Vera


Vera - 01.12.2001, Blaðsíða 30

Vera - 01.12.2001, Blaðsíða 30
Kristín Á. Guðmundsdóttir Það hafði verið mikil barótta gegn okkur sem kom fram í því að sjúkraliðum var fækkað á stóru sjúkrahúsunum hér í Reykjavík til að auka stöðugildi fyrir hjúkrunarfræðinga. Þetta hafði auðvitað í för með sér mikla erfiðleika og styr milli stéttanna og þar sem yfirmenn okkar koma úr röðum hjúkrunarfræðinga ríkti bara ekki nægjanlegt traust á milli okkar. sér af uppbyggingu stéttarinnar. „Ég tók þetta svo alvarlega að ég varð aðaltrúnaðarmaður sjúkraliða á Landspítalanum mjög fljótlega eft- ir að ég hóf þar störf," segir hún og hlær. Næsta skref var svo að ég varð varaformaður Sjúkraliðafélagsins 1986 og formaður 1988. Fé- lagið var þá bara fagfélag, þ.e. hafði ekki samn- ingsrétt, en með lagabreytingu 1989 öðluðust stéttir rétt til að stofna stéttarfélög og fá samn- ingsrétt. Áður voru það sambönd eins og BSRB og Starfsmannafélag ríkisstofnana, eða starfs- mannafélög hinna ýmsu sveitarfélaga, sem sáu um gerð kjarasamninga. Við vorum fjórða stétt opinberra aðila sem gekkst fyrir því að stofna stéttarfélag, 1991, á eftir meinatæknum, röntgentæknum og leikskólakennurum." Fyrsti kjarasamningur Sjúkraliðafélagsins var gerður árið 1992 eftir að sjúkraliðar höfðu verið án kjarasamninga í 15 mán- uði. Þá brást sjúkraliða langlundargeðið og fóru í tveggja sólarhringa setuverkfall sem leiddi til þess að kjarasamningar náðust. Aftur var samningalota 1994 sem þurfti átta vikna hart verkfall til að ljúka. „Á þessum árum voru sjúkraliðar smátt og smátt að ganga í félagið úr starfsmannafélögum sveitarfélaganna. Það var t.d. mjög sterkt 1994 þegar allir sjúkraliðarnir í Neskaupstað gengu úr starfsmannafélaginu í Sjúkraliðafélagið eftir að verkfallsaðgerðirnar voru hafnar og komu þannig þeint inn í verk- fallið. Með þessum samningum héldum við í við aðrar stéttir en svo gerðist það 1997 að aðrar stéttir sömdu um nýtt launakerfi og þá byrjuðum við að dragast aftur úr. Ástæðan fyrir því að við treystum okkur ekki til að semja um nýtt launakerfi var sú að við höfðum ekki nægj- anlega trú á yfirmönnum okkar inni á stofnun- unum. Það hafði verið mikil barátta gegn okkur sem kom fram í því að sjúkraliðum var fækkað á stóru sjúkrahúsunum hér í Reykjavík til að auka stöðugildi fyrir hjúkrunarfræðinga. Þetta hafði auðvitað í för með sér mikla erfiðleika og styr milli stéttanna og þar sem yfirmenn okkar koma úr röðum hjúkrunarfræðinga rfkti bara ekki nægjanlegt traust á milli okkar. Nýja launakerfið hefur hins vegar reynst hjúkrunar- fræðingum vel. Þær þurftu reyndar að fara í verkfallsaðgerðir til að ná þeim árangri en fengu með því samning um framgangskerfi sem hefur fleytt þeim verulega upp í launum. Sam- bærilegt skrið hefur átt sér stað í öðrum sétt- um sem við höfum borið okkur saman við, t.d. hjá lögreglumönnum sem afsöluðu sér verk- fallsréttinum en fengu í staðinn tengingu við launahækkanir annarra stétta og það hefur komið mjög vel út fyrir þá. Við höfum því dreg- ist verulega aftur úr þessum stéttum undanfar- ið og því urðum við að ná leiðréttingu í þess- um samningum." Tókst ykkur það í þessari lotu?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.