Vera - 01.12.2001, Blaðsíða 43
Aðalheiður Þorsteinsdóttir
Mér finnst þetta mjög skapandi starf og messur
Kvennakirkjunnar hafa heillað mig. Eg spila ekki á
orgel, heldur píanó og hef tekið virkan þátt í því að
breyta messuforminu.
4KLASSÍSKAR - f.v. Jóhanna Þórhalls, Aðalheiður,
Björk Jónsdóttir og Signý Sæmundsdóttir.
„Flatey fór í eyði á sjöunda áratugn-
um en móðurfjölskylda mín á enn
húsið sem þau bjuggu í. Því hefur
verið haldið við og þar er gaman að
dvelja á sumrin. Samkomuhúsið var
tiltölulega nýtt þegar fólkið flutti
burt og þangað hef ég oft farið ein
og sungið eða tekið með mér hljóð-
færi. Ég fann strax hvað hljómburð-
urinn er góður í húsinu og hugsa að
það séu komin ein 20 ár sfðan ég hét
því að halda einhvern tíma tónleika í
þessum sal. Mér þótti því óskaplega
vænt um hvað vinkonur mínar tóku
vel í þessa hugmynd þótt það væri
talsverð fyrirhöfn að framkvæma
hana. Rafmagnspíanóið mitt var tek-
ið með og rafmagn leitt í samkomu-
húsið frá Ijósavél sem er við einn
bæinn. Það var líka mjög ánægjulegt
að söngkvartettinn Út í vorið var á
ferð fyrir norðan og þeir ákváðu að
slást í hópinn með okkur og auðvit-
að voru fínu chiffon dressin tekin
með. Við auglýstum uppákomuna og
viti menn, klukkan fjögurá laugar-
daginn voru 140 manns mætt í sam-
komuhúsið, m.a. hópur utan úr
Grímsey. Þetta varð hin besta
skemmtun og mér sýndist gestir
ákaflega ánægðir. Um kvöldið var svo
slegið upp dansiballi svo þetta varð
mikil gleði og gaman. Með þessu
finnst mér við hafa sýnt að það er
margt hægt að gera ef viljinn er fyrir
hendi, meira að segja á eyðieyju. Nú
á ég bara eftir að framkvæma draum-
inn um að spila á harmonikuna mína
á balli út í Flatey!"
Af fleiri verkefnum nefnir Aðal-
heiður að hún er að nótna-
setja óperuna Bí, bí og blak-
an eftir þríeykið frá Húsavík, þá Þor-
geir, Sævar og Ármann, sem sett var
upp hjá Hugleik og farið með á leik-
listarhátíð í Litháen þar sem hún
fékk góðar viðtökur. Aðalheiður spil-
aði undir en studdist lítið við nótur
og þarf nú að skrásetja svo aðrir geti
endurtekið. „Þetta er skemmtilegt
verk þar sem blandað er saman ýms-
um músíkstílum - klassískum, yfir í
tangó, yfir í popp - og getur verið
gaman fyrir tónlistarnema að spreyta
sig á þessu. Menntamálaráðuneytið
styrkir verkefnið með það í huga."
Hún er einnig að vinna að tölvusetn-
ingu á nótnabók fyrir blandaða kóra.
Sú bók inniheldur trúarleg lög af
léttara taginu og verður gefin út af
Skálholtsútgáfunni. „Ég hef reynt að
hafa það að leiðarljósi að engin tón-
list sé fyrir neðan mfna virðingu,
þetta sé bara spurning um að flytja
hana vel og kunna til verka við hina
ýmsu stíla. Ég hef fjölbreyttan tón-
listarsmekk og reyni að nálgast öll
verkefni af virðingu. Ég er nýbyrjuð f
verkefnavalsnefnd Schola cantorum
og mun leggja áherslu á að velja
tuttugustu aldar verk sem oft eru erf-
ið en jafnframt skemmtileg til söngs
enda er flókinn hljóðheimur afskap-
lega spennandi. Mér finnst líka gott
að syngja við messur og jarðarfarir.
Það er svo mikið hjálpræði f söngn-
um, hann hjálpar mér sjálfri and-
lega."
Þegar vorar fer að hægjast um
hjá flestum en þá verður aldeilis
törn hjá tónlistarkonunni. 4KLASS-
ÍSKAR ætla í tónleikaferð til Norður-
landa í apríl, Létttsveitin til Kaup-
mannahafnar og Svíþjóðar í maí og
fyrirhuguð er ferð Schola cantorum
til Frakklands í júní. Svo stefna
4KLASSÍSKAR að því að fylgja meist-
ara Sigurði Dementz, sem verður ní-
ræður á næsta ári, til fæðingarbæjar
hans í Týrol í lok júní. „Ég er ánægð
með að hafa þorað að fara út á hinn
frjálsa markað en til þess er mikil-
vægt að hafa trú á sjálfri sér. Ég hef
þurft að koma mér inn í bransann og
læra að verðleggja mig jafn hátt og
strákarnir. Þar reynir á kvennastyrk-
inn, að þora að standa með sjálfri
sér og því sem maður hefur fram að
færa til listarinnar. Það er líka mikil-
vægt að láta ekki gagnrýni setja sig
úr skorðum og að taka sig ekki of há-
tíðlega. Þegar við komum t.d. fram
við jólahlaðborð eða á árshátíð og
fólk er farið að borða desertinn en er
ekki að byrja á forréttinum, getur
það skipt sköpum varðandi hlustun í
salnum. Þá verðum við að kunna að
bregðast við og breyta jafnvel
prógramminu, f stað þess að líta á
skvaldur í salnum sem mógðun við
okkur sem listamenn," segir Aðal-
heiður og við óskum henni góðs
gengis í jólahlaðborða -vertíðinni.
o
Ég syng bakraddir og spila á píanóið og þurfti að hella mér út í að spila sóló, svona eins og González gerir í Bueno Vista Social Club.