Vera - 01.06.2004, Qupperneq 48
fc* DR. ROBERT JENSEN Dr. Robert Jensen er prófessor ífjölmiðlun við
ÞÝÐING: BÁRA MAGNÚSDÓTTIR Texasháskóla í Austin. Hann er höfundur bók-
arinnar Citizens ofthe Empire: The Struggle to
Claim Our Humanity (Þegnar heimsveldisins,
baráttan við að endurheita mennsku okkar)
og einn höfunda að Pornography: The Pro-
duction and Consumption oflnequality (Klám:
Framleiðsla og neysla ójafnréttis). Greinin „A
Cruel Edge" birtist í vorhefti Ms. 2004 og er
birt hér með leyfi höfundar.
Ystu mörk
grimmdarinnar
Hinn sársaukafulli sannleikur um klámið í sam-
tímanum og hvernig karlmenn geta brugðist við
»Þriggja tíma erfiðri málstofu um klám er að Ijúka. Konurnar 40 vinna allar í
miðstöð sem sinnir konum sem hafa orðið fyrir nauðgun eða heimilisofbeldi.
Þetta eru konur sem eru í fremstu víglínu, þær sem svara í neyðarsíma sem opinn
er allan sólarhringinn og veita stuðningsviðtöl. Þetta eru konur sem hafa séð allt
og heyrt allt. Það er engin leið að toppa sögurnar sem þær kunna um ofbeldi
karla. En eftir þrjár klukkustundir af upplýsingum, greiningu, og umræðum um
klám sem markaðssett er fyrir gagnkynhneigða, eru margar þessar konur úr-
vinda. í herberginu er dapurleiki ríkjandi. Undir lokin tekur ein kona, sem fram
að því hafði verið þögul, til máls. Meðan á málstofunni stóð hafði hún vafið
handleggjunum utan um sjálfa sig. Núna loksins talar hún. „Þetta er sárt," segir
hún. „Þetta er svo sársaukafullt."
'l'
Þetta er sárt.
Það er sársaukafullt að vita að það skiptir engu hver þú
ert, að það er hægt að smækka þig niður í hlut til að stinga
í, að karlmenn kaupa myndir um slíkt og að í mörgum
þessara mynda er niðurlæging þín meginþemað. Það er
sársaukafullt að vita að girnd og grimmd renna saman í
eitt í miklu af því klámefni sem karlmenn kaupa.
Meira segja þessar konur, sem eiga dagleg samskipti
við þolendur allskyns ofbeldis af hálfu karla, eiga erfitt
með þessa tilhugsun. Það er eitt að glima við athafnir
karla. Annað er að horfast í augu við hugsanirnar, hug-
myndirnar og kynórana sem liggja að baki þessum athöfn-
um og kynlífi karla.
Oft gerir fólk ráð fyrir að klám sé svo erfitt mál og um-
deilanlegt vegna þess að það fjalli um kynlíf. Ég held að
það sé rangt. Menning okkar á erfitt með klám vegna þess
að það snýst líka um grimmd karla gagnvart konum og á-
nægjuna sem karlar fá stundum út úr þeirri grimmd. Og
það er mun erfiðara fyrir fólk, karla og konur, að horfast í
augu við slíkt.
Klám sem nýtur almennra vinsælda
Til eru nokkrar gerðir klámmynda en rannsóknir mínar síð-
astliðin sjö ár á klámmyndum sem fáanlegar eru á mynd-
böndum hafa miðað við þær sem eru gerðar fyrir gagn-
kynhneigðan markhóp og njóta almennra vinsælda. Þá á
ég við myndbönd og DVD sem fást víða í Bandaríkjunum
og eru markaðssett sem kynferðislega opinská (almennt
kölluð 'hardcore'), leigð eða keypt að mestu leyti af karl-
mönnum og sýna kynlíf fyrst og fremst milli karla og
kvenna. Kynlífssenurnar eru ekki leiknar: það sem gerist á
skjánum fór fram í raun og veru. Þetta klám, sem nýtur al-
48 / 3. tbl. / 2004 / vera