Vera - 01.12.2001, Page 44
Mynd: Erna Kristín Gylfadótti
Framtíð nektarstaða á íslandi
Arnar Gíslason
Framtíð nektarstaða ó íslandi og úrræði
sveitarfélaganna þar að lútandi hafa
verið nokkuð til umræðu undangengin
misseri. I krafti skipulagsbreytinga hafa
mörg sveitarfélög tekið ákvörðun um að
gera ekki ráð fyrir slíkri dægradvöl í
framtíðarskipulagi sínu. Sú aðferð felst
þó ekki beinlínis í að banna staðina,
heldur frekar að leyfa þá hvergi með
því að gera ekki ráð fyrir þeim í skipu-
lagi sínu. En nektarstaðir, eða nætur-
klúbbar eins og starfsemin kallast á
máli stjórnsýslunnar, eru þó enn sem
komið er löglegir. Því leikur nokkur vafi
á því hvort hægt sé að koma í veg fyrir
rekstur þeirra á slíkan máta, án þess að
til lagabreytinga komi.
í samtali við Veru sagði Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
borgarstjóri að á döfinni væru tvenns konar aðgerðir f
tengslum við rekstur nektarstaða f borginni. í fyrsta lagi
að óheimilt verði að veita leyfi til starfrækslu og rekst-
urs nektarstaða á skipulagssvæðinu Reykjavfkurborg í
heild sinni, nema tiltekið sé sérstaklega í deiliskipulagi
að starfsemi beirra sé heimil. Auk þess verður f desem-
ber lögð fyrir borgarráð tillaga vinnuhóps borgarinnar
og lögreglunnar um veitingamál. Tillagan er þrfþætt og
í henni felst eftirfarandi: Að einkadans verði bannaður;
að sýning verði að fara fram í nægilega rúmgóðu hús-
næði þannig að gott rými sé á milli sýnenda og áhorf-
enda og að miðað verði við ákveðinn metrafjölda í því
sambandi; og að sýnendum verði bannað að fara um
meðal áhorfenda.
Borgarstjóri telur auk þess nauðsynlegt að breyta
lögum í þá veru að skýrt verði kveðið á um heimild
sveitarfélaga til að banna starfsemi nektarstaða.
Núverandi úrræði, f gegnum aðal- og deiIiskipulag, séu
seinvirk og hún segir skiptar skoðanir um hvort sveitar-
félög geti í raun útiiokað starfsemi staðanna alfarið á
grundvelli skipulags.
Aðspurð um viðbrögð borgarinnar þegar starfsleyfi
nektarstaða renna út í Reykjavík árið 2003 sagði hún
málið vera til skoðunar. Hún sagði þá staði sem nú hafi
44