Vera - 01.02.2004, Blaðsíða 39

Vera - 01.02.2004, Blaðsíða 39
 liður í því að koma sökinni og ábyrgðinni yfir á þann sem er skylt að bera hana, þ.e. gerandann. (79% tilfella er ger- andinn einhver sem þolandinn þekkir, vinur eða kunningi. Stundum hefur þolandinn kynnst viðkomandi sama kvöld og þau verið að skemmta sér saman o.s.frv. Eyrún bendir á að það sem einkenni nauðgunarmál sé að almenningur telji að manneskjan hefði átt að sjá þetta fyrir, að hún hefði átt að passa sig að koma sér ekki í þessar aðstæður o.s.frv. Staðreyndin er hins vegar sú að stelpurnar sjá oft ekki fyrr en eftir á að gerandinn var búinn að undirbúa þetta með því að bjóða henni inn undir fölsku yfirskyni, taka hana af- síðis o.s.frv. Slík vitneskja getur orskað enn meira áfall fyrir þolandann. ( sumum tilfellum eru manneskjurnar ölvaðar og dómgreindin því ekki eins og best verður á kosið. í um þriðjungi mála er um áfengisdauða að ræða þar sem stelp- urnar vakna jafnvel við það að verið er að nauðga þeim og þær geta enga björg sér veitt. ( þessari umræðu er þó mik- ilvægt að átta sig á því að það er sama í hvaða ástandi þol- andinn er, sökin liggur ávallt hjá karlmanninum, en í næst- > um öllum tilfellum er gerandinn karlmaður. Alvarleg eftirköst Sigurlaug segir að grófasta birtingarmynd ofbeldis sé nauðgun. Samkvæmt hegningarlögum sé nauðgun næstalvarlegasti glæpur sem beinist að einstaklingum en morð sá alvarlegasti. Það sem gerir nauðgun að svo gróf- um glæp er að hann er framinn af mannavöldum, viljandi afbrot sem ristir miklu dýpra en önnur áföll. Nauðgun er dæmi um algert virðingarleysi og hefur alvarleg áhrif á sjálfsmynd þolandans. Hún er innrás í líkama annarrar manneskju og misvirðing á sjálfsákvörðunarrétti hennar. Slíkum glæpi má líkja við hnífsstungu í sálina, því ekki er óalgengt að mikil vanlíðan, ótti og öryggisleysi fylgi í kjöl- farið. Oft finnst konum þær vera óendanlega niðurlægðar og upplifa sig sem skítugar og ógeðslegar. Sigurlaug telur að hætta sé á að atburðurinn festist við þolandann ef hann fær enga aðstoð og hjálp. „Konur eiga að geta verið þær sjálfar, farið út að skemmta sér og notið lífsins án þess að eiga á hættu að vera nauðgað. Það er ekkert sem getur réttlætt nauðgun! Það er mjög mikilvægt að konur fái að vita að þær gerðu ^ ekkert rangt." Áhrif nauðgana geta verið mjög langvarandi en birt- ingarform þeirra eru mismunandi. Fyrir nokkrum árum gerði hópur sálfræðinema rannsókn á áfallaröskun þar sem í Ijós kom að yfir 80% þolenda í nauðgunarmálum þjást af áfallastreituröskun. Sigurlaug segirað hún geti lýst sér á margvíslegan hátt, eins og í þunglyndi, almennum kvíða og kynlífsvandamálum. Hin ýmsu einkenni geti haft neikvæð áhrif á daglegt líf fólks, í samskiptum þess og störfum. Það getur reynst þolendum erfitt að leita sér hjálpar og eru þær oft í fylgd maka, foreldra eða nákomins vinar þegar þær koma á Neyðarmóttökuna. Flestum finnst gott að hafa tekið þetta skref því þær fá hlýjar móttökur fagfólks og skilning á því sem hefur átt sér stað. Þá er líka mikilvægt að orð þeirra eru ekki véfengd. „Þolendur geta verið í allskyns ástandi þegar þær leita aðstoðar á Neyðarmóttökunni. Sumar eru rólegar og yfir- vegaðar, aðrar eru drukknar og brotna alveg niður, gráta stöðugt, geta verið mjög ósamvinnufúsar, vilja fá að hvíla sig o.s.frv. Það er mjög mikilvægt að gefa þeim nægan tíma og upplýsa þær um þá þjónustu sem þeim stendur til boða. Fólk meðtekur oftast ekki nema helminginn af því sem því er sagt við fyrstu komu, það þarf að endurtaka það og tala um það aftur og aftur," segir Eyrún. \ Sigurlaug og Eyrún í húsnæði Neyðar- móttökunnar í Fossvogi. FRÁ STOFNUN NEYÐARMÓTTÖKUNNAR 1993 HAFA 1060 MANNS SÓTT ÞJÓNUSTUNA, ÞAR AF 97% KONUR FRÁ 12 - 78 ÁRA ALDURS „Langflestir þolendur koma í endurkomu til okkar 1-2 dögum eftir komuna á Neyðarmóttökuna. Þessi skref eru oftast auðveldari en hin fyrstu því þær hafa hitt okkur áður og vita að við þekkjum til leyndarmálsins. Þær koma af því að þeim líður ennþá hræðilega, eru óttaslegnar og hrædd- ar. Þær eru alltaf fegnar að hafa farið á Neyðarmóttökuna, þótt það hafi verið erfitt, því ótti þeirra við að verða ófrísk- ar eða hafa smitast af kynsjúkdómum er minni. Við veitum þeim áfallahjálp og aðstoðum þær við að takast á við hin margvíslegu einkenni áfallsins. Oft koma foreldrar, makar eða kærastar með og þurfa þau oftast áfallahjálp líka og upplýsingar hvernig þau geti stutt við dóttur sína eða konu. Oft er nauðsynlegt að hafa samband við lögfræðing vegna hugsanlegrar kæru, sálfræðing eða skóla. Stundum þarf að aðstoða þær við að komast á Vog, í Kvennaathvarf- ið eða á Stígamót. Nauðsynlegt er að tilkynna og vera í samstarfi við barnaverndarnefndir séu börnin undir 18 ára vera/l.tbl. /2004/39
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.