Vera - 01.02.2004, Side 40

Vera - 01.02.2004, Side 40
/ NEYÐARMÓTTAKAN NAUÐGUN ER DÆMI UM ALGERT VIRÐINGARLEYSI OG HEFUR ALVARLEG ÁHRIF Á SJÁLFSMYND ÞOLANDANS. HÚN ER INNRÁS í LÍKAMA ANNARRAR MANNESKJU OG MISVIRÐING Á SJÁLFSÁKVÖRÐUNARRÉTTI HENNAR lústsdóttir aldri. Margar kvennanna fara í meiri langvarandi meðferð til sálfræðinga, aðrar vilja það ekki og haida því gjarnan áfram að koma í viðtöl til okkar. Það má því segja að við séum öryggisventill í þeim tilvikum. Þær vita nú hvert þær geta leitað til að tjá sig og fá aðstoð og vita að þeim verður trúað og treyst," segir Sigurlaug. Starf Guðrúnar Agnarsdóttur ómetanlegt En hvað felur niðurskurðurinn í sér? „I fyrsta lagi er búið að leggja niður stöðu yfirlæknis á Neyðarmóttökunni, stöðu sem Guðrún Agnarsdóttir hef- ur gegnt frá upphafi. Þó að um sé að ræða aðeins 20% stöðugildi er það engu að síður mjög mikilvægt hlutverk. Guðrún Agnarsdóttir hefur verið einskonar sameiningar- tákn allra þeirra ólíku starfstétta sem koma að starfsemi Neyðarmóttökunnar," segja þær. Sigurlaug bendir einnig á að hlutverk Guðrúnar hafi verið mjög mikilvægt í er- lendu samstarfi á þessu sviði og hafi verið horft á Neyðar- móttökuna hér á landi sem eina þá albestu í heimi. Starfs- fólk Neyðarmóttökunnar hafi notið góðs af hinu alþjóð- lega samstarfi því þegar haldnir hafi verið alþjóðlegir fundir hér á landi hafi starfsfólkinu verið boðið upp á fræðslu fundargesta. Guðrún hefur líka staðið fyrir mán- aðarlegum fundum með fulltrúum allra þeirra faghópa sem koma að starfi Neyðarmóttökunnar til þess að bæta störf þeirra bæði inn á við og út á við í samfélaginu. Einskonar hugsjónastarf Allt starfsfólk Neyðarmóttökunnar er í annarri vinnu líka og er þetta því einnig einskonar hugsjónastarf sem fólk hefur tekið þátt í. En það er ekki bara stöðugildi yfirlækn- is sem hefur verið lagt niður heldur einnig félagsráðgjafa. Nú á einungis að ráða í hálfa stöðu að degi til og sá starfs- maður á einnig að sinna öðrum málum á slysadeildinni. Miðað við fjölda verkefna sem þar bíða er mikil hætta á að ekki verði hægt að sinna þolendum nauðgana eins vel og gert hefur verið. Það er a.m.k. víst að ekki næst að sinna þolendum og aðstandendum þeirra eins vel og verið hefur þegar þeir koma að nóttu til eða um helgar nema einhverjir aðrir, t.d. hjúkrunarfræðingar Neyðar- móttökunnar, taki að sér þau störf sem ráðgjafarnir hafa sinnt. „( flestum tilvikum þarf líka að sinna aðstandendum sem líður oft hræðilega og vera í samstarfi við lögfræð- ing, því stundum þarf lögreglan strax að fara á vettvang. Þetta höfum við gert á meðan þær hafa verið í skoðun hjá lækni og hjúkrunarfæðingi og réttarlæknisfræðileg skýrsla hefur verið skrifuð," segir Sigurlaug. „Einnig þarf oft að aðstoða stúlkurnar andlega og á annan hátt eftir að skoðun lýkur. Ef þær geta t.d. ekki farið heim til sín þarf að hjálpa þeim að komast á Kvennaathvarfið eða eitthvert annað. Verði það reyndin að einhverjir aðrir verði að sinna þeim störfum sem við félagsráðgjafarnir og sálfræðingurinn höfum sinnt hingað til kostar það laun fyrir annan starfskraft. Hver verður þá sparnaðurinn þegar upp verður staðið?" Ekki eins góð andleg aðhlynning Og Sigurlaug helur áfram: „Það má búast við því að þjón- ustan skerðist og að aðstoðin við þolendur og aðstand- endur á nóttum og um helgar dragist á langinn. Oftast eru þolendur aðframkomnir af þreytu þegar þær koma á Neyðarmóttökuna að nóttu eða að morgni og því ekki æskilegt að lengja þann tíma að óþörfu sem þær verða að dvelja þar. Hann er oftast 2-4 tímar en mun lengri ef þær ákveða að kæra strax. Þetta er áhyggjuefni. Það er líka spurning hvort eins margar konurtreysti sér í endur- komu til ókunnugrar manneskju að degi til, því skömmin og vanlíðanin getur verið svo mikil og sporin þar með þung. Það er líka hætta á að endurkomum fækki og þær dragist á langinn að hálfu þolenda. Ég er hrædd um að þessar breytingar verði til þess að konur sem hafa orðið fyrir nauðgun fái ekki eins góða andlega aðhlynningu og þær hafa fengið og dregið geti úr kærum. Þolendur kyn- ferðisofbeldis leita reyndar oft síðar á lífsleiðinni til heil- brigðiskerfisins af öðrum ástæðum sem á einn eða annan hátt er hægt að rekja til þessa atburðar." „Rannsóknir sýna að þessar konur leiðast frekar út í neyslu, auknar reykingar og drykkju. Þær leita frekar ít- rekað til lækna vegna allskonar verkja og það kostar mik- ið fyrir heilbrigðiskerfið. Þunglyndi er algengt, kynlífs- vandamál, endurteknar komur til kvensjúkdómalækna, sjálfsmorðstilraunir og sjálfsmorð," segir Eyrún. Þær segja ástæðuna fyrir þessum niðurskurði fyrst og fremst vera vanþekkingu á því starfi sem fer fram innan veggja Neyðarmóttökunnar. Stjórnvöld vita lítið út á hvað þjónustan gengur þar sem þolendur eru „ósýnileg- ir" í samfélaginu. Þessi mál koma lítið fram í réttarkerfinu en í upphafi var eitt af baráttumálunum að tryggja betri réttarstöðu í nauðgunarmálum. En hvað er hægt að gera á þessum erfiðu tímum? „Eitt af því sem við verðum að gera er að höfða meira til ábyrgðar karlmanna. Þeir hafa líka áhyggjur af þessum málum en það heyrir til undantekninga að þeir vilji tjá sig um þau. Með skertri þjónustu og minni umræðu um kyn- bundið ofbeldi og afleiðingar þess er einnig verið að minnka möguleika karlmanna á að taka þátt í umræð- unni. Þeir þurfa líka að taka á sig þá ábyrgð að fræða unga menn um þessi afbrot og afleiðingar þeirra fyrir alla. Það þarf að ala á þeirri tilfinningu karlmanna að þeir eigi að bera virðingu fyrir konum." X 40 / 1. tbl. / 2004 / vera

x

Vera

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.