Vera - 01.02.2004, Qupperneq 16
Á að banna kaup á vændi?
Það er alveg Ijóst að með tilkomu
nektardansstaða á íslandi, sem hófu
starfsemi upp úr 1995 og náðu há-
marki 2001, opnuðust nýir möguleik-
ar fyrir íslenska karlmenn til kaupa á
kynlífsþjónustu og því tóku margir
fagnandi. Kynlífsmarkaðurinn hefur
síðan þróast og er vel skilgreindur í
skýrslu Drífu Snædal sem hægt er að
nálgast á heimasíðu Reykjavíkur-
borgar. Þar kemur fram að löglegur
kynlífsiðnaður hér á landi er talinn
velta að minnsta kosti 650 milljónum
króna á ári. ( skýrslunni fjallar Drífa
um framboð á klámi og lýsir umfangi
og starfsemi fyrirtækja í kynlífsþjón-
ustu, svo sem símaþjónustu, nektar-
dansstaða, erótískra nuddstofa og
fylgdarþjónustu. Hún telur að hægt
nema Sjálfstæðisflokknum.
Frumvarpið er nú til meðferðar í
allsherjarnefnd og ekki vitað hvort
það verður afgreitt þaðan á þessu
þingi. Heyrst hefur að helstu rök and-
stæðinga frumvarpsins innan nefnd-
arinnar séu að ekki megi gera kaup á
vændi refsiverð nema salan sé það
líka. Þar verði sem sé að vera jafnræði
og annað hvort báðir aðilar að teljast
sekir eða báðir saklausir.
Það að aflétta sekt af sölu á vændi
hefur þó ekki verið talið vandamál á
hinum Norðurlöndunum þar sem
það er þvert á móti talið nauðsynlegt
til að vernda vændisfólk og auðvelda
því að gera lögreglu viðvart ef brotið
er á því. ( því sambandi má benda á
ummæli vændiskonu sem tjáði sig í
umfjöllun Mannlífs „Ég tek mikinn
VIÐ HÖFUM ENGIN TÖK Á AÐ FANGELSA ALLA ÞÁ SEM KAUPA SÉR
KYNLÍFSÞJÓNUSTU EN ÉG ER VISS UM AÐ ÞAÐ HEFÐI ÁHRIF Á
MENN EF ÞEIR ÞYRFTU AÐ MÆTA NIÐUR í HÉRAÐSDÓM 0G BORGA
SEKTIR FYRIR AÐ HAFA KEYPT SÉR VÆNDI
sé að nálgast vændi á þessum stöð-
um en einnig í gegnum auglýsingar á
netinu og í dagblöðum.
í nokkur ár hefur Kolbrún Hall-
dórsdóttir lagt fram frumvarp til
breytinga á almennum hegningar-
lögum þar sem kaup á vændi eru
gerð refsiverð. (frumvarpinu er jafn-
framt lagt til að sektinni verði aflétt af
vændisfólkinu, eins og gert hefur ver-
ið á öllum Norðurlöndunum. Frum-
varpið hefur alltaf verið fellt en sl.
haust komst aukinn þungi í málið
með víðtækari samstöðu um flutning
þess frá konum úr öllum flokkum
séns því ég er kannski að fara að hitta
mann sem lemur mig i klessu eða
nauðgar mér. Ég get ekki leitað til
lögreglunnar út af slíkum málum
þannig að ég er algjörlega varnar-
laus."
( Svíþjóð hefur verið ólöglegt að
kaupa vændi síðan 1999 og er já-
kvæður árangur þess talinn ótvíræð-
ur. ( Noregi og Finnlandi er nú til at-
hugunar að fara að dæmi Svía, sömu-
leiðis í Rússlandi og tillögur um það
hafa einnig komið fram á vettvangi
Evrópusambandsins. Forsendur laga-
setningarinnar í Svíþjóð er sá skiln-
ingur stjórnvalda að vændiskonan og
vændiskaupandinn séu ekki á jafn-
réttisgrundvelli, eins og fram kom í
máli Margaretu Winberg fyrrverandi
jafnréttisráðherra Svíþjóðar á fundi
hér á landi sl. haust. Hún sagði að yfir-
leitt hafi konan ekki valið sér þessa
iðju heldur leiðst út í hana en kaup-
andinn ekki neyðst til að kaupa kynlíf.
Mannslíkaminn eigi ekki að vera sölu-
vara, eins og hver önnur efnisleg
gæði, heldur verði að vera skýr mun-
ur þar á. Margareta sagði ennfremur
að vegna áhrifa laganna væri minna
um götuvændi í Svíþjóð og að þeir
sem stunda mansal sneiði nú í aukn-
um mæli hjá landinu vegna löggjaf-
arinnar. Ekki lítill árangur það!
Sólveig Pétursdóttir þáverandi
dómsmálaráðherra skipaði nefnd til
að gera tillögur um úrbætur vegna
kláms og vændis eftir að skýrslan
Vændi og félagslegt umhverfi þess
kom út fyrri hluta ársins 2001. Nefnd-
in skilaði skýrslu í apríl 2002, sem
hægt er að nálgast á vef ráðuneytis-
ins, og þar eru lagðar fram ýmsar til-
lögur til úrbóta. VERA spurðist fyrir
um það í dómsmálaráðuneytinu
hvort verið væri að vinna eftir tillög-
um nefndarinnar en var sagt að svo
væri ekki. Einnig var lögreglumaður
spurður hvað honum fyndist um
skýrslu nefndarinnar og sagði hann
Ijóst að enginn vilji væri til þess hjá
stjórnvöldum að framkvæma það
sem þar er lagt til, að minnsta kosti
hafi ekkert verið gert til að fjölga
lögreglufólki til að sinna þessum mál-
um.
Lögreglumaðurinn sagðist hlynnt-
ur því að gera kaup á vændi refsiverð
ef refsirammanum yrði breytt frá þvf
sem lagt er til í frumvarpinu og frem-
ur beitt sektum en fangelsi. „Við höf-
um engin tök á að fangelsa alla þá
sem kaupa sér kynlífsþjónustu en ég
er viss um að það hefði áhrif á menn
ef þeir þyrftu að mæta niður í héraðs-
dóm og borga sektir fyrir að hafa
keypt sér vændi. Þeir myndu örugg-
lega hugsa sig um tvisvar áður en
þeir gerðu það aftur."
VERA lagði spurningar fyrir Björn
Bjarnason dómsmálaráðherra um
hvað ráðuneytið hygðist gera til að
vinna gegn vændi og hvort von væri
á tillögum frá þeim um lagabreyting-
ar hvað varðar vændi. Svör við þeim
spurningum höfðu ekki borist þegar
blaðið fór í prentun.