Freyr

Árgangur

Freyr - 01.04.1949, Blaðsíða 43

Freyr - 01.04.1949, Blaðsíða 43
FREYR 141 Af upphæðinni er beinn kostnaður við fjárskiptin, sem hér segir: Bætur vegna fjárskipta .. kr. 17.330.000,0 Bætur vegna sauðleysis eitt ár .................— 8.067.000,00 Flutningskostnaður lamba — 2.007.500,00 Samtals kr. 27.404.500,00 Hinn hluti kostnaðarins, rúmlega 7 milj- ónir króna, þ. e. varzla, viðhald girðinga o. fl., er ekki hægt að segja að sé beinlínis kostnaður vegna fjárskptanna, því að, ef á að hamla á móti útbreiðslu sauðfjársjúk- dómanna svo sem verið hefir, dregur sist úr þeim kostnaði þó hætt yrði við fjárskiptin. Því eins og áætlunin sýnir, er gert ráð fyrir að smádragi úr vörzlu, viðhaldi girðinga, uppeldisstyrk og rannsóknum, eftir því, sem lengra líður á fjárskiptin. Samkvæmt 39. gr. fjárskiptalaganna á að veita fjáreigendum á sýktum svæðum uppeldisstyrk, ef ekki er búist við fjár- skiptum þar næstu tvö ár. í áætluninni er gengið út frá þessu, en upphæðin smá- lækkuð eftir því, sem sýktu svæðin minnka, en fellur þó ekki alveg niður vegna þess, að á Austurlandi eru garnaveikisvæði, sem hlotið hafa dálítinn uppeldisstyrk og mundi hann ekki falla niður, þó fjárskipti færu fram á þeim svæðum, sem áætlunin nær til. Bótagreiðslur allar eru miðaðar við það verð, sem nú er að meðaltali á líflömbum, sem keypt hafa verið inn á fjárskipta- svæðin. Verð líflamba er miðað við af- urðaverð. 1 Flutningskostnaður lamba er yfirleitt á- ætlaður kr. 20,00 á lamb og stuðst þar við reynslu undanfarin ár. Að óbreyttum lögum, afurðaverði og öðr- um kostnaði, sem nú er í sambandi við hverskonar framkvæmdir, eru ekki líkur til þess, að hægt sé að koma fjárskiptum þessum í framkvæmd fyrir minni fjár- framlög en hér er gerð áætlun um. Þó svæðin yrðu tekin í annarri röð en hér er bent á, sem að sjálfsögðu getur komið til greina, til dæmis ef nægilegt fylgi með fjárskiptum væri ekki til staðar á ein- hverju svæði á tilteknum tíma, þá er útlit fyrir, að heildarkostnaðurinn myndi frem- ur aukast en minnka við það. Nánari skýringar á áætluninni er sjálf- sagt að gefa ef óskað er. Reykjavík, 4. febrúar 1949. F. h. Sauðfjársjúkdómanefndar, Sæm. Friðriksson (sign). Til landbúnaðarráðherra, Reykjavík. Fjárskiptin Eins og kunnugt er hafa undanfarin haust farið fram fjárskipti hér norðan- lands. Var svo ráð fyrir gert, að á næsta hausti færu fram fjárskipti á svæðinu frá Hér- aðsvötnum að varnargirðingum í Eyjafirði og væri þar með lokið samfelldum fjár- skiptum norðanlands, að Jökulsá á Fjöll- um. Á s. 1. hausti hófst svo undirbúningur undir fjárskiptin á áðurnefndu svæði, var þá samið, og samþykkt, á fulltrúafundi, frumvarp til fjárskipta. í nóv. s. 1. fór atkvæðagreiðsla fram um frumvarp þetta, á meðal sauðfjáreigenda í viðkomandi hreppum. Niðurstöður þeirrar atkvæðagreiðslu hafa nú verið birtar fyrir nokkru, og leiða þær í ljós, að ekki hefir fengizt nægur meiri hluti með frumvarp- inu, til þess að það yrði samþykkt. Þó segja megi að möguleikar væru á að svona færi, komu þó mörgum þessi úrslit á óvart, og er þetta hið alvarlegasta í- hugunarefni, einkum vegna þess, að um- rætt svæði liggur á milli landshluta, sem áður hafa skipt um fé. Bendir þessi at-

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.