Vera - 01.06.2004, Síða 9

Vera - 01.06.2004, Síða 9
og eru stressaðir og óöruggir með börnunum sínum, hugsandi hvort konan sé ekki að fara að koma heim og hvað þeir eigi til bragðs að taka ef barnið vaknar. Málið er bara að vera afslappaður og njóta þess að vera með barninu. Ef karlar eru óöruggir þá þarf ekki endilega að vera neitt að pabbanum, þetta er oft bara spurn- ing um að læra á hlutina og afla sér upplýsinga. Þetta er auðvitað frekar nýtt, að pabbar séu að koma svona inn á heimilin og mér finnst það al- veg frábært. Ég held að þetta sé stór liður í jafnréttisbaráttunni. Það mun eflaust hafa áhrif á launamun kynj- anna ef karlar þurfa að vera jafn mik- ið frá og konur vegna barna sinna." Töffarar og bleyjuskipti Sverrir er ekki frá því að með fæðing- arorlofinu muni karlar fara að taka meiri ábyrgð á börnum sínum, líka eftir að orlofinu lýkur. „Eins og ég segi oft í gríni „ég er að passa". Ég held að þetta orðatiltæki hafi komið vegna þess að körlum hafi fundist þeir vera að passa fyrir konurnar sínar og að þeir væru að gera konum sínum ægi- legan greiða með því að sjá um sín eigin börn. En það að karlarnir komi meira inn á heimilin held ég að sé gott fyrir börnin og í raun alla aðila. Þetta er snilldarbreyting. Ég heyri í kringum mig að karlar eru mjög ánægðir með þetta og finnst þetta skemmtilegt." Svo skemmtilega vildi til að góð- vinur Sverris var í orlofi á svipuðum tíma en dóttir hans fæddist hálfum mánuði á undan Mána. „Hann er nýbyrjaður að vinna aft- ur eftir fæðingarorlof. Á meðan við vorum báðir heima hittumst við ÞETTA ER AUÐVITAÐ FREKAR NÝTT, A0 PABBAR SÉU AÐ KOMA SVONA INN Á HEIM- ILIN OG MÉR FINNST ÞAÐ ALVEG FRÁBÆRT. ÉG HELD AÐ ÞETTA SÉ STÓR LIÐUR í JAFN- RÉTTISBARÁTTUNNI. ÞAÐ MUN EFLAUST HAFA ÁHRIF Á LAUNAMUN KYNJANNA EF KARLAR ÞURFA AÐ VERA JAFN MIKIÐ FRÁ OG KONUR VEGNA BARNA SINNA stundum og fórum saman með börn- in niður í bæ ef veðrið var gott að kaupa ís. Við vorum einmitt að gera grín að okkur sjálfum fyrir stuttu, töffararnir frá því áður byrjaðir að tala um bleyjuskipti og börn," segir Sverr- ir brosandi. „Hlutirnir hafa snúist svo- lítið við hjá okkur félögunum." vera / 3. tbl. / 2004 / 9

x

Vera

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.