Akranes - 01.04.1957, Qupperneq 42
Skjala- og minjasafn Reykjavíkur
Siðustu árin er margt gert til þess að
koma hetra lagi á málefni Reykjavikur.
Ekki aðeins um form og fegurð hið ytra,
heldur einnig í starfsemi hinna mörgu
stofnana bæjarins, bæði þeim gömlu, og
einnig þeim, sem stöðugt bætast við eða
stækka, vegna hinnar miklu útþennslu
bæjarins og öra vaxtar. Hér skal aðeins
minnst á eitt atriði, umfangsmikla stofn-
un, sem segja má að sé ný-
Með lögum um héraðsskjalasöfn, 29.
janúar 1947, var héraðs- og bæjarstjórn-
um heimilað með samþykki Þjóðskjala-
varðar, að varðveita sjálf sín eigin söfn.
Reglugerð um héraðsskjalasöfn frá 1951
kveður nokkuð nánar á um þetta. Ræjar-
stjóm Reykjavíkur hófst auðvitað handa
um að notfæra sér þessa heimild 1954,
enda hefur Reykjavík auðvitað algera sér-
stöðu um þessi efni, með hinn mikla
fjölda skjala og gagna, sem sérstaklega í
þessum mannmarga bæ fer ört vaxandi.
Það er auðvitað ekki annað sæmandi
en að þessi hraðvaxandi nútíma bær hafi
bækur sínar, skjöl og minjar í sinni eigin
vörzlu, tiltæk og umhyggjusamlega varð-
veitt, og með augu á hverjum fingri fyrir
því að láta ekki merkar minjar um sögu
bæjarins sér úr greipum ganga.
Reykjavíkurbær hefur áreiðanlega ver-
ið heppinn í vali um mann til þess að
standa fyrir, skrá og byggja upp slíkt
safn í byrjun, því að það er ekki htið
vandaverk- En til þess hefur verið valinn
Lárus Sigurbjörnsson, sem lengi hefur
verið starfsmaður bæjarins. — Flestum
fremur mun Lárus til þessa starfa vel
fallinn. Áhugamaður mikill á þessu sviði,
11 o
hugkvæmur og skipulagsmaður góður,
sögufróður á mörgum sviðum, snyrti-
menni hið mesta og hagsýnn vel og
nýtinn.
Mig undrar hve Lárus hefur þegar
komið þessu safni á góðan rekspöl, því
að nú þegar er ekki um neitt smásafn að
ræða. Allt þetta hefir Lárus þegar kann-
að ótrúlega vel, svo að enginn kemur þar
að tómum kofum, varðandi skjöl bæjar-
ins og sögu. Þannig hefur Lárus þegar
gefið út mikla bók um safnið, er hann
hefur skrásett rækilega, og kennir þar
margra grasa. Bókin er meira en 200
síður í mjög stóru broti, Er safninu raðað
með nýjum hætti, eftir svonefndu alþjóða
tugstafakerfi.
tJtgáfa þessarar skrár um hið mikla
skjalasafn Reykjavíkurbæjar hlýtur að
vera kærkomin hinum ýmsu ábyrgu
starfsmönnum Reykjavikurbæjar, svo og
öllum þeim er hnýsast vilja í gamlar eða
nýjar sögulegar heimildir um menn eða
málefni sem fyrr eða seinna koma við
skjöl bæjarins eða sögu á einn eða annan
hátt.
Slik verndar- og varðveizlustofnun sem
þessi, þarf nauðsynlega að vera til sem
viðast, og þá ekki síður í höfuðstað lands-
ins, þar sem allt er á svo hraðri ferð, að
eftir tiltölulega fá ár stendur þar ekki
steinn yfir steini af hinu gamla, og eng-
inn veit hvenær eða hvernig hin miklu
hamskipti hafa orðið.
Allar þjóðir, og meira að segja mörg
byggðarlög, eiga við og við merka braut-
ryðjendur og margvislega nytjamenn sem
venjulegast eru langt á undan sinni sam-
AKRANF.S
j