Vera - 01.12.2001, Blaðsíða 15
launum karla
Myndir: Gréta
ar að fæðingu kemur, þar sem langflestir
þeirra eru viðstaddir en oft látið eins og
þeir séu ekki til staðar.
En gestir málþingsins lýstu yfir
áhyggjum af ýmsu öðru sem viðkemur
börnum og fjölskyldunni á fslandi. Kallað
var eftir opinberri heildarstefnu í málefn-
um barna og lýst yfir áhyggjum af því hve
lítinn tíma börn fá. í því efni var nefnt að
þjóðarvakning þyrfti að eiga sér stað þar
sem íslendingar færu að meta börn meira
en nú er gert. Þó að lögin um fæðingaror-
lof séu skref í rétta átt er veruleiki sumra
þannig að sex til níu mánaða gömul börn
eru sett í gæslu í níu tíma á dag. Einnig
var rætt um þann veruleika sem tíðir skiln-
aðir leiða af sér en þar fá mæður nánast
undantekningarlaust forræði yfir börnun-
um. í því efni þurfi íslenskir karlmenn að
gæta réttar síns betur, einnig séu lög um
sameiginlegt forræði meingölluð og komi
oft illa út fyrir feður. Málefni samkyn-
hneigðra foreldra voru líka rædd og bent á
að taka þurfi tillit til barna sem fæðast inn
í slík sambönd þar sem getur verið um að
ræða meira en eina mömmu og einn
pabba.
í heildina má því segja að það að gefa
feðrum sjálfstæðan rétt til fæðingarorlofs
sé mikið framfaraskref og mikilvægt að
þeir fái smátt og smátt rétt til þriggja
mánaða orlofs. Það breytir þó ekki því að
ýmislegt þarf að laga í þjóðfélaginu til
þess að börnum líði betur. Því til sönnun-
ar má nefna könnun meðal tíu ára gamalla
barna, sem Þórhildur Líndal umboðsmað-
ur barna sagði frá. Þar kom fram að helsta
áhyggjuefni barnanna hafi verið annríki
foreldra þeirra og fjármál heimilisins.
Á heimasíðu \afnréttisstofu, jafnrelti.is, má
lesa fyrirlestra af málþingunum fjórum.
I V
£
Li.: ..1
Midad vid þau laun sem lögd
hafa verid til grundvallar út-
reiknings á greidslum í fœóing-
arorlofi fyrstu níu mánuói þessa
árs, hafa konur aóeins 60% af
Yfir 90% feðra nýttu sér réttinn
til eins mánaðar fœðingaror-
lofs en einungis 12% notuóu
hluta af sameiginlega réttinum
til þriggja mánaöa orlofs.