Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1922, Blaðsíða 24
GANGUR TUNGLS OG SÓLAR Á ÍSLANDI.
I þriðja dálki hvers mánaðar og í töflunni á eptir December-
mánuði er sýnt, hvað klukkan er eptir íslenzkum meðaltíma, þegar
tunglið og sólin eru í hádegisstað í Reykjavik. En vilji menn vita,
hvað klukkan sje eptir íslenzkum meðaltíma, þegar tunglið eða sólin
er í hádegisstað á öðrum stöðum á Islandi, þá verða menn að gera
svo nefnda „lengdar-leiðrjetting" á Reykjavíkurtölunni. Verður
hún — 4 mínútur fyrir hvert lengdarstig, sem staðurinn liggur a u s t a r
en Reykjavík, og + 4 m. fyrir hvert lengdarstig, sem staðurinn liggur
v e s t a r en Reykjavík, t. d. á Seyðisfirði — 32 m., á Akureyri —
16 m., á Isafirði + 5 m. 21. Febrúar er tunglið t. d. í hádegisstað í
Reykjavík kl. 8.38' e. m.; sama kveldið er það þá í hádegisstað á
Seyðisfirði kl. 8.6', á Akureyri kl. 8.22', á Isafirði kl. 8.43', ait
eptir íslenzkum meðaltíma.
Á þeim tölum, sem sýna sólarupprás og sólarlag, verða menn
auk lengdar-leiðrjettinganna að gera „breiddar-leiðrjetting.“ Hún
verður á þeim stöðum, sem liggja 2° og 1° (stigi) norðar en Reykjavílfll
sem hjer segir:
25. Jan. 22. Febr. 22. Marts 19. Apr. 17. Maí
2° N. + 22 m. + 8 m. + 1 m. + 10 m. + 26 m.
1° N. + 10 m. + 4 m. 0 m. 5 m. + 12 m.
2. Ág. 30. Ág. 27. Sept. 25. Okt. 22. Nóv.
2° N. + 22 m. + 8 m. + 1 m. + 10 m. + 25 m.
1° N. + 10 m. + 4 m. 0 m. + 6 m. + 12 m.
og sýnir þá efra teiknið á undan tölunum sólarupprás, en hið neðra
sólarlagið.
Sem dæmi má taka Akureyri, sem er 1% breiddarstigi norðar
en Reykjavík;
22. Nóvember í Reykjavík s. u. 9. 20' s. 1. 3. 7'
lengdar-leiðrjetting — 16 — 16
breiddar-leiðrjetting +19 — 19
22. Nóvember á Akureyri s. u. 9.23' s. 1. 2.32'
eptir íslenzkum meðaltíma.
Um uppkomu og undirgöngu tunglsins er alment þetta að segja:
Kringum þann dag, er við stendur í 4. dálki hvers mánaðar „tungl
lsegst á lopti“, er tunglið, þegar það er í hádegisstað, hjerumbil 7 stig
fyrir ofan sjóndeildarhringinn. Kringum þann dag, er við stendur
„tungl hæst á lopti“, er tunglið, þegar það er í hádegisstað, hjer-
umbil 44 stig fyrir ofan sjóndeildarhringinn. Viku á undan og viku
á eptir þessum dögum er tunglið hjerumbil 26 stig fyrir ofan sjón-
deildarhringinn, þegar það er ( hádegisstað, kemur upp 1 austri 6
stundum áður og gengur undir 1 vestri 6 stundum sfðar.