Freyr

Volume

Freyr - 01.04.1949, Page 22

Freyr - 01.04.1949, Page 22
120 FREYR Sykur: Sami skammtur og verið hefir eða 227 gr. á mann vikulega. Feiti: Smjör, smjörlíki og önnur feiti 227 :gr. vikulega á mann. Ostur: Vikuskammtux 43 gr. á mann. Egg: Óákveðiö, en eitthvað meira en 1948. Mjólk: Þegar frá eru dregnir þeir, sem sérstaklega er séð fyrir mjólk (börn og sjúklingar) er gert ráð fyrir vikuskammti að minnsta kosti 1,15 1. á mann. Það er tekið fram, að í reyndinni muni skamtur ofangreindra matvæla verða nægilegur, en ef greiðlega takist með öflun dollara þá megi gera ráð fyrir að skammt- urinn verði aukinn með tilliti til þess, að þá sé viðbúið að menn verði að leggja meira að sér við innanlandsframleiðslu. Fyrir- hugað er að leggja allt kapp á að flytja út vörur til Marshall-landanna i þeim tilgangi að kaupa lífsnauðsynjar þaðan. Er það einkum flesk og mjólkurvörur, sem óskað er eftir í stærra mæli en áætlunin hefir gert ráð fyrir. Áður greind upphæð, 1.263 milljónir doll- ara, sem Evrópuhjálpin ætlar brezka ríkinu, er ætluð til kaupa á matvælum fyrst og fremst og er þar t. d. gert ráð fyrir 300 milljónum dollara fyrir korn frá Canada, sykri frá Cuba fyrir 25 milljónir, kjöt og flesk frá Canada fyrir 73 milljónir, osti frá Bandaríkjunum og Canada fyrir 26 milljón- ir, o. s. frv. allt talið í dollurum. Clydesdale kynbótahestur. Foto: The Scottish Farmer.

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.