Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1897, Side 26
DR TILSKIPUN 3. FEBRUAR 1836.
v 11. atr. um almanök:
1. gr. Brjóti nokkur j>að einkaleyfi, sem Kaup-
mannahafnar háskóla er veitt til að gefa út alinanök,
annaðhvort með því að flytja til Islands eða selja útlend
almanök, eða með jrví að láta prenta nokkurt almanak
án leyfis frá háskólanum, þá skal hann gjalda frá 20
til 200 rbdala sekt, samkvæmt því sem ákveðið er í
Danmörku (op. br. 5. Aug. 1831),* þau ahnanök eru og
upptæk, sem finnast hjá þeira hinum seka, og gjaldi þar
á ofan | rbd. silfurs fyrir hvert þeirra. Helming sekta-
fjárins og ahnanaka þeirra, sem upptæk verða, á sá,
sem háskólinn hefir selt prentlcyfi til almanakanna, en
annar helmingur gengur til stjörnuturnsins í Kaup-
mannahöfn.
2. gr. Yfirvöldin skulu gæta þess nákvæmlega, að
enginn skerði þetta einkaleyfi háskólans, sem nú var
talið.
3. gr. Öll mál, sem rísa af að einkaleyfi þetta er
skert, skal fara með sem opinber lögreglumál.
Eptir þessu eiga allir þegnlega að breyta.
Almanak þotta kostar óinnfest 10 aura, en innfest 11
aura, allstaðar á íslandi og í Danmörku; en Gyldendals bóka-
verzlan í Kaupmannahðfn, sem hefir sölu-umboðið, er skyld ti!
að selja hvert á 8 aura óinnfest, og innfest á 9 aura, þeim sem
kaupa 50 eða þaðan af fieiri. Slíkum kaupendum er og heimilt
að akila aptur óseldum almanðkum, ef það er gjört innan árs
loka 1897; verður þeim þá borgað andvirði þeirra, sem óskðdduð
cru, en þó svo, að hin innfestu verða borguð sem óinnfest; sky’dir
ern þeir og að sýna reikninga bókaverzlunarinnar, ef krafizt verðar.