Freyr

Árgangur

Freyr - 01.10.1958, Blaðsíða 43

Freyr - 01.10.1958, Blaðsíða 43
FREYR 339 um í stíur, er rúmi eigi yfir 12 kindur. Dyra- umbúnaður skal vera traustur og öruggur. Þegar um langan flutning er að ræða (yfir 50 km), skal flutningspallur hólfaður sund- ur í miðju að endilöngu, svo að engin stía nái yfir þveran flutningspall. Flutningspall eða stiur skal strá hæfilega miklum sandi eða heyi til þess að draga úr hálku. Leitazt skal við að flytja fé á meðan dagsbirtu nýtur. Verði því ekki við komið, skal hafa lj ós á bifreiðarpalli, svo að vel sjáist um allan pallinn meðan á flutningi stendur. Til þess að forðast hnjask, mar og meiðsli skal búa svo um, að unnt sé að reka búfé á flutningspall og af honum aftur. 6. gr. Hunda, ketti, grísi og fugla skal fiytja í kössum svo rúmum, að dýrin geti staðið og legið í þeim. Ein hlið kassans eða lok skal gert úr neti eða rimlum til þess að tryggja næga loftrás. Ef flutningur tekur lengri tíma en 12 klukkustundir, skal sjá dýrunum fyrir nægu fóðri og vatni til drykkjar. Fugla má ekki flytja bundna, hefta eða í pokum. 7. gr. Með flugvélum má einungis flytja dýr, sem eru fullkomlega heilbrigð. Dýr, sem komin eru að burði, má ekki flytja með flugvélum. Vanda skal umbúnað sem bezt svo að engin hætta sé á því, að dýrin losni meðan á flugferð stendur. Svo skal um búa, að hægt sé að fóðra dýrin án þess að taka þau úr stíum eða búr- um, þar sem þau eru geymd. Búr og stíur skulu vera svo rúmgóðar, að dýrin geti stað- ið og lagzt í þeim eftir vild. Ef fóðra þarf dýr meðan á flutningi stendur, skal eigandi sjá um, að þeim fylgi hentugt og gott fóður, ásamt leiðbeining- um um, hvernig fóðrun skuli háttað. Sé flogið í mikilli hæð, skal geyma dýr i þeim hluta flugvélarinnar, þar sem er hæfi- legur hiti og loftþrýstingur. 8. gr. Um mál, er varða brot á reglugerð þessari og refsingar fyrir þau, fer sam- kvæmt 21. gr. laga um dýravernd nr. 21, 13. apríl 1957. 9. gr. Reglugerð þessi er sett samkvæmt lögum nr. 21, 13. apríl 1957 og öðlast þegar gildi. í menntamálaráðuneytinu, 6. sept. 1958. F. h. r. Birgir Thorlacius. Brúsapaliurinn á myndinni er gott dcemi um það hvernig brúsa- pallar eiga að vera úr garði gerðir. Hann er vand- aður, sterkur og snotur og endist í mörg ár. Þó mcetti segja að heppilegra vceri að haja á honum skýli fyrir brúsa, sem skýldi þeim jyrir sólskini og úrfelli. Gott er líka að haja póstkassa á pallinum, því oftast er pósturinn sendur með mjólkurbílun- um. Ljósm. FREYR

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.