Vera


Vera - 01.12.2001, Blaðsíða 64

Vera - 01.12.2001, Blaðsíða 64
Heilsa Arndís Guðmundsdóttir og Alda Ásgeirsdóttir Hóflegt ólag, einkum ef það er okkur að skapi, styrkir og bætir líf- ið, en ef það er of mikið getur það haft skaðleg óhrif ó líkama og sól. Greining fólks og úrvinnsla ó um- hverfi og ytri aðstæðum fer fram í heilanum og því hefur verið haldið fram að streituóstand séu frumstæð viðbrögð lífverunnar við aðsteðj- andi hættu. Vísindamenn hafa kom- ist að því að streita veldur ókveðn- um efnabreytingum í heilanum sem geta haft óhrif ó heilsuna. Stress losar adrenalín í líkamanum, horm- ón sem virkar ó varnarkerfið og gerir það að verkum að hjartað slær örar, blóðþrýstingur hækkar, vöðvaspenna eykst og augastein- arnir dragast saman. Sú tilgóta að sólrænir þættir auki líkur ó myndun krabbameins hefur reynst lífseig. Tilgótur í þessa veru hafa enn ekki verið endanlega staðfestar eða afsannaðar. Streita og streituvaldar Mikilvægt er að gera sér grein fyrir muninum á streitu og því sem veld- ur streitu - streituvaldi. Hugræn einkenni streitu geta verið tilfinn- ingar eins og kvfði og angist eða depurð og þunglyndi. Líkamleg við- brögð við streitu geta m.a. verið aukin spenna í vöðvum, aukin svita- myndun, eirðarleysi, hraðari hjart- Streita Líf án álags er varla til sláttur og grynnri öndun, svefntrufl- anir, lystarleysi o.fl. Tfmalengd streituálags skiptir máli, svo og ýmsir þættir eins og persónuleiki, skaplyndi, aðlögunarhæfni, félags- legt stuðningsnet, fyrri reynsla og að sjá fyrir endann á álaginu. Fólk finnur fyrir streitu þegar það kemst f uppnám. Það getur verið vegna röskunar á einhverju í Iffinu og tengt bæði gleði eða sorg. Maður getur upplifað streitu við að fá kauphækkun, eða vera rekin(n) úr vinnu. Rannsóknir sýna að konur með börn hafa meira magn af streitu-hormónum í blóðinu en konur sem ekki eiga börn. Þetta þýðir ekki að konur án barna upplifi ekki streitu - síður en svo. Ef við ofgerum líkamanum með vinnu og göngum á þrek hans án þess að hvílast er streita óhjákvæmileg afleiðing. Jólakvíði Á jólunum leggjum við okkur fram um að gleðja okkar nánustu. jólin eru hátíð Ijóssins og erum við oft tilbúin til þess að leggja mikið á okkur til að öðlast gleði og frið. Við hlöðum í kringum okkur hlutum sem minna á hátíðina, skreytum með marglitum ljósaseríum og bæt- um það sem betur má fara á heimil- inu, skúrum, skrúbbum og bónum. Vandinn er að þekkja takmörk sín. Hinn margumræddi jólakvíði getur verið sprottinn af mismunandi ástæðum, t.d. slæmum minningum, skilnaði, áfengisvandamáli, fráfalli maka, missi barns og einstæðingar kvíða því að vera einir yfir hátíðirn- ar. Einnig getur „tímaleysi" nútíma- mannsins og fjárhagsáhyggjur haft sitt að segja. Ef væntingar og vonir rætast ekki, eins og gert var ráð fyr- ir, verðum við fyrir vonbrigðum og þá getur verið stutt f þunglyndið. Hvað er til róða? Við höfum ekki alltaf haft stjórn á aðstæðum okkar, en við getum ráð- ið töluverðu um hvernig við bregð- umst við þeim. Gleymum ekki að fara kyrrláta veginn stöku sinnum. Það er svo auðvelt að keyra hrað- brautina og vera kominn á fleygiferð áður en maður veit af. Hugsaðu já- kvætt og gaumgæfðu hvað þú getur gert í stöðunni: - Taktu á þeim þáttum í lífi þínu sem ýta undir streitu, til dæmis með því að minnka áfengisneyslu, borða hollan og næringarríkan mat (minni fitu), draga úr koff- einneyslu (t.d. með því að drekka koffeinlaust te) og hreyfðu þig meira - farðu í gönguferðir, sund, stund- aðu Ifkamsrækt o.fl. Gerðu það sem þér finnst skemmtilegt! Ef þú gerir þetta minnkar þú ekki ein- ungis streituna, heldur mun þér líða betur á allan hátt. - Komdu þér þægilega fyrir, sitjandi eða liggjandi. Slakaðu vel á og andaðu djápt nokkrum sinnum, það losar um streitu. Einnig getur ver- ið gott að stunda hugleiðslu eða hlusta á slökunartónlist. - Ekki setja þér óraunhæf markmið eða reyna að vera eins og þú „átt" að vera. Vertu þú sjálf(ur) og mundu að það er allt f lagi að segja stundum „nei". 64 Myndir: Elín Helena
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.