Akranes - 01.04.1957, Page 11

Akranes - 01.04.1957, Page 11
Benidikt Gíslason frá Hofteigi: Þorgerður « Hrnunfelli Ég átti að fara út að Refsstað, em- hverra erinda. Það var vor og sólskiin. Ég man svo fátt úr bernzku minni, nema það sé vor og sólskin. Mér komu svona sendiferðir illa. Ég var feiminn að upplagi, og vegna þess- arar feimni var ég klaufi í máli, en er- indin varð ég að gjöra svo vel að reka upp á minn eigin persónuleik. Á eftir gagnrýndi ég mig vægðarlaust fyrir klaufaskapinn, og stóð oft undir þungum dómi samvizkunnar. Nú var líka svo virðulegt fólk á Refsstað, systkinin frá Grænavatni, og bjuggu í nýsmíðuðu húsi, sem ég hafði horft á rísa, fjöl eftir fjöl, af grunni, og heyrt í hamrinum, högg eftir högg, festa það saman- Ég gekk út götuna, 8 eða 9 ára, langur, niðurlútur og kvíðafullur yfir því, að klaufaskap- urinn tæki mig nú í karphúsið, eins og oftar. Ég var að búa til spaklegan sam- setning af orðum, sem áttu að duga er- indi mínu, og er kominn út í djúpu götuna í mónum, fram hjá gömlu kví- unum, er ég lít upp. Stutt frá mér kem- ur kona eftir götunni. Hún situr á jarp- skjóttum hesti, .sem var mikil myndar- skepna. Hún er lág i sætinu, og nokkuð samandregin i herðum. Hún situr í djúpum söðli og hefur báða fætur i fótaskörinni. Ég þekkti konuna strax. Ég stíg út úr götunni, sunnanmegin, og býst að halda ferð minni áfram eftir vanalegar kveðjur. Hún stanzar hestinn og tekur mig tali. Eiginlega talaði hún __________________________________________/ þó ekki nema með vinsamlegu látbragði, sem virtist allt hniga að því að athuga mig ofan í kjölinn af hinni mestu góð- vild- Hún brosti við mér, en það var eitt- hvað stirt og staðnað í brosinu, einhver alvara í ætt við speki og ábyrgð. Ég kann- aðist við þetta. Þetta var svo líkt gömlu hjónunum á Egilsstöðum, Jóni og Aðal- björgu, enda er hún nú á líkum aldri og þau. Hún er fríð kona, þó hún sé orð- in þetta gömul, frekar skammleit og skarpleit, ennið aftur dregið og nefið hátt, en munnbragð og haka nett og smáfrítt. Það bar af hvað hún var hreinleg og björt yfirlitum, það var eins og hún hefði aldrei gert annað en þvo sér um dagana. Nú brosti hún við mér móti suðurátt- inni, þvegin af vorblómum og signd af sólinni, með djúpan góðleik í augunum, og alvöruþrunginn velspár anda í þvi sem hún sagði. Á höfðinu hafði hún hina algengu höfuðprýði kvenna, skotthúfuna, og lét hana sitja allframarlega yfir skiptu hári í miðju höfði. Samt gengu fram und- an henni lokkarnir, rauðgulir, og gljá- andi og öðru megin drógust þeir í mjúk- ar bylgjur yfir þunnvanganum- Ég stóð eins og dæmdur, feiminn og skilningssljór, athugull eins og ég var vanur, gleymdi engu eins og ég var van- ur. Þá þrifur hún til vasans á reiðpils- inu, og lyfti því upp, svo ég sá hvar fæturnir í svörtu, brydduðu .sauðskinns- skónum hvildu á fótaskörinni á söðlinum. Hún dró upp klút úr vasanum, rakti AKRANES 79

x

Akranes

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Akranes
https://timarit.is/publication/865

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.