Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1897, Blaðsíða 42
fóru meS hann sem sakamann að landamærum Austur-
ríkis og ljetu hann þar loks lausan.
Þegar alþ^vða varð vör þessa níðingsverks og sá
hvað yfir vofði, greip hún þegar vopnin, og voru þar
fremstir í flokki tveir menn, Stambúlow og Mútkúrów.
Samsærismenn urðu að gefast upp og að hálfum mán-
uSi liSnum hjelt furstinn aptur innreiS sína í höfuS-
horgina, og var heilsaS meS hinum mesta fögnuSi af
öllu fólki.
Hann hefði nú vafalaust getaS sezt aS ríki aptur,
eins og ekkert hefði í skorizt, en hann var loks orðinn
þreyttur að herjast við svik og klæki Rússa. Heilsa
og kraptar voru biluð og hann hafði slitið hvorutveggja
fyrir nauðsyn þessarar þjóðar, en sá nú ekki önnur
laun en svik og ofbeldisverk af þeim mönnum, sem
hann hafði leitt til sigurs og frama. Þegar svona var
komiS, tveystist hann ekki aS halda áfram stjórninni,
nema Rússakeisari samþykktist því, og lauk brjefi sínu
til hans á þá leið, að hann kvað keisarann hafa fengiS
sjer þessa tign í hendur og hann væri reiSubúinn til
að láta hana af hendi, ef það væri vilji keisarans.
Sjálfsagt hefir hann treyst á veglyndi nafna síns þegar
hann lagði svona allt á hans vald, en honum brást
von sín. Keisarinn sendi svar frá sumarstöðvum sín-
um í Danmörku, og ekki sjerlega hlýlegt: »Jeg get
ekki samþykkt apturkomu yðar«, segir hann, »stjórn
yðar verSur vandræði fyrir þjóðina, og hún hefir þegar
fengið nóg. Yðar tign mun nú skynja hvað vera ber«.
Nú átti furstinn einskis annars úrkosta en að leggja
niður völdin. Hann fjekk þá stjórnina í hendur þrem
mönnum: Karavelow, Mútkúrów og Stambúlow, og fór
úr landi eptir fáa daga, en öll þjóðin lcvaddi hann
harmandi. Þetta gerðist í byrjun nóvembermánaðar
1886. ÞingiS veitti honum síðar 1 þakklætisskyni 36
þúsundir króna á ári í eptirlaun. Alexander fursti fór
nú aptur heim til ættjarðar sinnar, og nefndist prinz
frá Hattenberg sem fyr, og leitaði aldrei síðan til valda
í Búlgaríu. En þjóðin geymir þakklát minningu hans,
því hann þokaði af henni að miklu leyti farginu rúss-
neska, siðaði hana og menntaSi og greiddi framfara-
braut hennar nær í hverja átt, andlega og verklega.
Alexander settist nú að í bæ einum litlum í Aust-
(32)