Akranes - 01.04.1957, Síða 9
stað og mikilsverða fyrirgreiðslu, hefur
stúkan rekið þarna fræðslustarf og hollar
skemmtanir fyrir gestina. Hefur allt þetta
verið innt af hendi með svo miklum
ágætum, að sjómemi og útgerðannenn
víðsvegar að af landinu studdu þessa
starfsemi og þökkuðu með ríflegum íjár-
framlögum, sérstaklega meðan aðsókn var
þarna mest, þ. e. meðan sildin var árviss
og meiri fjöldi sótti Siglufjörð þess vegna
heim, en hin siðustu aflaleysisár.
Til þessa mikilsverða starfs hafa marg-
ir félagar lagt fram mikið og óeigin-
gjarnt starf og mikla vinnu og umhyggju.
Hvort tveggja hefur það verið vel þegið
og unnið markvíst gagn. Má þar fyrst
til nefna þá menn, sem lengst hafa haft
stjóm heimilisins á . hendi, þá Pétur
Björnsson, Andrés Hafliðason og séra
Óskar Þorláksson. 1 stað séra Óskars mun
eftirmaður hans hafa starfað, séra Krist-
ján Róbertsson, meðan hann var prestur
á Siglufirði. Forstöðukona heimilisins
mun lengst hafa verið frú Lára Jóhanns-
dóttir. Við það mimu og þessir karlmenn
hafa nokkuð starfað: Friðrik Hjartar,
Páll Jónsson, sem nú starfar við Bóka-
búð Æskunnar, og nú síðast — og lengi
— Jóhann I3orvaldsson kennari.
Þetta sýnir, að Góðtemplarar liafa
verið liðtækir og vakandi menn um
menningarlega viðleitni í lífi Siglfirðinga.
Þetta er þó sem betur fer ekki hið eina
sem Góðtemplarareglan hefur lagt til á
þessu sviði með þjóðinni, frá því að hún
nam hér land á 9. tug síðustu aldar- I
fjölmörgum kaupstöðum og um byggðir
landsins hefur þessi merki félagsskapur
verið merkisberi menningarinnar. Sú sér-
stæða saga hefur enn ekki verið skráð
til neinnar hlýtar, en hún er margþætt
og merkileg og kemur víða við.
AKRANES
★ Skólamál.
Barnaskóli er fyrst settur á fót í Siglu-
firði 1883, og voru þá 12 böm í skól-
anum. Fyrsti kennari skólans í nokkur
ár var Helgi Guðmundsson læknir þeirra.
Árið 1899 var fyrst byggt skólahús niður
á Eyrinn,, allgott hús, en 1913 var enn
byggt nýtt skólahús, steinsteypt og sæmi-
lega vandað. Ái'ið 1917 voru 90 böm í
skólanum, en nú eru þau 436. Lengst
af var þar skólastjóri frú Guðrún Bjöms-
dóttir bónda á Kornsá, myndar- og dugn-
aðarkona, sem mjög lét sér annt um
skólamál bæjarins og stjórnsöm vel. Um
mörg ár var þar einnig skólastjóri Frið-
rik Hjartar, ágætur og áhugasamur skóla-
maður, samvizkusamur og ólatur maður,
sem kunni vel sitt verk, léttur og lið-
legur, ágætur söngmaður og félagsmaður
yfirleitt.
Um tima var þar skólastjóri Guðmund-
ur Skarphéðinsson, einnig ágætur skóla-
maður. Núverandi skólastjóri er Hlöðver
Sigurðsson.
Alllengi hefur þar og starfað Gagn-
fræðaskóli, og mun það vera allgóður
skóli. Fyrsti skólastjóri hans mun hafa
verið Jón Jónsson frá Völlum í Svarfað-
ardal, þá Jóhann Jóhannsson cand. theol.
Meðal kennara við skólann munu þessir
hafa verið: Guðbrandur Magnússon, Haf-
liði Guðmundsson og séra Óskar Þorláks-
son, sem var þar lengi stundakennari.
★ Lokaorð um liðtæka menn.
Þrátt fyrir ýmsa vaxtarverki er fylgja
ört vaxandi bæjum, svo og þá erfiðleika
sem afturkippur í atvinnulífinu orsakar,
er margt merkilegt við þennan aðalsíldar-
bæ. Hér áður hefur aðeins verið minnst
á heimilislíf á Siglufirði. Hygg ég að þar
sé víða um nokkuð trausta heimilismenn-
77
L