Freyr - 01.10.1958, Page 43
FREYR
339
um í stíur, er rúmi eigi yfir 12 kindur. Dyra-
umbúnaður skal vera traustur og öruggur.
Þegar um langan flutning er að ræða (yfir
50 km), skal flutningspallur hólfaður sund-
ur í miðju að endilöngu, svo að engin stía
nái yfir þveran flutningspall. Flutningspall
eða stiur skal strá hæfilega miklum sandi
eða heyi til þess að draga úr hálku.
Leitazt skal við að flytja fé á meðan
dagsbirtu nýtur. Verði því ekki við komið,
skal hafa lj ós á bifreiðarpalli, svo að vel
sjáist um allan pallinn meðan á flutningi
stendur.
Til þess að forðast hnjask, mar og meiðsli
skal búa svo um, að unnt sé að reka búfé
á flutningspall og af honum aftur.
6. gr. Hunda, ketti, grísi og fugla skal
fiytja í kössum svo rúmum, að dýrin geti
staðið og legið í þeim. Ein hlið kassans eða
lok skal gert úr neti eða rimlum til þess að
tryggja næga loftrás.
Ef flutningur tekur lengri tíma en 12
klukkustundir, skal sjá dýrunum fyrir nægu
fóðri og vatni til drykkjar. Fugla má ekki
flytja bundna, hefta eða í pokum.
7. gr. Með flugvélum má einungis flytja
dýr, sem eru fullkomlega heilbrigð. Dýr, sem
komin eru að burði, má ekki flytja með
flugvélum.
Vanda skal umbúnað sem bezt svo að
engin hætta sé á því, að dýrin losni meðan
á flugferð stendur.
Svo skal um búa, að hægt sé að fóðra
dýrin án þess að taka þau úr stíum eða búr-
um, þar sem þau eru geymd. Búr og stíur
skulu vera svo rúmgóðar, að dýrin geti stað-
ið og lagzt í þeim eftir vild.
Ef fóðra þarf dýr meðan á flutningi
stendur, skal eigandi sjá um, að þeim fylgi
hentugt og gott fóður, ásamt leiðbeining-
um um, hvernig fóðrun skuli háttað.
Sé flogið í mikilli hæð, skal geyma dýr i
þeim hluta flugvélarinnar, þar sem er hæfi-
legur hiti og loftþrýstingur.
8. gr. Um mál, er varða brot á reglugerð
þessari og refsingar fyrir þau, fer sam-
kvæmt 21. gr. laga um dýravernd nr. 21, 13.
apríl 1957.
9. gr. Reglugerð þessi er sett samkvæmt
lögum nr. 21, 13. apríl 1957 og öðlast þegar
gildi.
í menntamálaráðuneytinu, 6. sept. 1958.
F. h. r.
Birgir Thorlacius.
Brúsapaliurinn
á myndinni er gott dcemi um það hvernig brúsa-
pallar eiga að vera úr garði gerðir. Hann er vand-
aður, sterkur og snotur og endist í mörg ár. Þó
mcetti segja að heppilegra vceri að haja á honum
skýli fyrir brúsa, sem skýldi þeim jyrir sólskini
og úrfelli.
Gott er líka að haja póstkassa á pallinum, því
oftast er pósturinn sendur með mjólkurbílun-
um. Ljósm. FREYR