Vera - 01.02.2004, Side 26

Vera - 01.02.2004, Side 26
Líðan fólks hefur áhrif á heilsu þess rætt við Margréti Hákonardóttur hjúkrunarfræðing » Niðurskurður á framlagi ríkisstjórnarinnar til heilbrigðismála hefur komið víða við og er skemmst að minnast þess að kvennahreyfingin mótmælti harðlega fyrir- hugaðri skerðingu á starfsemi Neyðarmóttöku vegna nauðgana. Mörg önnur al- varleg dæmi um niðurskurð hafa komið fram og virðist sem þjónusta muni víða minnka, einkum sú sem er óáþreifanleg og byggist ekki á lyfjagjöf eða aðgerðum heldur þáttum sem hafa áhrif á andlega líðan. Starf Margrétar Hákonardóttur hjúkrunarfræðings var lagt niður í kjölfar niðurskurðarins en starfið sem hún hef- ur þróað í 11 ár er dæmigert fyrir hin mjúku gildi. Það felst í því að leiða fólk í djúpslökun á ýmsum deildum spítalans en sú aðferð þykir hafa góð áhrif á líðan fólks og hefur Margrét fundið mælanlegan árangur í aukinni vellíðan og minni kvíða hjá sjúklingum. ELÍSABET ÞORGEIRSDÓTTIR Margrét hefur unnið við hjúkrun frá því hún lauk námi við Hjúkrun- arskóla íslands 1978 og segir að áhugi sinn hafi alltaf beinst að and- Iegri líðan manneskjunnar. Að loknu námi vann hún á barnageð- deild og barnadeildinni við Hring- braut. Hún prófaði að vinna á slysa- deild en vann síðan á Kleppi í fimm ár, bæði á móttökudeild og endur- hæfingardeild. „Þá var ég búin að eignast tvö börn og fékk pláss fyrir þau á barna- heimilinu við Kleppsspítala sem ég var mjög ánægð með,” segir hún. Síðan tók ævintýramennskan við og Margrét flutti með fjölskylduna í eitt ár til Salzburg í Austurríki þar sem hún vann á hjúkrunardeild. Það var árin 1989 og 1990, einmitt þegar hræringarnar voru hvað mestar í Austur-Evrópu og Berlín- armúrinn féll. Þegar heim kom hóf hún störf á nýrri deild, 11E, sem er krabbameins- og blóðsjúkdóma- deild á Landspítalanum og árið 1993 bætti hún við sig námi í geð- hjúkrun við Háskóla íslands. Að komast í tengsl við kjarna sinn Þegar Margrét er beðin að segja frá þróun starfsins sem nú hefur verið ákveðið að leggja niður, rifjar hún upp að haustið 1991 hafi henni boð- ist að vera í hópi hjúkrunarfræð- inga, lækna og annars fagfólks sem lærði klíníska dáleiðslu hjá Jakobi Jónassyni geðlækni í þrjá vetur. „Jakob kenndi okkur slökunarað- ferð sem við gátum notað í starfi okkar til þess að bæta líðan sjúk- linga. Hún byggist á því að hjálpa fólki að slaka á líkamanum, virkja ímyndunaraflið á jákvæðan hátt og gefa mikið af jákvæðum sefjunum. Þessi aðferð opnaði mér nýjar dyr því hún tengist áhuga mínum á líð- an manneskjunnar. Mér fannst að í djúpslökuninni kæmist ég í beint samband við Guð en ég trúi því að í kjarna hverrar manneskju búi kraft- ur sem mikilvægt er að komast í tengsl við. Það var einmitt það sem mér fannst gerast með þessari að- ferð. Ég fékk strax mjög góð við- brögð frá sjúklingunum sem fannst að þeim liði betur og það hvatti mig áfram. Sumarið 1993 talaði ég inn á slökunarspólu sem margir tóku feg- inshendi eftir að hafa verið í slökun hjá mér. Fimm árum síðar bjó ég svo til aðra spólu og nota þar bæn- ina svolítið en það finnst mörgum gott. Frá 1993 hef ég líka kynnt að- ferðina með fyrirlestrum og verk- legri kennslu við hjúkrunarfræði- deild HÍ.“ Margrét byrjaði að nota aðferð- ina með krabbameinssjúklingum og aðstandendunr þeirra þegar hún vann á 11E og fékk leyfi til að leiða líka hópslökun á taugalækninga- deild. Síðan bættist hjartaskurð- deildin við og haustið 1996 hafði slökunarmeðferðin spurst svo vel út að hún var ráðin til að sinna henni í fullu starfi, fyrst með tímabundinni ráðningu þar til hún fékk framtíðar- ráðningu vorið 1998. Eftir það hefur hún sinnt fleiri deildum - sjúkling- um, aðstandendum og starfsfólki, með einstaklingsmeðferð við rúm sjúklinga eða hópmeðferð. í tvö ár vann hún með svokölluðum verkja- hópi sem í voru konur með langvar- andi verki þar sem blandast saman veikindi af líkamlegum, andlegum og tilfinningalegum toga. Eftir með- ferðina töluðu konurnar um betri almenna líðan, sérstaklega tilfinn- ingalega. Hún stuðlaði líka að því, ásamt tveimur öðrum hjúkrunar- fræðingum, að tónlistarrás var komið inn í hljóðkerfi Landspítal- ans við Hringbraut. Þar geta sjúk- lingar hlustað á rólega tónlist og Ijórum sinnum á sólarhring eru leiknar slökunarspólur, m.a. hennar spóla. Margrét hefur alltaf verið trúuð og bænin verið henni eiginleg. Hún 26/ 1. tbl. / 2004 / vera

x

Vera

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.