Freyr - 01.04.1949, Blaðsíða 2
Fyrirmæli
um litamerkingar á sauð/é 1949, vegna sauðfjár-
sjúkdómanna, sett samkvæmt lögum nr. 44 frá
9. maí 1947
Allt sauðfé og geitfé á eftirtöldum svæðum skal merkja, áður en því
er sleppt frá húsi í vor, sem hér segir:
1. gr.
í Mýrdal í Vestur-Skaftafellssýslu skal merkja féð með rauðum lit á
hægra horn, nema á bæjum þar sem mæðiveiki hefir orðið vart, skal
merkja með rauðum lit á bæði horn.
2. gr.
í Fljótshlíð skal merkja með bláum lit á hægra horn, svo og á bæjum
þeim í Rangárvallahreppi þar sem grunur eða vissa er um garnaveiki.
3. gr.
Á svæðinu milli Ytri-Rangár og Þjórsár skal merkja með rauðum lit
á hægra horn, nema þar sem vitað er um mæðiveiki eða garnaveiki, skal
merkja með rauðum lit á bæði horn. Þó skal sama litarmerking gilda inn-
an girðingahólfanna frá 1941 og í Hvammi á Landi, sem notuð hefir verið
undanfarin ár.
4. gr.
Á svæðinu milli Þjórsár og Hvítár, ofan Skeiðagirðingar, skal allt féð
á bæjum þar sem garnaveiki hefir orðið vart, merkt með bláum lit á bæði
horn, en fé á öðrum bæjum á þessu svæði, skal vera ómerkt.
5. gr.
í Flóa skal merkja allt féð með hvítum lit á bæði horn, nema á bæj-
um, þar sem garnaveiki hefir orðið vart, skal merkja með bláum lit á bæði
horn. Féð í Egilsstaða- og Egilsstaðakotshólfinu skal merkja með hvítum
lit á vinstra horn.
6. gr.
í Biskupstungum skal merkja féð með grænum lit á bæði horn, nema
þar sem garnaveiki hefir orðið vart skal merkja með rauðum lit á bæði horn.
7. gr.
í Grímsnesi, Laugardal og Þingvallasveit, austan Þingvallavatns og
þjóðgarðsins, skal merkja féð með grænum lit á hægra horn.
8- Sr-
í Árnessýslu vestan Ölfusár, Sogs, Þingvallavatns og þjóðgarðsins,
skal merkja féð með krómgulum lit á hægra horn.