Vera - 01.06.2004, Blaðsíða 28
Að eiga eða eiga ekki bíl
» Óhætt er að fullyrða að flestum þeim sem byggja þetta land, og þá
einkum á höfuðborgarsvæðinu, þyki mun ákjósanlegra að fara ferða
sinna á einkabíl heldur en að notfæra sár almenningssamgöngur. Það
kostar hins vegar drjúgan skilding að vera á einkabíl, einkum um þess-
ar mundir þegar bensínverð er mjög hátt. Þá er að sjálfsögðu ótalinn
kostnaður við að fjármagna bílinn en þar er hægt að fara ýmsar leiðir.
Fjármögnunarleiðum hefur fjölgað í gegnum árin og er nú
að öllu jöfnu um þrjá möguleika að ræða fyrireinstaklinga
sem fjárfesta í nýjum bílum: bílalán, bílasamninga og
einkaleigu. Þeir aðilar sem lána til bílakaupa eru fjármögn-
unarleigur og tryggingafélögin. Það sem hefur helst borið
til nýjunga síðustu árin er að farið var að bjóða upp á það
sem samsvarar leigu á bílum. Þá er einnig nýmæli að farið
er að bjóða upp á lán í erlendum myntum til bílakaupa.
Vextir á slíkum lánum eru lægri en þeim sem eru einungis
í íslenskum krónum en hins vegar ber lántaki áhættuna af
þróun gjaldmiðla. Flægt er að fá lánað allt að 100% af
kaupverði bílsins sem veltur meðal annars á því hvort um
er að ræða nýjan eða gamlan bíl.
Bílalán
Þetta er í raun elsta form fjármögnunar til bifreiðakaupa
en þá er veitt lán gegn veði í bílnum og er kaupandi skráð-
ur eigandi bílsins frá upphafi. Flægt er að fá lánað allt að
75% þó svo að það geti verið lítilsháttar munur á hámarks-
lánsfjárhæð á milli fyrirtækja.
Bílasamningur
Þessi möguleiki er til staðar sé leitað til fjármögnunarleigu
en þá er það hún sem kaupir bílinn og leigir hann við-
skiptavini sínum á samningstímanum. I lok samningstím-
ans verður bíllinn eign viðskiptavinarins. Útborgun nem-
ur að lágmarki 20% af kaupverði og er oftast miðað við að
lengd samningstíma verði allt að 84 mánuðir.
Einkaleiga
(tilviki einkaleigu er það fjármögnunarleigan sem kaupir
bílinn sem svo leigir viðskiptavini sínum bílinn og eru
greiddar ákveðnar leigugreiðslur á samningstímabilinu. í
lok leigutímans er hægt að velja um að kaupa eða skila
bílnum. Leigutíminn er að öllu jöfnu frá 12 til 36 mánuðir
og þarf leigutaki að greiða tryggingafé sem er greitt út í
lok leigutímabils.
Kjör
Fjármögnunarleigufyrirtækin, sem eru öll í eigu banka,
bjóða viðskiptavinum þess banka hagstæðari kjör og það
sama á við um tryggingafélögin sem bjóða ákveðnum
hópi viðskiptavina sinna afslætti af kostnaði við töku lán-
anna. í öllum tilvikum eru breytilegir vextir á lánunum og
er boðið upp á lán í bæði innlendum og erlendum mynt-
um. Þá er einnig misjafnt hvort um er að ræða óverð-
tryggð eða verðtryggð lán en sé lánstími undir fimm árum
er einungis hægt að fá óverðtryggð lán. Stimpilgjald er
einungis greitt af bílaláni sem nemur 1,5% af lántökuupp-
hæð. Þá er lántökugjald greitt af bílaláni og -samningi sem
getur numið 2,5% til 3,5% af lántökuupphæð. Loks er svo
greitt greiðslugjald með hverri greiðslu.
Hjólað ívinnuna?
Það er náttúrulega ódýrast og hverjum manni hollast,
miðað við umræðu um holdafar þjóðarinnar upp á
síðkastið, að ganga eða hjóla þangað sem för er heitið svo
framarlega sem fjarlægðin erekki þeim mun meiri. Af eig-
in reynslu veit ég þó að það er illmögulegt fyrir manneskju
sem þarf að koma börnum í leikskóla og til dagmömmu
áður en mætt er á réttum tíma í vinnu í grennd við miðbæ-
inn úr Grafarvogi. Ég og fjármögnunarleigan verðum því
að njóta góðs af hvor annarri meðan þessi staða varir.