Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1897, Blaðsíða 62
Um kviksetningar.
Jeg hef opt oröiö þess var, að alþ/ða manna er
hrædd nm, að menn sjeu opt kviksettir, og margar
sögur ganga um kviksetningar hjer á landi og annar-
staðar. Alþj'Sa trúir því, að til sje það ástand, að
maður sje með fullu lífi og fullri meðvitund, en líti
samt út eins og liðið lík, og að ekki sje unnt eða aS
minnsta kosti mjög erfitt aS vita, hvort maðurinn sje
lífs eða liðinn; hun heldur einnig aS þetta ástand geti
haldizt langa lengi, aS minnsta kosti dögum saman.
Ef þessi skoðun væri rjett, þá væri ástæða fyrir
menn til þess að vera hræddir, því að það má geta
nærri, hve ógurlegt það hlýtur að vera að búast viS
því aS vera kviksettur, vera grafinn lifandi, og hafa
fulla meðvitund um það. Jeg er viss um, að þessi
hræSsla gerir mörgum sjúklingum viSskilnaðinn erfiS-
ari, og mörgum eptirlifandi ástvinum harminn viS frá-
fallið enn sárari en annars mundi vera.
Læknar geta ekki fallizt á að þessi skoðun alþ/Su
sje rjett. Þeir þekkja að vísu nokkurskonar millibils-
ástand milli lífs og dauða; þá leynist líf, þótt lífsmörk-
in sjeu horfin, enda eru þá heldur ekki dauSamörk
komin í ljós. Það er skoðun lækna, að þctta ástand
sje sjaldgæft og þekkist varla nema eptir voveiflegan
dauSdaga, t. d. köfnun, drukknun eða heugingu og hjá
nýfæddum börnum, og þeir segja aS þetta ástand hald-
izt ekki nema stutta stund, og að því fari fjarri, að
nokkur meSvitund sje því samfara.
ÞaS er því töluverður munur á slcoðun lækna og
alþ/ðu í þessu efni, en læknar styðjast hjer bæSi við
reynsluna og skynsemina.
VíSsvegar erlendis voru reist líkhús, þegar kvik-
setningarhræðslan geisaði þar. Líkin voru látin standa
þar uppi um langan tíma, og þar var hafður svo hag-
aulegur úthúnaður, að vökumenn mundu jafnskjótt hafa
orðiö þess varir, ef líkin hefSu bærzt minnstu vitund,
en aldrei hefir nokkur sá raknað við, sem þangað hef-
ir veriö fluttur. Erlendis er einnig sægur af líkum
krufinn á ári hverju, en engin dæmi eru til þess, að
menn hafi orðið þess varir viS krufninguna, aS líf
leyndist meS líkunum.
I annan staS geta læknar ekki komið skoSun al-
(52)