Vera - 01.12.2001, Blaðsíða 74
Enginn vandi að borða spaghetti
núna.... eftirþessa byltingu í
varalitum !
ísiensk ofurkona sem aldrei fellur
verk úr hendi....! Skyldi hún vera
að panta tíma í nuddi?
BYLTINGARKENND NÝJUNG
Skyldi vera átt við konuna eða þetta
ágæta blað, Skessuhorn?
Konur ráða heima
„Heimilisstörfum á heimili ungs fólks er nokkuð jafnt
skipt í dag, en konan ræður verkaskiptingunni og hefur
frumkvæði að því að hlutirnir séu framkvæmdir.
Karlarnir gera það sem þeim er sagt að gera. Konurnar
vilja fá að ráða því hvaða myndir eru á veggjunum, velja
pottaplöntur og klæðnað barnanna. Þvottavélin er líka
algjörlega undir stjórn kvenna."
-IngólfurV. Gíslason, félagsfrœðingur d lafnréttisstofu, í
Fréttablaðinu 5.september.
Hægt að breyía viðhorfum
„í Þýskalandi geta ungir karlmenn valið um að gegna
hefðbundinni herþjónustu eða samfélagsþjónustu. Stór
hópur velur síðari kostinn og fer í framhaldi af því í nám á
sviði umönnunar. Núna eru karlmenn 1/3 af þýsku hjúkrunar-
fræðingastéttinni. Ég er sannfærð um að það er hægt að
breyta viðhorfum karlmanna til umönnunarstarfa. Karlmenn
þurfa bara að fá tækifæri til að kynnast þessum störfum."
-Marga Tboine, forseti hfúkrunarfrœðideildar Hdshóla íslands,
í Morgunblaðinu 2. september.
Hin fullkomna kona
„í jólablaði sínu kom Morgunblaðið með uppskriftina að hinni
fullkomnu konu. Hún er á kafi í vinnu en er svo lagin í eldhús-
inu að hún töfrar fram veislurétti á nokkrum mínútum, og
umgengst einungis konur sem búa yfir þessum sömu
hæfileikum. Þegar maður sér svona vel lukkuð eintök af
kvenkyninu hvarflar óneitanlega að manni að maður hafi ekki
alveg náð tökum á kvenleikanum."
-Kolbrún Bergþórsdóttir, bókmenntafræðingur, í Mdlinu d Skjd
einum 5. desember.
Dæmigerður karlmaður?
„Ég geng í flest verk á heimilinu og vinn það sem þarf...
Ég býst við að ég sé dæmigerður karlmaður að því leyti
að stundum þarf að ýta á eftir mér. Ég er ekki mikið fyrir
að vinna smáverk jafnóðum og vil frekar leyfa þeim að
safnast upp og taka þá góða skorpu og klára mikið. Ég
vil gjarnan hafa mitt lag á þeim hlutum. Ég var húsfaðir
á meðan ég var atvinnumaður í íþrótt minni og gat
stundað æfingar eingöngu. Þá var gott að geta tekið
það rólega." -Magnús Ver Magnússon, kraftakarl, í
Vikunni 4. desember.
74