Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags

Årgang

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1897, Side 43

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1897, Side 43
urríki og lifði þar í kyrð. Hann hafði þangað til ver- ið ókvongaður, en árið 1888 var nærri því komið, að hann gengi að eiga Yiktoríu dóttur Friðriks Þýzkalands- keisara, og systur Vilhjálms unga, sem nú ríkir þar. En Bismarek þorði ekki að styggja Kússa með ráða- hagnuni og varð svo ekki af því. Hann gekk þá 1889- að eiga söngmey, sem Jóhanna Loisinger hjetog sleppti- við það prinztign sinni og kallaði sig Hartená greifa eptir það. Hann var sagður ágætur húsfaðir, hlíður og viðfeldinn við alla menn og sá enginn maður, að- hann saknaði hinni fyrri daga sinna. Þau hjón lifðu svo■ saman rólegu lífi til þess 15. nóvember í vetur, að hann kenndi sjer sjúkleika yfir miðdegisborði. Hann- stóð upp og komst með veikum mætti á legubekk og- lifði að eins næsta dag, en andaðist þann 17. Hann hafði æskt þess að fá að hvíla í Búlgaríu og var lík. hans fært þangað. Fjöldi Búlgara safnaðist þegar við. landamæri um kistu hins látna fursta síns, og þjóðin. gerði líkför hans með öllum þeim sóma, sem húm kunni*. Það er sagt, að Alexander fursti væri mikill mað- ur vexti, svo að hann væri höfði hærri en aðrir menn,. *) í sögu þessari er meira getið um þá erfiðleika, sem Alexander fursti átti við að stríða, en það, sem hann, framkvæmdi, meðan hann hafði ríkisstjórn á hendi. En Í)að, hve miklu hann kom til leiðar af endurbótum i andinu, þann stutta tíma sem hann stjórnaði, sýnir bezt, hvert mikilmenni hann var. Fjárhagurinn og flest allt í landinu mátti heita i rústum fyrir margra ára kúgun og menntunarleysi, þeg- ar hann tók við stjórn ríkisins; en þegar hann fór, var búið að setja á stoín marga skóla, leggja járnbrautir,. og auka vetzlun og iðnaö í landinu, og þrátt fyrir þann mikla kostnað, sem leiddi af þessu og hernaðin-- um, skilaði hann þó fjárhagnum í góðu lagi. Mörgum hefur þótt, að Alexander l'ursti hafi verið. á stjórnarárum hans maður líkastur Ólafi konungi Tryggvasyni, að allri atgervi og glæsimennsku. Hann var hraustur og kænn í hernaði, og stjórnsnillingur svo mikill, að láum mundi hafa tekizt að koma ájafn iniklum endurbótum á jainstuttum tíma, endavarhann virtur og elskaður af þegnum sínum fram yfir flesta. aðra menn, sem ríkjum hafa ráðið. Utg. (33)

x

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags
https://timarit.is/publication/866

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.