Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1897, Side 40
nSu þeir Sóbélew honum burtu líka, til þess aö hann
gerði þeim ekki ónæði. En þetta hefðu þeir ekki átt
að gera, því nú fannst þjóðinni mælir syndanna vera
fullur, og heimtaði hástofum að verða laus við Rússa,
sem nú ætluðu að stefna beint í spor Tyrkjans. Jafn-
vel sum blöð Rússa tóku í sama streng, og kváðu þess-
ar aðfarir stjórnarinnar vinna það að lyktum, að þessir
þakklátu vinir Rússa yrðu þeirra verstu fjendur. Það
fer mjög tvennum sögum um allt, sem fram fór í
Búlgaríu á þessum árum. Rússar kenna furstanum
allt óstandið og Sóbólew hefir skrifað um hann langt
mál, og brigzlar honum þar um flærð, Rússahatur og
margt fleira. Búlgarar og Þjóðverja'r kenna aptur á
móti þeim Sóbólew um állt saman, og segja af þeim
Kálbars margar sögur og ófagrar. Þeir segja t. d. að
þ eir Kálbars brytist um nótt inn í furstahöllina við
nokkra menn og ætluðu að handtaka furstann, en verð-
irnir stóðu fastara fyrir en þá varði og neituðu yfir-
iboðara sínum, sjálfum hermálaráðgjafanum Kálbars, að-
göngu, og gerðu furstann varan við. Komst það þá
upp, að í nánd við furstahöllina biðu menn með hestum
•og vagni til að flytja furstann burt. Hvað sem um
þetta er, þá er hitt víst, að furstinn varð nú að ganga
í lið með þjóðinni, sem, auk þess að losna við Rússa,
iieimtaði bandalag við nágranna sína í Austur-Rúmilíu.
INú setti furstinn aptur stjórnarskrána í gildi, kallaði
þingið saman að nýju, og urðu andstæðingar Rússa þar
í svo miklum meiri hluta, að þeir Sóbólew urðu að
lialda heim um stund. Yið þetta varð Rússakeisari
•enn þá æfari og duldi nú ekki lengur óvild sína á
Búlgurum og fursta þeirra, og neytti valds síns óspart
til að gera þeim allt sem erfiðast, og í þessu stíma-
"braki gekk árin 1883—84. En sárast varð Rússum
þó árið 1885. Þá gerðu Rúmilir uppreist móti Tyrkj-
um, og er víst að það var á vitorði Rússa, og að þeir
œtluðu sjer að hafa þar sama lagið eins og í Búlgaríu.
En Rúmilir gerðu þeim þann grikk, að þeir kjöru
Alexander fursta til höfðingja. En þetta var þvert
ofan í allar ráðstafanir stórveldanna, og má nærri geta,
livernig Rússar urðu innanbrjósts; en furstinn sýndi
þá svo mikia stilliugu og stjórnsnilli, að honum tókst
að semja sættir við soldán, þrátt fyrir allar ógnanir
(30)