Vera - 01.12.2001, Blaðsíða 8
Anna Guðlaugsdóftir
Ingibjörg Guðlaugsdóttir
„Ég valdi ekki básúnuna, af tilviljun var
hún eina hljóðfærið sem mér bauðst að
spila á í Skólahljómsveit Kópavogs", segir
lngibjörg aðspurð um hvers vegna hún
hafi valið að læra á einmitt þetta hljóð-
færi. „Eins og flestar aðrar stelpur vildi ég
spila á klarinett eða flautu og ætlaði að
skipta seinna en mér ifkaði svo vel að
læra á básúnu að ég hélt því áfram og hef
svo sannarlega ekki séð eftir því."
Ingibjörg hóf að læra básúnuleik 13
ára gömul og hefur nú spilað á básúnu í
ein fimmtán ár. Hún byrjaði í Skólahljóm-
sveit Kópavogs undir handleiðslu Björns
Guðjónssonar og Össurs Geirssonar og
gekk síðan í Tónskóla Sigursveins og út-
skrifaðist þaðan 1995. Eftir það lá leið
hennar til Svíþjóðar þar sem hún hóf
nám við Tónlistarháskólann í Gautaborg
og lauk þaðan einleikaraprófi vorið 2000.
Hún var svo gestanemandi í eitt ár við
Det Kongelige Musikkonservatorium í
Kaupmannahöfn og býr nú og starfar í
Gautaborg.
ingibjörg er í dag eini íslenski kvenkyns
básúnuleikarinn sem hefur lokið sérhæfðu
framhaldsnámi í básúnuleik og er talin
meðal fremstu básúnuleikara íslendinga.
„Það var nokkuð óalgengt hér áður að kon-
ur spiluðu á stærri blásturshljóðfæri en
það virðist nokkuð vera að breytast, t.d.
eru margar íslenskar stelpur sem spila á
horn," segir Ingibjörg. „Oft fæ ég ég undr-
unarviðbrögð frá fólki þegar ég segi því að
ég sé básúnuleikari, það hefur færst í auk-
ana frekar en hitt með árunum."
Ingibjörg hefur leikið með hljómsveit-
um og kammerhópum hér á landi, m.a.
með Sinfóníuhljómsveit íslands. Hún hef-
ur einnig haldið einleikstónleika hér á
landi, þar má nefna Sumartónleikana
seinasta haust og hún kom hingað til
lands nú í sumar og hélt tónleika með
Þorsteini Gauta Sigurðssyni píanóleikara,
bæði í Reykjavík og í Mývatnssveit.
„Það er alltaf gaman að koma heim og
spila og einnig að sjá hvað er að gerast í
klassísku tónlistarsenunni á íslandi. Ég
sé þó ekki fram á að flytja heim á næst-
unni þar sem það eru engar stöður á
lausu fyrir mig og manninn minn, sem er
hornleikari, hérna heima. Á hinn bóginn
getur verið auðveldara að koma sér á
framfæri hér á landi, sökum smæðar sam-
félagsins," segir þessi unga og metnaðar-
fulla kona að lokum.
8