Akranes - 01.04.1957, Page 21

Akranes - 01.04.1957, Page 21
Aðalsteinsdóttur íór því ekki íram hjá ráðherranum, svo einlæg og traust voru stúdentsáratengslin frá Höfn við þessa göfugu konu, sem þeim var svo heimis- ins undur góð. Hannesi var vel kunnugt um mennt- un ungfrú Guðrúnar. Nú vaintaði hann alveg sérstaklega ungt fólk til starfs, sem væri vel að sér í sem flestum tungumál- um. Þegar hér var komið sögu, var ung- frú Guðrún orðin fullnuma í hraðritun á dönsku, þýzku og ensku, og var hyrjuð á sama námi á frönsku. Hannes benti þeim því á, að hér væri um framtíðar- starf að ræða fyrir hina ungu stúlku. Starf, sem föðurland hennar þarfnaðist nú svo mjög. Þessi mikla nýja tækni myndi flytja landið á vissan hátt mær umheiminum, og draga úr hinu mikla strjálbýli landsins, óbeint a-m.k., færa líf í verzlun landsmanna innan lands og utan. Allt þetta voru mikilvæg rök hins mikla framfaramanns, sem hin raunsæja fóstra gat ekki látið eins og vind um eyr- un þjóta. Hannes réð því Guðrúnu sem símritara við Landssímann og það kom einmitt í hlut þessarar ungu sérmenntuðu stúlku að tala fyrsta samtalið við æsku- byggðina, Akureyri, höfuðstað Norður- lands, Þannig atvikaðist það, að Guð- rún Aðalsteinisdóttir kom heim, og hér hefir hún átt heima síðan. Frk. Sigríöur Helgason flytur heim. Þetta leiddi auðvitað til þess, að þegar frk. Helgason hafði lokið lífsstarfi sínu í Kaupmannahöfn, flutti hún heim til fósturdóttur sinnar og manns hennar, Carls Finsens forstjóra- Þar lifði hún bjart og fagurt ævikvöld, umvafin ástúð góðra vina, sem nú vildu ómælt þjóna og greiða giftu og göfugt uppeldi. Þegar maður talar við frú Guðrúnu um frk. Helgason, heimili hennar líf og starf, leynir það sér ekki, að milli þeirra liefur verið gagnkvæm ást og umhyggja. Rausæ er Guðrún eins og fóstra hennar. Henni dyljast ekki kostir Sigriðar, mikl- ar gáfur, ágæt menntun. Hana ávann hún isér með námi á góðum skólum, eins og fyrr er sagt, með sjálfsnámi og mikl- um lestri góðra bóka. Einnig með því að umgangast og hafa náin kynni af há- menntuðu fólki og gáfuðum, ungum mönnum, innlendum og erlendum. Hún var mikil samkvæmismanneskja, marg- fróð og minnug, sagði sérlega vel frá og hafði jafnan mnræðuefni á reiðum höndum. Hún var, eins og áður er sagt, ströng og siðavönd, ráðrík, enda vön að stjórna án íhlutunar. Henni var því ekki tamt að hlíta ráðum annarra, og fannst sumum að hún væri um of einstreng- ingsleg öfgamanneskja í þessum efnum. Ég spurði frú Guðrúnu, hvort þessi gáfaða, menntaða, glæsilega kona myndi aldrei hafa lifað isín ástarævintýri, í hinni gömlu „höfuðborg“ Islands, umkringd af ærslafullum, ungmn stúdentum, svo og þarlendum mönnum, sem hún hefur verið meira og minna með frá tvítugs aldri. Ekki segist hún vita til þess, og ætti þó frú Guðrún að vita mann bezt um allt slíkt. Hún fortekur alveg, að slikt hafi getað átt isér stað milli hennar og hinna íslenzku skjólstæðinga hennar, eftir að hún varð ráðskona Friðriks- spitala, því að hún hafi — ekki sízt þá — verið orðin hin fastmótaða, stranga hefðarkona, sem taldi sig vemdara, leið- beinanda og hjálparhellu hinna ungu landa. Ekki aðeins um andlega reisn og fullkomið velsæmi á öllum sviðum, held- ur einnig i fjánnálum, þar sem eigin 89 A K R A N E S

x

Akranes

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Akranes
https://timarit.is/publication/865

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.