Vera - 01.06.2004, Blaðsíða 57
Repúblikaflokkurinn, hægri sinnaður íhaldsflokkur, stjórn-
ar öllum þremur stigum stjórnkerfisins;framkvæmdavald-
inu, löggjafarvaldinu og dómsvaldinu. Sú staða hefur leitt
til þess að fóstureyðingarétturinn hefur verið skertur tölu-
vert síðustu árin. Nú eru í gildi í ýmsum fylkjum Bandaríkj-
anna lög sem krefjast sérstaks biðtíma og jafnvel ákveðins
fjölda heimsókna til læknis áður en konum er leyft að fara
í fóstureyðingu. Önnur ríki leyfa ekki fóstureyðingar ungra
kvenna nema með leyfi foreldra. Og fátækum konum er
gert mjög örðugt að fá fóstureyðingu þvi sett hefur verið í
lög að ekki megi nýta fjárstuðning frá ríkinu til fóstureyð-
inga og því hafa margar konur hreinlega ekki efni á þeim.
Ný lög vega að réttinum til fóstureyðinga
Tvær lagasetningar tóku síðan gildi á síðastu mánuðum
sem báðar hefta réttinn til fóstureyðinga. Á síðasta ári,
2003, samþykkti alþingi Bandaríkjanna lög sem nefnd eru
„Partial-Birth Abortion Ban Act of 2003" sem er algjört
bann við fóstureyðingum á síðustu vikum meðgöngu.
Þessi lög eru fyrsta lagasetningin sem gerir eina einstaka
læknisaðgerð ólöglega. Lögin innihalda engar undan-
tekningar, jafnvel þó að líf móðurinnar eða heilsa sé í
hættu, og andstæðingar benda á að orðalag þeirra sé það
óljóst að hægt sé að túlka þau sem svo að læknar geti
hvenær sem er tekið ákvörðun fyrir konur hvort eyða eigi
fóstri eða ekki.
Önnur lagasetning tók gildi 1. apríl á þessu ári. Þessi
lagasetning, „Unborn Victims of Violence Act" (sem ef til
vill væri hægt að snara á íslensku sem „lagasetning hinna
ófæddu fórnarlamba ofbeldis") gefa fóstri í maga móður
sömu réttindi og einstaklingi. Þessi lög vega óbeint að
fóstureyðingaréttinum því að ef morðingi ófrískrar konu
getur verið dæmdur fyrir morð á fóstri, þá kemur ekkert í
veg fyrir að fóstureyðingalæknir geti verið ákærður fyrir
sama glæp.
Réttur kvenna yfir eigin líkama
Kröfugangan 25. apríl síðastliðinn var haldin fyrst og
fremst til að til að minna alla Bandaríkjamenn á að nauð-
synlegt sé að halda áfram að berjast fyrir rétti kvenna yfir
eigin líkama og til þess að virkja yngri kynslóðina í þeirri
baráttu. Ýmsar þekktar konur héldu ræður í göngunni, svo
sem leikkonurnar Julianne Moore, Kathleen Turner,
Whoopi Goldberg og Susan Sarandon, stjórnmálakonurn-
ar Hillary Clinton og Madeline Albright, og þekktar kven-
réttindakonur eins og Gloria Steinem. Einnig tóku alþjóð-
legar sendinefndir frá yfir sextfu löndum þátt í göngunni
en þessi barátta er síður en svo innanríkismál Bandaríkj-
anna, nú þegar Bandaríkjastjórn hefur hætt öllum fjárveit-
ingum til alþjóðlegra hjálparstofnana sem hjálpa konum
að fá fóstureyðingu.
GANGAN VAR EKKI HALDIN UNDIR FORMERKJUM EIN-
STAKS STJÓRNMÁLAFLOKKS EN GREINILEGT VAR AÐ
HÚN BEINDIST EINKUM GEGN FORSETA BANDARÍKJ-
ANNA, GEORGE W. BUSH, OG STJÓRN HANS. SÍÐAN
BUSH TÓK VIÐ VÖLDUM FYRIR ÞREMUR ÁRUM HEFUR
STJÓRN HANS BEITT SÉR FYRIR LAGABREYTINGUM SEM
SKERÐA RÉTT KVENNA TIL FÓSTUREYÐINGA
Bush forseti var ekki í Washington þegar gangan var
gengin að Hvíta húsinu en talsmaður hans lét hafa eftir sér
að forsetinn tryði því að Bandaríkjamenn ættu að vinna að
því að byggja „líf-menningu" í Bandaríkjunum og að
„hvort sem við styðjum fóstureyðingar eður ei þá getum
við unnið saman að því að fækka þeim með því að styðja
námsskrár sem leggja áherslu á kynlífsbindindi í stað
fræðslu um kynlíf, með því að styðja lög sem krefjast að
foreldrar séu látnir vita af fóstureyðingum ósjálfráða ung-
linga og með því að styðja bann við fóstureyðingum á síð-
ustu mánuðum meðgöngu."
Roe No More
Kannski er það kaldhæðni örlaganna að Roe sjálf, konan
sem réttur bandarískra kvenna til fóstureyðinga er kennd-
ur við, er nú orðin harður andstæðingur fóstureyðinga.
Roe, sem réttu nafni heitir Norma McCorvey, var 21 árs
þegar hún var beðin um að vera lykilmanneskja í lögsókn
sem tveir lögfræðingar frá Texas höfðuðu til að fella úr
gildi bann við fóstureyðingum. McCorvey, sem þá var
ólétt í þriðja skiptið, féllst á það. Hún fór aldrei sjálf í fóst-
ureyðingu þar sem lög Texas fylkis leyfðu það ekki og gaf
þriðja barn sitt til ættleiðingar. Næsta áratuginn flakkaði
McCorvey frá einu láglaunastarfinu í annað þar til hún
kom fram opinberlega á níunda áratugnum og kvaðst
vera Roe. Hún öðlaðist nokkra frægð og fékk starf í fóstur-
eyðingamiðstöð í Dallas. Skipulögð mótmæli andstæð-
inga fóstureyðinga fóru reglulega fram í kringum stöðina
og McCorvey kynntist forsprakkanum (reglulegum reyk-
pásum sínum fyrir utan húsið. Þau tóku tal saman og það
endaði með því að McCorvey lét endurskírast til kristinnar
trúar árið 1995. Nú hefur McCorvey stofnað sinn eiginn
kirkjusöfnuð sem ber heitið „Roe No More" eða „Ekki leng-
ur Roe" og berst gegn fóstureyðingaréttinum sem ber
nafn hennar.
Greinin er byggð á greinum úr The New York Times og CNN
og úrgögnum NOW, National Organization for Women X
vera / 3. tbl. / 2004 / 57