Vera - 01.06.2004, Qupperneq 45

Vera - 01.06.2004, Qupperneq 45
um viljann til að laga stöðuna segir hún að fólk þurfi ekki að vera sam- mála um annað en að til séu hæfar konur til að gegna stjórnendastöð- um, enda séu þær jafn vel menntað- ar og jafn góðir stjórnendur og karl- ar. „Með því að birta kynjakennitöl- ur held ég að væri hægt að mynda þrýsting á fyrirtækin og hvetja kon- ur til að sniðganga þau sem reyna ekki að breyta þessu. Það var gaman að heyra gestinn okkar, Nadine Strosser, segja frá Catalyst samtök- unum í Bandaríkjunum sem gera einmitt þetta, þ.e. birta tölur um stöðu kvenna innan fyrirtækja. Upplýsingar urn samtökin má nálg- ast á heimasíðunni: www.cata- lystwomen.org. Þetta er ekki allt í lagi Ingibjörgu finnst óþolandi að hlusta á fyrirtækjastjórnendur sem segja að jafnréttismálin séu í fínu lagi hjá þeim þótt engin kona sé í stjórn- endastöðu. Hún telur að taka þurfi upp kennslu í jafnréttismálum í við- skiptaskólunum og að fræða þurfi stjórnendur um að þeir þurfi að fara ÉG FÓR AÐ HUGSA UM ÞAU VÖLD SEM VIÐ HÖFUM MEÐ NEYTENDAHEGÐUN OKKAR OG FRELSINU TIL AÐ VELJA STÖRF EÐA ATVINNUREKENDUR. VIÐ HÖFUM VALD TIL AÐ BEINA VIÐSKIPTUM OKKAR TIL FYRIRTÆKJA SEM STANDA SIG í JAFNRÉTTISMÁLUM... að lögum, það sé rekstri fyrirtækj- anna benlínis í hag að hætt sé með- vitaðri og ómeðvitaðri mismunun á grundvelli kynferðis. „Þegar ég vann við starfsmanna- stjórnun hjá bresku fýrirtæki sá ég hvað þeir eru komnir mikið lengra en við í því að hugsa faglega um jafnréttismál enda þurfa þeir að verjast kærumálum og geta sannað að þeir hafi ekki mismunað um- sækjanda á ómálefnalegum forsend- um. Þeir hafa því komið sér upp að- ferð við að skrá ráðningarferlið og taka út breytur sem mega ekki hafa áhrif, t.d. er hætt að óska eítir myndum af umsækjendum til að kynþáttur hafi ekki áhrif og fólk á ekki að taka frarn hvort það sé Mr. eða Mrs. til að kynferði hafi ekki áhrif á það hverjir komast í atvinnu- viðtal. Aðhald hins opinbera felst einnig í því að fyrirtæki geta þurft að skýra það ef hlutfall ólíkra kynþátta á svæðinu endurspeglast ekki í fjöl- breytileika starfsfólks fyrirtækisins. Ég er nú síður en svo að halda því fram að jafnréttismál séu í betra horfi í Bretlandi en hérlendis en ýmsar athyglisverðar aðferðir í starfsmannstjórnun gætunr við að skaðlausu skoðað nánar. Ég finn að það er kominn pirr- ingur og óþol í konur gagnvart þeirri staðreynd að svo fáar konur komist áfram í viðskiptalífinu því þær vita að það er til fullt af hæfum konurn sem bæði geta og vilja taka að sér ábyrgðarstörf. Sjálf á ég orðið erfitt með að sætta mig við þetta, sérstaklega þegar sagt er að þetta sé allt í lagi eða að þetta sé alveg að lag- ast. Mér fannst sú góða mæting sem var á ráðstefnuna Völd til kvenna - tengslanet sýna að konur eru til í að gera eitthvað í málunum og vona að við séum bara rétt að byrja,“ segir Ingibjörg að lokum. X Hugmyndaríkar konur... Impra - nýsköpunarmiðstöð heldur námskeiðið ... athugið! Brautargengi fyrir konur sem vilja hrinda viðskiptahugmynd í framkvæmd og hefja eigin atvinnurekstur. Markmið námskeiðsins er að þátttakendur: • skrifi viðskiptaáætlun • kynnist grundvallaratriðum stofnunar fyrirtækis o> • öðlist hagnýta þekkingu á þeim þáttum sem koma að fyrirtækjarekstri, s.s. stefnumótun, markaðsmálum, fjármálum og stjórnun. BRAUTARGENGI Námskeiðið byggist upp á fyrirlestrum, verkefnatímum og persónulegri handleiðslu. Kennt er frá sepfembertil desember, einu sinni í viku í 5 tima í senn. Kennslustadir: Reykjavík og Akureyri og fleiri staðir á landsbyggðinni ef næg þátttaka fæst. (?) Nánari upplýsingar og skráning eru hjá Impru, Iðntæknistofnun, í símum 570 7267, 570 7100 eða á si@iti.is. Skráningu lýkur 13. ágúst n.k. Takmarkaður fjöldi. impra nýsköpunarmiðstöð Iðntæknistofnun Þátttakendur á Brautargengi eru styrktir af eftirfarandi sveitarfélögum: Reykjavík, Kópavogi, Hafnarfirði, Mosfellsbæ, Bessastaðahreppi, Seltjarnarnesi og Akureyri.

x

Vera

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.