Vera


Vera - 01.12.2001, Page 73

Vera - 01.12.2001, Page 73
♦ Bréf frá Ameríku Bryndís Schram Veisla í garðimam Þið hefðuð átt að sjá þá. Þeir bókstaf- lega steyptust inn um dyrnar. Eins og sturtað væri af vörubíl. Flæddu um húsið. Ég var skíthrædd um handmál- aða postulínsvasa og rándýr glerborð í eigu íslenska rfkisins. Þeir gösluðust áfram eins og fílar í postulínsbúð. í Hilfiger stuttbuxum og Nike striga- skóm. (Jafnvel tíu ára guttar verða að tolla í tískunni). Víðir bolir lufsuðust um mjóa kroppana. Hrikalega voru þeir nú sætir, annars. Allt vinir Stark- aðar, dóttursonar míns. Hann er ís- lensk urt sem var stungið niður í am- erfska mold. Mömmurnar stóðu í dyragættinni. „Bless, elskan, ég sæki þig seinna." Aðdáunarsvipurinn leyndi sér ekki. Varla að þær gætu slitið sig frá þess- um gersemum - þessum litlu dekur- dýrum, sem höfðu líf þeirra í hendi sér. |á, það er einmitt rétt til orða tekið - börnin í Ameríku hafa nefnilega líf mæðra sinna í hendi sér. - En ég kem að því seinna. - Ég horfði á þær vippa sér um borð í klunnalega jeppa. Karl- inn undir stýri. Spýtir í. Undarlegt annars með amerískar konur. Það er eins og þær gefist upp á því að vera kynverur strax með fyrsta barni. Verða eins konar rauðsokkur gærdagsins. Skerða ekki hár sitt, nota ekki brjóstahaldara, mála hvorki varir né augnhár. Klæðast gallabuxum við öll hugsanleg tækifæri. í hæsta máta ósexý - en þess í stað hinar fullkomnu mæður - eða hvað? Strákarnir voru óstöðvandi, hávær- ir þar að auki. Kunnu ekki fótum sín- um forráð. Einhvern veginn tókst mér að beina straumnum í gegnum húsið og út í garð. Þar stóð afi með svuntu á maganum og var að grilla oní strák- ana. (Ég hafði sagt honum að það væri enginn vandi. Hann gæti það eins og hver annar). Ég prísa mig annars sæla fyrir að hafa ekki hlotið þau örlög að vera móðir í Bandaríkjunum. Ég bjó bara á ísafirði með mína fjóra krakka. Var í fullu starfi. Fór allra minna ferða. Og þetta lukkaðist einhvern veginn. Við lifðum þetta af - bæði ég og börnin. Ég veit ekki til þess að í Evrópu séu konur litnar hornauga þó að þær eigi börn og vinni utan heimilis. Þjóð- félagið kemur jafnvel til móts við þær. Fæðingarorlof, barnabætur, dagheim- ili, sveigjanlegur vinnutími. Allt er þetta löngu þekkt og talið til sjálf- sagðra mannréttinda. En hér í Amer- fku, drottinn minn dýri! )æja, nú voru þeir komnir út í laug. Vatnið gusaðist yfir hvítan dúkinn sem ég hafði lagt á borð fyrir þá. Það var ekki þurr þráður f kjólnum mfnum. En ég beit á jaxlinn, bretti upp ermarnar, staðráðin í að lifa þetta af. Hvað var ég annars að segja? - |á, það er óneitanlega skrítið að flytja til Bandaríkjanna - á vit hinnar frjáls- bornu þjóðar þar sem kvenréttinda- hreyfingin stóð í blóma - og komast að því að mannréttindl mæðra hafa týnzt einhvers staðar á leiðinni. Hér í landi er ekki tekið út með sældinni að eiga börn og vinna jafnframt utan heimilis. Þrýstingur samfélagsins er svo þungur að þær blátt áfram neyð- ast til að hverfa af vinnumarkaðnum og snúa sér eingöngu að barnaupp- eldinu. Mæður eru óæskilegur vinnu- kraftur. f landi markaðshyggjunnar er engin miskunn. Það er ekki spurt um kynferði, heldur um starfshæfileika og afköst. Börn eru til trafala. Flestar mæður þessara stráka - millistéttarkonur með þokkalega menntun - hafa eflaust orðið að hætta í starfi til þess að geta sinnt þessum strákum þarna í lauginni. Þær hafa orðið að kveðja vinalegu skrifstofuna f hjarta borgarinnar, orðið að leggja til hliðar kvenlegu dragtirnar og háu hæl- ana. Hætta að fara út að borða með starfsfélögum eða fá sér í glas eftir vinnu. Lagt til hliðar drauma um frægð og frama. Jafnvel orðið að fórna litlu sporttýpunni, sem þær elskuðu þó út af lffinu. En það er dýrt að reka bíl. Annað hvort barn eða bíll! Æ,æ, nú eru strákarnir komnir upp úr lauginni aftur. Slafra í sig grillaðar pylsur og kóka kóla. Tómatsósan spýt- ist út um munnvikin. Klístrast íblautt hárið. Svei mér þá! Handklæðin liggja eins og hráviði á sundlaugarbarmin- um. Hvað börn geta annars verið ótrú- lega hrokafull. Þau halda að heimur- inn snúist um þau, að þau séu kjarni tilverunnar. Tillitslaus, frek og hávær. Gæti hugsast að við mæðurnar ættum einhverja sök á þessu?! |æja, nú eru þær að tínast inn til að sækja strákana. Það er varla að þær gefi sér tfma til að heilsa. Dekurdýrin ganga fyrir. Það þarf að þurrka þeim, klæða þau í hverja spjör, setja sund- fötin og handklæðin í tösku, minna þau á að þakka fyrir sig. Þetta eru þó engin smábörn lengur. Orðnir tíu ára. En það leynir sér ekki, hver hefur vald- ið, hver þjónar hverjum. |á, það er nefnilega það: móðirin er í vinnu hjá barninu. Og það er sko fullt starf hér f landi, og meira en það. Hún er á þönum allan daginn. Svokölluð „fótboltamamma". Er það nema von að hún leggi til hliðar háu hælana og þröngu pilsin? Það er ekki bara að hún þurfi að aka barninu fram og til baka úr og í skóla. Síðdegis taka við aukatfmar, dans, tónlist, íþróttir, jóga, júdó og hvað þetta heitir. Börnin mega ekki vera aðgerðarlaus. Verða að fá útrás. Ekki má hefta sköpunargáf- una. Svo er það heimavinnan og upp- vaskið. Á kvöldin er efnt til funda í skólanum. Mömmurnar virkjaðar. Það þarf að safna peningum til tækja- kaupa, ferðalaga, vísindarannsókna, því að ekki borgar ríkið. Það vantar kennara í sjálfboðavinnu. Mömmurnar eru primus motor. Sjá fyriröllu. Redda öllu. En fjandakornið! Þetta er ekkert líf. Þær eiga enga stund aflögu, ekkert einkalíf, engin áhugamál - annað en barnið, blessað barnið. Það gengur fyrir öllu. Og það gengur líka á lagið! Veislunni er lokið. Strákamir horfnir inn f stóru jeppana. Sárafáir kvöddu eða þökkuðu fyrir sig. Ég sit í stól og nýt þess að hlusta á þögnina. Einhver snertir öxl mína. „Takk, amma". Þetta litla orð bræðir hjarta mitt. Bætir allt upp. íslensk urt í am- erískri mold! Með kveðju frá Ameríku, Bryndís Schram 73

x

Vera

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.