Akranes - 01.04.1957, Síða 15
Þetta datt mér í hug, er ég hafði lesið
hina afburðasnjöllu ritgerð Kristjáns Al-
bertssonar í Morgunblaðinu 30. apríl s. 1.,
Um Brekkukotsatnnál og sitthvað fleira.
Kristján er svo víðlesinn, að ekkert
sem verulegu máli skiptir í blöðum eða
bókmenntum heima eða heiman fer fram
hjá honum. Hann er jafnan prúður og
faguryrtur, með viðfeðma innlifun og
aðdáun á töfrum tungunnar. Skýrmæltur
er hann og skorinorður, er hann bendir
sóðum eða sjálfbyrgingum á það sem hjá
þeim skyggir á þennan töfrasprota hins
gamla norræna máls. Skapheitur er hann,
þegar hann segir mönnrnn til syndanna,
er þeir vaða á örgustu rosabullum inn í
þennan helgidóm. Þó er hann svo spakur
að viti, að ekki er lengra gengið, en að
hvert orð hittir i mark, og verður að heil-
steyptri sókn eða öruggri vöm, sem auð-
velt er að dæma eftir. Allaf er ísland
efst í huga, á oddinum til sóknar eða
varnar. Fjærri Islandi, en þó öllum
stundum þar. I lífi og starfi, i máli og
mennt- Verjandi land og þjóð, sækjandi
fram fyrir þess hönd og heiður.
Ekkert land í víðri veröld er undir
slíkri heillastjömu sem fsland. Fjaður-
magnaðir fullhugar og vitrir menn fleiri
og færri lifandi og starfandi á hverri öld.
„Veit þá enginn, að eyjan hvíta
átt hefir sonu fremri vonum“ —
„Veit þá enginn, að eyjan hvíta
á sér enn vor, ef fólkið þorir
Guði að treysta, hlekki hrista,
lilýða réttu, góðs að bíða?
Fagur er dalur og fyllist skógi
og frjálsir menn, þegar aldir renna;
skáldið hnígur og margir í moldu
með honum búa,— en þessu trúið!“
Þessi trú og tignu töfrar, veitir þann
styrk, sem verður að sigurafli í lífi þjóð-
arinnar og starfi. Það varðar veginn, svo
að henni veitist létt að veita öðrum þjóð-
um ekki minna en til þeirra er sótt. —
Islendingar þurfa ekki að vera neinir
ölmusumenn, ef öfund og argaþras gerir
þá ekki að óvirkri þjóð og athlægi gagn-
vart umheiminum.
Mér þykir rétt að þessi kveðja og þakk-
arorð fylgi hér mynd af Kristjáni Al-
bertssyni, sem átti að fylga næst síðasta
hefti, er hanns var minnst í sambandi
við Albertshús.
Þinn vinur,
Öl. B. Björnsson.
83
AKRANES