Freyr - 01.04.1949, Blaðsíða 26
124
FREYR
eigandi í búskapnum, og er þá um leið leit-
ast við að fækka tegundum vélanna svo
að varahlutaöflunin verði auðveldari en
annars í framtíðinni.
3. Tilbúinn áburður er notaður í tvöfalt
stærra mæli en fyrir stríð, en talið er að
notkunin þurfi að aukast um 20% enn til
þess að framleiðslan geti eflst eins og ráð
er fyrir gert. Enda þótt framleiðslan í land
inu sé efld að miklum mun þarf þó stöð-
ugt að flytja inn mikið magn tilbúins á-
burðar.
4. Framræsla og vatnsmiðlun er með í
áætluninni. Á tímabilinu er gert ráð fyrir
að verja samtals 60 milljónum dollara til
þessara framkvæmda, en um 1 milljón ha.
þarf að ræsa og þurrka eða bæta með
áveitum. Útgj aldaliður, sem nemur 36 mill-
jónum dollara, er fyrirhugaður til þess
að sjá sveitunum fyrir neyzluvatni.
5. Fóðurþörfin vex að miklum mun, með
vaxandi búfjárrækt sem áður er á minnst.
Lögð verður áherzla á að auka fóður-
framleiðsluna í landinu og einkum að
bæta hirðingu fóðursins (varðveita verð-
mæti þess). Þó er ekki hægt að komast
hjá verulegum innflutningi. Svo er nú fyr-
ir mælt, að þegar bændur leggja kapp á
að rækta korn til manneldis sé þeim einn-
ig leyfilegt að rækta blandað korn til notk-
unar handa búfé á eigin búi. Um undan-
farin ár hefir það verið skylda að af-
Svarthöjða hrútur.
t'oto: The Scottish Farmer.