Freyr

Volume

Freyr - 01.04.1949, Page 20

Freyr - 01.04.1949, Page 20
118 FREYR framkvæma nauðsynlegar prófanir. Kýr, sem eru tveggja vetra eöa eldri, smitast tæplega af garnaveiki. Það varð- ar því mestu að einangra vel kálfana og ungviðið. 2. Lungnasjúkdómur kom fram í einni kú hér á landi 1947, og líkist hann fullkom- iega mæðiveiki, bæði hvað ytri einkenni snertir og sömuleiðis skemmdir í lungum. Ekki hefir tekizt að finna fleiri sams konar tilfelli, og engar fréttir hafa borizt af líkum sjúkdómseinkennum í nautgrip- um. Mér er ekki kunnugt um, að slíkum til- fellum hafi verið lýst í erlendum ritum og er naumast efi á því, að þau eru mjög fá- gæt. Engu að síður er það þó athyglivert fyr- ir okkur, t. d. í sambandi við fjárskipti á stórum landssvæðum, ef hér kynni að hafa verið um mæðiveiki að ræða, og ætti í það minnsta að vera oss eindregin hvatn- íng til þess að fylgjast vel með heilbrigði nautgripanna og hindra, eftir því sem nokkur kostur er, samgang þeirra við féð. 3. Nokkrar kýr hafa veikzt á síðastliðnu ári, með líkum einkennum og koma fram við þurramæði í kindum. Upplýsingar fengust um ellefu veikar kýr, sem allar voru úr héruðum, þar sem mikil þurramæði er í fénu. Sjúkdómslýsingunum svipar mjög sam- an og er hér á undan sagt frá fjórum veik- um gripum, þremur kúm, með sömu ein- kennum, virðist hafa batnað síðastliðið íumar, eftir að þær komust á góða haga. Líklegt er, að sjúkdómurinn stafi að ein- hverju leyti af skemmdu heyfóðri, sé hey- mæði samfara ofnæmi, eða vöntun vegna hinna hröktu heyja. Líkingin við þurramæði gæti stafað af því, að aðaleinkennin koma af langvarandi mæði. Að svo stöddu er þó ekki hægt að á- kveða með fullri vissu sjúkdómsorsökina. Hafi skemmdu heyin verið höfuðorsökin, ættu að fást upplýsingar frá fyrri árum um fleiri lík sjúkdómseinkenni víðar að. Það, sem hér hefir verið sagt, er fyrst og fremst ætlað til þess að vekja athygli manni á málinu, ef það mætti leiða til viðtækari upplýsinga um sjúkdóminn. Enn, sem komið er, er ekki hægt að af- taka með öllu, að samband gæti leynzt milli veikindanna í kúnum og þurramæð- innar í fénu, og meðan svo er, er réttara að haga sér í samræmi við það við ein- angrun og alla meðferð gripanna. Reykjavík, 20. febrúar 1949. Guðm. Gíslason.

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.