Vera - 01.06.2004, Page 17

Vera - 01.06.2004, Page 17
/ JAFNRÉTTI ÞAÐ HEFUR MARGOFT VERIÐ RÆTT UM AÐ KONUR OG STELPUR SKORTI KVENKYNS FYR- IRMYNDIR, TIL DÆMIS í STJÓRNUNARSTÖÐ- UM. ÞEGAR VIÐ HORFUM TIL KVENNA SEM ERU ÖRYRKJAR EN ERU JAFNFRAMT í MIKIL- VÆGUM STÖÐUM í SAMFÉLAGINU ER STAÐAN AUÐVITAÐ ENN VERRI, FYRIRMYNDIRNAR ERUNÁNASTENGAR Kvennahópur Öryrkjabandalagsins Önnur augljós tenging baráttu öryrkja við femínisma er sú að fjölmargar konur eru öryrkjar. Hingað til hefur Öryrkja- bandalagið ekki beitt sér með skipulegum hætti fyrir sér- stökum málefnum kvenna en breyting er fyrirhuguð í þeim efnum. „Kvennahópur verður formlega stofnaður innan Ör- yrkjabandalagsins í haust. Undirbúningur er í fullum gangi og bandalagið hefur beðið aðildarfélög um að hvetja kon- ur til þátttöku. Það er stundum rætt um það að konur sem eru öryrkjar séu í raun tvöfaldur minnihlutahópur, bæði konur og öryrkjar. Bandalagið samanstendur af fólki úr mjög ólíkum áttum sem við fyrstu sýn virðist kannski eiga fátt sameiginlegt. Innan hvers aðildarfélags er sameining- argrundvöllurinn sterkari, þar hittist fólk sem er með sama sjúkdóm eða sömu fötlun. Innan Öryrkjabandalagsins leiða hinsvegar ólíkir einstaklingar, með ólíka sjúkdóma eða fatlanir saman krafta sína. I kvennahópnum er gert ráð fyrir að konur með geðfatlanir, blindar og í hjólastól, svo einhver dæmi séu nefnd, geti borið saman bækur sínar og styrkt hver aðra. Með stofnun kvennahópsins erum við að búa til samstarfsvettvang fyrir þennan mjög svo ólíka hóp kvenna sem starfar innan bandalagsins. Þegar allt kemur til alls er ýmislegt sem við hljótum að eiga sameiginlegt. Það eru ákveðin mál sem brenna á konum sem eru öryrkj- ar. Eitt af þeim er æsku- og fegurðardýrkun samfélagsins. þannig eru þær rændar möguleikanum á að sinna hinu viðtekna kvenhlutverki. Viðhorfum af þessu tagi er brýnt að breyta og það eitt og sér verður ærið verkefni. Kvenna- hópurinn á að vera vettvangur fyrir konur til að koma saman og bera saman bækur sínar. Hlutverk hans á einnig að vera að finna hvaða málefni það eru sem brenna á kon- um innan Öryrkjabandalagsins og hvar það er sem skóinn kreppir í baráttunni að þeirra mati." Þorum, getum, viljum Steinunn nefnir einnig annað mál sem mjög hefur brunn- ið á kvennahreyfingunni í gegnum árin en það er skortur á fyrirmyndum í þjóðfélaginu. „Það hefur margoft verið rætt um að konur og stelpur skorti kvenkyns fyrirmyndir, til dæmis í stjórnunarstöðum. Þegar við horfum til kvenna sem eru öryrkjar en eru jafnframt í mikilvægum stöðum í samfélaginu er staðan auðvitað enn verri, fyrirmyndirnar eru nánast engar. Eins eru þær myndir sem dregnar eru upp af fötluðum í fjölmiðlum og afþreyingarefni mjög ein- hæfar, fólk með fötlun er sýnt sem hjálparþurfi og óvirkir þiggjendur. Við þurfum virkilega að gera heiminum grein fyrir því að öryrkjar eru gerendur í sínu lífi en ekki þolend- ur." Steinunn nefnir að hún telji reyndar ekki vanþörf á því að stofna einnig karlahóp. Á sama hátt og útlits- og fegð- FÓLK ER FARIÐ AÐ ÞORA AÐ KOMA ÚT ÚR SKÁPNUM SEM ÖRYRKJAR EF SVO MÁ SEGJA. FYRIR ÞAU SEM EKKI HAFA SYNILEGA FÖTLUN ER SVO AUÐVELT AÐ SKILGREINA SIG SEM EITTHVAÐ ANNAÐ EN ÖRYRKJA OG SLEPPA ÞVÍ AÐ SÝNA SAMSTÖÐU OG BERJAST SEM HEILSTÆÐUR HÓPUR Fötluðum konum finnst þær oft passa illa inn í viðtekna staðla. Eins og femínistar hafa verið dugleg að benda á geta staðalmyndir af þessu tagi haft afar mikil áhrif á mót- <$ un sjálfsmyndar og það hvernig einstaklingar og hópar upplifa stöðu sína í samfélaginu." Talið berst að hinum hefðbundnu kynhlutverkum og staðalmyndum samfélagsins sem Steinunn Þóra telur að séu enn í fullu fjöri og komi sérstaklega illa við konur sem eru öryrkjar. „Sumir vilja meina að æðsta hlutverk kvenna sé að vera mæður og móðurhlutverkið er oft tengt sjálfs- myndarsköpun kvenna. Fatlaðar konur eru hinsvegar oft álitnar vanhæfari en aðrar konur til að verða mæður og urðarstaðlar séu heftandi fyrir konur hljóti krafan um hinn sanna karlmann að standa körlum innan Öryrkjabanda- lagsins fyrir þrifum. Það séu ýmis mál sem snúa að körlum, karlmennsku og fötlun sem þyrfti að taka til skoðunar. Umræðan opnast En hvað með viðhorfm í þjóðfélaginu til jafnréttisbaráttu öryrkja? Hefur málaflokkurinn fengið nægilega athygli að mati Steinunnar? „Staða öryrkja í þjóðfélaginu er að mörgu leyti að batna. Ýmis réttindamál hafa náð fram að ganga á síðast- liðnum árum, ekki sist hvað varðar kjör öryrkja þó þau séu 4

x

Vera

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.