Freyr

Árgangur

Freyr - 01.10.1958, Blaðsíða 20

Freyr - 01.10.1958, Blaðsíða 20
Frá búvéladeild búnaðarsýningarinnar. Ljósm. G. Rúnar. EINAR ÞORSTEINSSON: Landbúnaðarsýningin á Selfossi 1958 Laugardaginn 16. ágúst var opnuð á Sel- fossi landbúnaðarsýning. Er hún sú fyrsta í sinni röð austan fjalls, en önnur í röðinni slíkra sýninga hér á landi, en eins og kunn- ugt er var landbúnaðarsýning í Reykjavík 1947. Landbúnaðarsýningin á Selfossi var hald- in af Búnaðarsambandi Suðurlands og í til- efni af 50 ára afmæli þess. Þessara merku tímamóta í félagsmálasögu búnaðarfélags- skaparins á Suðurlandi skyldi minnzt eftir- minnilega. Sunnlenzkir bændur töldu að ekkert minna en stór og voldug landbún- aðarsýning kæmi til greina. Sýningarmálið var til umræðu á stjórnar- fundi í Búnaðarsambandinu á síðastliðnum vetri. Voru þá skipaðir þrír menn í nefnd, þeir Sigurgrímur Jónsson bóndi í Holti, Kristinn Jónsson ráðunautur og Einar Þor- steinsson ráðunautur, og áttu þeir að kanna möguleika á að halda Landbúnaðarsýningu á Selfossi þá um sumarið. Nefndin skilaði áliti á öðrum stjórnarfundi þann 15. apríl. Taldi nefndin hægt að halda landbúnað- arsýningu í húsi Sláturfélags Suðurlands í Fossnesi vestan Ölfusár. Búnaðarsam- bandsstj órnin skipaði í sýningarnefnd þá ráðunauta sambandsins Kristin Jónsson, Hjalta Gestsson, og Einar Þorsteinsson. Sýningarnefndin hóf þegar störf við ýmsan undirbúning, verulegur skriður komst þó ekki á undirbúning sýningarinnar fyrr en um miðjan maímánuð vegna ýmissa anna við önnur störf. Sýningin undirbúin. Eftir þann tíma var unnið að sýningar- málinu af miklu kappi, því slík sýning sem þessi þarf mikinn undirbúning, einkum þegar stuðzt er við húsakost og aðstöðu

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.