Vera - 01.12.2001, Blaðsíða 6
Spurning mánaðarins:
« ■* < tx
Hvað finnst þér um fæðingarorlof feðra?
Á það að vera lögbundið eða frjálst val?
6
Trausti Kristinsson
Bara fínt, mér finnst þó sniðugra að
hafa þetta frjálst val.
Karl Arnar Bjarnason
Mér finnst það mjög fínt en þefta á að
vera frjálst val því sumir eru hlynntir
þessu en aðrir kannski ekki.
Benedikt Jón Þórðarson
Hef voðalega litla skoðun á því en
þetta á að vera frjálst til að þetta
henti öllum.
Gauti Marteinsson
Mér finnst það eiga fullan réft á sér
og fæðingarorlofið á að vera lög-
bundið til þess að reyna að koma því
sem fyrst á.
Marteinn Viggósson
Eg veit það ekki. Hvað eiga menn að
vera að þvælast heima þegar þeir
geta gert miklu meira gagn úfi á
vinnumarkaðinum? Konurnar eiga
bara að sjá um þetta.
Haraldur Ásgeir Hjaltason
Mér finnst það alveg frábært og bara
stórkostlegt enda er ég einmitt í fæð-
ingarorlofi núna. Þetta á að vera lög-
bundið, allavega að hluta til, því að ég
held að þetta sé mjög hollt fyrir alla.
Friðrik Lindbergsson
Mér finnst að það ætti að vera í gildi,
allavega á alls ekki að hætta við það
en fæðingarorlofið á að vera frjálst
svo maður geti samt valið hvort mað-
ur vill vinna eða ekki.
Ketill Magnússon
Mjög jákvætt, bæði vegna þess að þá
fá feður tækifæri til að vera með
börnunum sínum og svo jafnar þetta
stöðu karla og kvenna í þjóðfélaginu.
Eg er ekki viss um að það gagnist að
skylda menn til þess að fara í fæðing-
arorlof en það ætti að gera þetta
miklu auðveldara fyrir þá með ýmsu
öðru en að lögbinda bara leyfið.
Abba babb
strákar verða ekki forsetar!
I ykíllinn
að volgongni
é vinnumarkaði
-------
Lykillinn
að velgengni á vinnumarkaði
hagnýtar upplýsingar fyrir konur
um leikreglur vinnumarkaðarins
Þegar kona tekur við starfi æðsta stjórnanda fyrirtækis
sperra margir brýrnar enn þann dag í dag. Hefðin er rík
og lífsseig. Fyrirmyndir eru því mikilvægur fsbrjótur. Á
forsetaárum Vigdísar voru nokkur börn á leikskóla
spurð hvað þau vildu verða og lítill drengur sagðist
vilja verða forseti. „Abba babb," sagði ein stelpan,
„strákar verða ekki forsetar."
Þrátt fyriraukna menntun kvenna og fjölbreyttara
námsval á síðustu áratugum er náms- og starfsval enn
mjög kynbundið og kynbundinn launamunur mikill.
Konur eru fáar í stjórnunar- og ábyrgðarstörfum á öll-
um sviðum atvinnulífsins. Ljóst er að töluvert þarf að
breytast í þjóðfélaginu til að jafnræði verði með kynj-
unum á vinnumarkaði. Konur þurfa sjálfar að gera sér
grein fyrir óskum sínum og væntingum á vinnumarkaði
og hvernig þær eiga að bera sig að við að ná þessum
markmiðum. Eftirspurn eftir hæfum stjórnendum og
sérmenntuðu starfsfólki eykst stöðugt og því ættu kon-
ur að nýta sér þau tækifæri sem bjóðast.
lafnréttisátak Háskóla íslands og lafnréttisstofa,
ásamt Verzlunarmannafélagi Reykjavíkur f samvinnu
við Hf. Eimskipafélag íslands og Þekkingarsmiðju IMG
og ráðstefnuna Konur og lýðræði við árþúsundamót,
hafa gefið út bækling til handa ungum konum sem eru
að stíga sín fyrstu spor á vinnumarkaðinum. Nýtist
hann einnig þeim sem hugsa sér til hreyfings á vinnu-
markaði eða sækjast eftir meiri ábyrgð í starfi. Mark-
miðið með útgáfu bæklingsins, sem hlotið hefur nafn-
ið Lykillinn að velgengni á vinnumarkaði, er að gefa
fólki annars vegar ýmsar hagnýtar upplýsingar um
leikreglur vinnumarkaðarins, s.s. hvernig eigi að bera
sig að við að sækja um starf, gerð umsóknarbréfa og
ferilskráa, undirbúningur undir atvinnuviðtal o.fl., og
hins vegar ráðgjöf um hvaða þættir það eru sem helst
stuðla að velgengni í starfi. Bæklingurinn hefur auk
þess að geyma tölulegar upplýsingar um kynbundinn
vinnumarkað og launamun kynjanna. Bæklingnum
verður dreift til kvennemenda á lokaári í Háskóla ís-
lands og félagsmenn Verzlunarmannafélags Reykjavík-
ur geta nálgast hann á skrifstofu félagsins í Húsi versl-
unarinnar. Hann er einnig hægt að kaupa í Bóksölu
stúdenta á 500 kr.
A.B.S.