Akranes - 01.04.1957, Qupperneq 58
Hjörleifur er líka inokkuð hagmæltur.
Hann er líka dýravinur svo sem eftirfar-
andi vísa hans bendir til; en hún er ort
eftir hund, er hann átti:
Nú er Kátur fallinn frú
fregn sú barst um Skaga,
eftir honum eg mun sjá
alla mina daga.
Þessa visu orti Hjörleifur til dóttur
sinnar ungrar:
List í anda, list i hönd
léðist þér frá æðri strönd,
gíettu þeirra blóma be/.t
á brautum lifs þá horfir verst.
Þessa vísu kvað Hjörleifur til konu
sinnar:
Dyggðum prýdda dýra mey,
dóttir bænda höldans,
fremri henni á Isa-ey,
er engin meðnl fjöldans.
Elías Benediktsson og Ölína Ölafsdótt-
ir, kona hans, eru á Bergstöðum 1918 og
til vors 1919. Nokkru eftir lát Jóns,
kaupir Magnús, bróðir hans í Miðvogi
Bergstaði, og er kominn þangað 1921, og
er þar þá þetta fólk:
Magnús Magnússon, 64 ára.
Guðrún Markúsdóttir, kcna hans, 69
ára.
Jónína Bannveig, dóttir þeirra, 26 ára,
og Magnús Sch. Jónsson, tökubarn,
12 ára.
Magnús á þama heima þar til hann
flytur til Reykjavíkur, líklega 1929, til
Steinunnar, dóttur sinnar, og manns
hennar, Guðjóns Jónssonar. Þar deyr
Magnús 10. febrúar 1936, en Guðrún
kona hans 26. febrúar 1935- Þeirra hjóna
verður síðar getið í sambandi við Miðvog.
Árið 1930 er á Bergstöðum þetta fólk:
Eyjólfur Þor.kelsson, 58 ára, og
126
Hulda Eyjólfsdóttir, dóttir hams, 23
ára.
Hafði Eyjólfur þá keypt húsið.
Eyjólfur Þorleifsson var fæddur að
Núpi undir Eyjafjöllum 24. apríl 1873.
Eyjólfur flytur til Akraness 1918, þá
fyrst að Bræðraborg til Eyjólfs Jónssonar.
Þar voru mikil tengsl á milli, því að
Eyjólfur Jónsson hafði alizt upp hjá for-
eldrum Eyjólfs Þorkelssonar, og hjá Eyj-
ólfi og systur hans, eftir að gömlu hjórn-
anna missti við. Eyjólfur Þorkelsson var
hér lengi sjómaður á vélbátunum, aðal-
lega eða eingöngu hjá Ármanni Hall-
dórssyni. Eyjólfur var duglegur vinnu-
maður, kappsamur og húsbóndahollur.
Um það get ég vel borið, því að hann
vann um mörg ár í landvinmu á mínum
snærum.
Um nokkur ár var Eyjólfur á Brunna-
stöðum, en á Bergstöðum frá 1930, þar
til hann andaðist 13. móv. 1951.
Barnsmóðir Eyjólfs var Elinborg Þórð-
ardóttir, bónda á Tjörnum i Landeyjum,
Loftssonar. Elinborg átti lengi heima
norður i Eyjafirði, og þar er Hulda
fædd 1. október 1907, og er alin upp
aðallega í Syðra-Tjarnarkoti á Staðar-
byggð. Þar hefur nú verið byggt upp, og
heitir mú Háagerði-
Eyjólfur Þorkelsson breytti nokkuð og
bætti húsið á Bergstöðum og eftir það
hélt Leifur þvi vel við.
Hulda kemur hingað suður til föður
sins 1930, en móðir hennar kemur ekki
til Akramess fyrr en 1933 eða '34. Hulda
er svo með föður sínum á Bergstöðum,
þar til hún tekur þar við búi og giftist
manni sinum, Leifi Gunmarssyni.
Leifur er fæddur í Saltvík á Kjalar-
nesi 6. marz 1903. Foreldrar: Gunnar,
f. 2. apríl 1870, Guðnason, Jónssonar, og
Anna Þorkelsdóttir, kona hans, lijón á
Fótaskinni i Múlasókn í Grenjaðarstaða-
Á K R A N F, S