Akranes - 01.04.1957, Síða 34

Akranes - 01.04.1957, Síða 34
jeppaför til vinstri handar og tók Guð- mundur þau. Þar höfðu farið Skaftfell- ingar fjórir, og komið sunnan og vestan öll Timgnaárfjöll. Skyldi nú freista þess að leggja 5 tonna bíl í förin þeirra og vita hversu tækist. Bar okkur hrátt að Timgnaá, og er henni helst svo að lýsa, að hún var ekki hundi í lafklauf og botn- inn ágætur. Höfðum við þar víðast slóðir Skaftfellinganna, og lágu þær brátt að gilkjafti í suðurhlið og upp það gil. Þar þurfti litið eitt að laga. R-346 var of langur í slíkar beygjur, sem þar voru, en tók bratta og undirlagi eins og þrælk- unarhestur töðufóðri. Bar okkur úr gil- botni þeim suður í fallegan, gróinn dal- hvamm, er Botnaver heitir, og er hann hér um bil í hásuður frá Jökulheimum, í hvarfi þaðan bak við hnjúk nokkurn, sem félagar mínir nefndu Rata- Þar í verinu gistu þeir Pálmi Hannes- son, rektor, og dr. Niels Nielsen sumarið 1927, við heldur órífleg kjör, fengu hið versta veður, en þó rofaði svo til um ná- grennið áður en þeir fóru, að þeir sáu fellin í kringum sig og gaf Pálmi þeim nafn, sem auðkennilegustu þóttu, og voru það fell eitt úti á aurum Tungnaár og annað í enda Tungnaárfjalla með hamra- hlass á brún, en vegghamar upp frá ánni, og nefndi hann það Kastala, en hitt, sem hafði tumlaga drang á austurenda, séð úr verinu, kallaði hann Álfakirkju, því að þær snúa sem kunnugt er öfugt við kirkjur kristinna manna. — Ætla ég þessi heiti elzt á þessum fjöllum og gefin við nægilegt skímarvatn, en kannske hef- ir það verið of mikið og nafngiftin skol- azt af, því nú em önnur uppi. tJr Botnaveri sá inn með jöklinum á kvíslar nokkrar er lágu til Tungnaár og gróðurteyginga með fram þeim. Heita þar Jökulfitjar og er innsti gróður, sem ég veit um, og hagi má heita þeim megin Vonarskarðs. 1 Botnaveri snérum við enn til suðurs, og þá um smádag, og síðan austur í hlíð- ina upp veggbratta brekku, en svo þétta undir að billinn hafði viðspymu og naut krafta sinni. Höfðu þar farið Skaftfell- ingamir áður og gengið vel langleiðina, en þurft þó að beygja við og fara spotta- kom utan í hlíðinni að iægð, sem bezt lá við til yfirferðar. Það var ónotaleið fyrir R-346, því að þegar í hliðhallann kom marði hann melinn eins og kramt smjör og skreið undan brekkunni. Fóru þá til allir, sem verkfæri höfðu, að grafa rás fyrir efri hjól og hlaða grjóti í vatns- grafninga, sem voru á leiðinni. En þegar hliðhallinn minnkaði við að efri hjólin lækkuðu og heldur tók að festast undir þeim að minnsta kosti, þá fór Guðmund- ur að ná valdi á íák sínum aftur, og skilaði nú loks fram úr torleiðinu eftir tveggja tíma vegabótastarf nokkurra manna. Næg myndi flestum bílstjórum þykja vafaefni og fyrirstöður á næstu kílómetr- rnn nokkmm suður og vestur ása marga og smádældir, en allt varð það Guð- mundi auðvelt suður á móts við nyrztu vík Langasjávar. Lá þar slóð brautryðj- endanna skaftfellsku niður í dal nokkum, um ávala greiðfæra hlíð og sléttan dal- botn síðan, var þá farið að þyngja 1 lofti og var dalur sá dökkur ilits, því að þar ljósaði varla fyrir strái né mosa, en þoka tók fjall fyrir botni. Heitir sá hluti fjallgarðsins, er þokuna bar, Breið- ba'kur, og er vel 1000 metra hár. Þar var erfitt upp þungum bíl, og þótti Guð- mundi ráð að sveigja norður í hlíðina og fara lykkju nokkra, sem mun hafa verið vel ráðið, þvi að það reyndist gæðaleið, og mátti þá kalla Breiðbakinn unninn. Hefði þar gefið sýn í ýmsar áttir ef ekki 102 AKRANES

x

Akranes

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Akranes
https://timarit.is/publication/865

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.