyrirtækjum aðgang að allri nauðsynlegri samskip-
taþjónustu, t.d. samtengingu starfs- og símstöðva og
aðgang að lnterneti. Við héldum um 300 manna
ráðstefnu í vor til að kynna þessa nýjung. Aðalverkefni
okkar beggja er að markaðssetja lausnir og aðgengi
Sfmans á heildstæðan hátt með þarfir og væntingar
viðskiptavinarins í fyrirrúmi. Við fylgjumst reglulega
með því hvernig ímynd Símans stendur og til þess
notum við kannanir af ýmsum toga sem við látum gera
fyrir okkur með reglulegu millibili. Við búum við mjög
skemmtilegt og líflegt samkeppnisumhverfi og höfum
lagt mikla áherslu á nýja ímynd fyrirtækisins eftir að
rekstur símafyrirtækja var gefinn frjáls. Markaðsdeild
Símans er ein stærsta markaðdeild landsins og ég er
ánægð með að okkur hefur tekist að halda um 70%
hlutdeild á markaðnum. Við viljum sýna að Síminn er
markaðssöludrifið fyrirtæki sem byggirá mikilli reynslu
og þekkingu, trausti og öryggi. Við vinnum líka með
innri ímynd fyrirtækisins en hér er gott sambland af
starfsfólki, annars vegar með mikla reynslu og hins
vegaryngra fólki," segir Hrefna.
Kennsla í Háskólanum í Reykjavík
Hrefna og eiginmaður hennar, Ólafur Þór Vilhjálmsson
þjónustustjóri SKÝRR, eiga tvær dætur, 7 ára og 5 ára.
Þau vinna bæði langan vinnudag og nýta reynslu sína
frá námsárunum við að skipuleggja tímann. „Við tökum
alltaf frá eitt kvöld í viku fyrir okkur tvö, köllum það „að
fara á deit", Við þurfum ekki að gera neitt merkilegt en
okkur finnst mikilvægt að halda þessum sið."
Þegar rætt er um frítíma kemur í Ijós að Hrefna er
búin að ráðstafa einu kvöldi í viku í vetur. Hún hefur
nefnilega tekið að sér kennslu í markaðsfræði við
Háskólann í Reykjavík f því sem nefnist háskólanám
með vinnu. „Við förum í skíðaferð til útlanda á hverju
ári og stundum skfði, fjallgöngur og útilegur hér heima.
Við byrjuðum að stunda golf saman í Florida 1994 en
ég hef ekki gefið mér tíma til þess að spila golf síðustu
misseri auk þess sem dætur okkar eru duglegar að
skipuleggja ferðir í bæinn, á kaffihús o.fl. Þær eru mik-
lar selskapsdömur og sleppa okkur ekki við þetta," segir
Hrefna að lokum.