Freyr - 01.10.1958, Blaðsíða 10
306
FREYR
Öngulstaðahreppi samkvæmt framtalsskýrslum
bænda. Meðal þessara liða voru fóðurbætir,
áburður, vélakostnaður og flutningskostnaður.
Síðan var gefið hlé til miðdegisverðar.
5. Ávarp forsætisráðherra.
Þegar fundur var settur á ný, flutti Hermann
Jónasson, forsætis- og landbúnaðarráðherra
ræðu og hóf mál sitt á þvi að minnast land-
búnaðarsýningarinnar, er Búnaðarsamband
Suðurlands hafði á Selfossi í minningu um 50
ára afmæli sitt. Kvað ráðherrann þá sýningu
hafa verið mjög merka og gefið gott og áhrifa-
mikið yfirlit yfir hinar stórfelldu framfarir síð-
ustu 50 ára. En í því sambandi hvarflaði þó að
sér, hvort þessar miklu framfarir hafi ekki að
sumu leyti verið of örar, þannig að vissar veilur
hefðu komið fram við hinn mikla vöxt. Drap
hann síðan á atriði, sem bæta þyrfti í íslenzkum
landbúnaði. Bændur þyrftu að auka búreikn-
inga til þess að sjá betur, af hverju þeir hefðu
raunverulegan hag. Þeir þyrftu að haga fram-
leiðslu sinni í samræmi við það, sem hentaði
erlendum markaði um verðlag og gæði. Þeir
þyrftu að tryggja sig gegn óþurrkum og harð-
indum, til þess að hafa árvissa afkomu. „Fyrn-
ingar eru betri en gull,“ sagði ráðherrann, og
„votheysgerðin er sú lausn, sem við verðum að
fullkomna.“ Árnaði hann síðan fundinum og
íslenzkum bændum allra heilla.
6. Ávarp varaforseta Alþýðusambands fslands.
Eðvarð Sigurðsson, fulltrúi Alþýðusambands
íslands á fundinum og varaforseti þess, flutti
stutt ávarp. Þakkaði hann af Alþýðusambands-
ins hálfu boð Stéttarsambandsins um að senda
fulltrúa á fundinn. Taldi hann sig hafa bæði
gagn og ánægju af veru sinni á fundinum og
kynni af bændum og hagsmunamálum þeirra.
Vænti hann góðrar samvinnu þessara tveggja
sambanda og óskaði fundinum og Stéttarsam-
bandi bænda allrar velgengni.
Að þessu loknu hófust almennar umræður.
7. Framhaldsumræður um skýrslu formanns.
Hafsteinn Pétursson talaði um kaup bóndans
og verkamannsins og Guðjón Hallgrímsson drap
á ýmis atriði. Sagði hann að Alþýðusambandið
ætti að beita sér fyrir gerðardómi um kaup-
gjaldsmál. Hann ræddi um hve bóndinn þyrfti
að vinna langan tíma fyrir tekjum sínum; með
tilliti til vinnutíma væri „kaup“ hans of lítið.
Hann gat þess, að bændur í Húnavatnssýslu
hefði vantað 45 aura til að fá það verð, sem
þeir áttu að fá fyrir mjólk og enn þyrfti að auka
verðmiðlun. Erlendur Árnason sagði, að ekkert
væri eins illa borgað og vinnan við landbúnað-
arstörf. í verðlagsgrundvellinum væru kostn-
aðarliðirnir of lágir. Ólafur Bjamason ræddi
m. a. um hækkun á verði fóðurbætis vegna að-
gerða ríkisvaldsins og hve það kæmi illa við
bændur. Garðar Halldórsson gaf upplýsingar
um framleiðslumagn bænda í Öngulstaða-
hreppi í framhaldi af skýrslu sinni um kostnað
þeirra og Bjarni Bjarnason kvað ekki að sak-
ast um hátt kaup verkamanna eða stuttan
vinnudag, en vinnuafköst væru of lítil.
Þegar hér var komið gerði fundarstjóri,
Jón Sigurðsson, hlé á umræðum til að flytja
fundarmönnum þá sorgarfregn, að einn af
gestum fundarins hefði andazt skyndilega í
herbergi sínu á fundarstaðnum. Það var
Jón Guðmann, bóndi á Skarði við Akureyri,
landskunnur atorkumaður og myndarbóndi
og mikill áhugamaður um velgengni ís-
lenzkrar bændastéttar. Fundarstjóri minnt-
ist Jóns Guðmanns með nokkrum orðum,
en fundarmenn risu úr sætum í virðingar-
skyni við hinn nýlátna merkismann.
Umræður hófust síðan að nýju. Formaður
sambandsins, Sverrir Gíslason, ræddi þá nokk-
ur atriði, sem fram höfðu komið á fundinum.
Benti hann m. a. á, að kostnaðarliðir vísitölu-
búsins væru fundnir samkvæmt framtölum
bænda víðsvegar um land allt.
Síðan urðu miklar umræður og féllu enn á
víð og dreif. Þessir tóku til máls: Gunnar Guð-
bjartsson, Gísli Brynjólfsson, Benedikt H. Lín-
dal, Steinþór Þórðarson, Jónas Pétursson,
Guðm. Ingi Kristjánsson, Hafsteinn Péturs-
son, Ingvar Guðjónsson, Helgi Símonarson, Jón
Gauti Pétursson, Sigurður Haukdal, Eggert
Ólafsson, Einar ólafsson, Þórólfur Guðjónsson,
Sigurður Elíasson, Gunnar Ólafsson. Höfðu þá
25 menn tekið þátt í umræðunum.
Auk þess sem ma, gir ræðumenn töluðu um
verðlagsgrundvöllinn og einstök atriði hans,
ræddu ýmsir þeirra þau vandræði og erfiðleika,
sem bændur í ýmsum héruðum norðanlands og
austan ættu nú í, sökum langvarandi óþurrka