Vera - 01.06.2004, Qupperneq 14

Vera - 01.06.2004, Qupperneq 14
Jafnrétti fyrir alla » Orðið jafnrétti þýðir „það að hafa jafnan rétt" og er sá réttur ekki ein- skorðaður við jafnan rétt kynjanna. Um þá staðreynd hafa orðið auknar umræður undanfarið, m.a. innan jafnréttisnefndar Reykjavíkur og borgar- kerfisins. Rætt er um að sinna þurfi minnihlutahópum betur og jafnvel víkka hlutverk nefndarinnar þannig að málefni þeirra heyri einnig undir hana. Lausnin er ekki endilega að búa til nýjar nefndir eða embætti í borg- arkerfinu, aðalatriðið hlýtur að vera að mynda heildarstefnu um jafnrétt- ismál, flétta hana inn í alla málaflokka og stefnumótun borgarinnar, og framfylgja henni í verki þannig að hún komi fram í þjónustu við íbúana. VERA ræddi við konur úr hópi þeirra sem um er rætt, þ.e. fatlaðra, samkyn- hneigðra og innflytjenda, um líf þeirra og brýnustu hagsmunamál. * Elísabet Árið 2002 kom upp ágreiningur f jafn- Þorgeirsdóttir réttisnefnd Reykjavíkur um hvernig skilja bæri hlutverk nefndarinnar. Tekist var á um það hvort veita ætti Samtökunum 78 styrk vegna heim- ildamyndarinnar Hrein og bein, sem fjallar um ungt fólk sem er að koma úr felum. Fulltrúar Sjálfstæðisflokks- ins greiddu atkvæði gegn styrkveit- ingunni þar sem þeir tölu hana á „gráu svæði" því skilgreining á hlut- verki jafnréttisnefndarinnar væri: „að tryggja jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna". Töldu þeir nauðsynlegt að skýra enn frekar hlutverk og starfs- svið nefndarinnar og lögðu fram bók- un þess efnis. Segja má að þessi ágreiningur hafi sett af stað þá um- ræðu sem hér er greint frá. Jafnrétti = kynjajafnrétti Sumarið 2003 réð jafnréttisnefndin Berglindi Rós Magnúsdóttur til að gera rannsókn á því hvernig minni- hlutahópar samsama sig jafnrétt- isumræðunni, hvernig innra starfi þeirra er háttað og hvernig þeir vilja haga baráttu sinni í framtíðinni. Mikil- vægt er að hafa í huga að með minni- hlutahópi er ekki átt við fjölda heldur völd en skilgreining á orðinu er: Hóp- ur fólks sem hefur á einhvern hátt skert réttindi, skertan aðgang að samfélag- inu og býr við félagslegt misrétti. í viðræðum Berglindar við for- svarsmenn hópanna kom fram að þeim finnst að jafnréttishugtakið hafi fyrst og fremst verið sniðið að kynja- jafnrétti og telja sökudólgana vera meðal femínista. Þeim finnst umræða um sig vera jaðarsett og að samfélag- ið sinni ekki þeim skyldum sínum að vinna að því að allir hópar njóti mannréttinda. Þau vilja að femínistar og þær stofnanir sem byggðar hafa verið upp í kringum jafnrétti opni dyrnar fyrir fleiri minnihlutahópum og leyfi þeim að njóta góðs af ár- angrinum. Berglind bendir jafnframt á að þessir hópar þurfi að huga að kynjamisrétti innan sinna raða og að staða fólks innan hópanna sé misjöfn. Þannig má benda á að konur eru í minnihluta í stjórn Öryrkjabandalags- ÖLL NEFNDU ATRIÐI í TENGSLUM VIÐ VINNUMARKAÐINN OG SKÓL- ANN OG AÐ NAUÐSYNLEGT VÆRI AÐ BERJAST GEGN DULDU MIS- RÉTTI, FORDÓMUM, ÓSÝNILEIKA OG ÞÖGGUN ins og Samtakanna 78 en meðal inn- flytjenda hafa konur fremur beitt sér í mannréttindabaráttunni heldur en karlar. Ef litið er á þau hagsmunamál sem allir hóparnir eiga sameiginleg og viðmælendur Berglindar bentu á er það viljinn til þess að jafnrétti sé rætt á breiðum grundvelli og að réttar- staðan sé bætt. Öll nefndu atriði í tengslum við vinnumarkaðinn og skólann og að nauðsynlegt væri að berjast gegn duldu misrétti, fordóm- um, ósýnileika og þöggun. Þarf pólitískan vilja Þann 15. maí sl. hélt Jafnréttisnefnd Reykjavíkur málþing undir yfirskrift- inni Minnihlutahópar, kynferði og jafn- rétti. Þar töluðu fulltrúar hópanna sem rætt er um og svöruðu því m.a. hvort þeim fyndist æskilegt að út- víkka starfssvið jafnréttisnefndarinn- ar eða stofna nýjar nefndir til að sinna málefnum þeirra og fá sérstakan jafn- réttisráðgjafa, eins og nú starfar fyrir nefndina en sinnir aðallega kynjajafn- rétti. Almennt töldu fulltrúar samtak- anna ekki nauðsynlegt að stofna nýj- ar nefndir innan borgarkerfisins eða ný embætti en æskilegt gæti verið að fulltrúar hópanna fengju sæti í jafn- . / 2004 / vera

x

Vera

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.