Freyr

Árgangur

Freyr - 01.10.1958, Blaðsíða 25

Freyr - 01.10.1958, Blaðsíða 25
FREYR 321 gekk hún með kálfi. Þessi gripur er, sem kunnugt er, blendingur milli íslenzka kúa- kynsins og Galloway kynsins enska. Tvær hryssur voru hér og tveir hæst verðlaunuðu stóðhestarnir í landinu, þeir Hreinn frá Þverá og Silfurtoppur frá Reykjadal. Ein gylta með grísum var sýnd og var hún mik- ið skoðuð, m. a. af því að svínarækt er fremur sjaldgæf hér á landi. Samband eggjaframleiðenda stóð fyrir sýningu alifugla. Einar Tönsberg var for- stöðumaður fyrir alifuglasýningunni. Voru sýnd nokkur kyn af hænsnum og öndum, æðarfugl, kalkúnar og gæsir. Einnig voru þarna ýmsar upplýsingar um fóðrun og meðferð fugla. Þarna voru sýnd tæki til að kyngreina hænuunga og ýmis tæki í sam- bandi við alifuglarækt. Ég fer heldur fljótt yfir sögu í búfjár- deildinni, því ég býst við að um hana verði ýtarlegar skrifað síðar. Hún var annars mjög merkileg og sýnir glöggt miklar fram- farir í búfjárræktinni ----o---- Landbúnaðarsýningin á Selfossi stóð í 6 daga. Hún var auglýst fyrst í 5 daga, en var framlengd um einn dag vegna mikillar aðsóknar. Sýninguna sáu um 17000 manns. Aðal gagnrýnin, sem við, sem að henni stóð- um, höfum fengið, er að við höfðum hana ekki lengur opna. Ég hef hér að framan stiklað á stóru og farið fljótt yfir sögu. Um sýninguna mætti skrifa langt mál, en ég hef reynt að mæta óskum Freys í þeim efnum. Landbúnaðar- sýningin á Selfossi er stór viðburður í ís- lenzka landbúnaðinum. Hún er nýr liður í búnaði okkar, liður sem þarf að vaxa. Eng- inn atvinnuvegur getur nú á tímum látið undir höfuð leggjast að kynna sig og vekja á sér athygli þjóðarinnar, og kynna hvern skerf hann leggur í þjóðarbúið. Þessu hefur landbúnaður okkar að miklu leyti gleymt fram til þessa. Erlendis eru landbúnaðar- sýningar árlegur viðburður — fastur liður í kynningarstarfi landbúnaðarins. Ég vil að lokum óska þess, að í kjölfar Landbún- aðarsýningarinnar á Selfossi 1958 fylgi Frá sýningu Sölufélags garðyrkjumanna. margar aðrar víðs vegar um landið til upp- byggingar og eflingar landbúnaði vorum. Ráðunautanámskeið Að forfallalausu mun Búnaðarfélag ís- lands efna til námskeiðs — og funda — fyrir héraðsráðunauta og trúnaðarmenn, vikuna 24.-29. nóvember n.k. Dagskrá fyrir fundina hefur ekki verið samin né röð erinda ákveðin, en áætlað er að fyrirkomulag verði svipað og um undan- farin ár. Gert er ráð fyrir að veita nokkra aðstoö vegna ferðakostnaðar. Tilkynningar um þátttöku þurfa að hafa borizt fyrir 1. nóvember. Ennfremur er til þess mælzt, að ef ráðu- nautar hafa erindi eða efni til framsögu á námskeiðinu láti þeir vita um það til Bún- aðarfélags íslands fyrir 1. nóvember. Búnaðarfélag íslands. f

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.