Freyr - 01.10.1958, Qupperneq 11
FREYR
307
í lélegu grasári eftir mjög kalt og erfitt vor.
Var rætt um nauðsyn á aðstoð við þessa bænd-
ur og úrræði í því sambandi til hjálpar í ár og
öryggis í framtíðinni. í því sambandi bentu
Gunnar Guðbjartsson og Guðmundur Ingi á
nauðsyn aukinnar votheysverkunar og Helgi
Símonarson ræddi gildi súgþurrkunar.
Gísli Brynjólfsson sýndi fram á, hvílík fjar-
stæða væri að íslendingar flyttu inn mikið af
kartöflum. Þeir ættu að rækta nóg fyrir sig, en
niðurgreiðslan á verði þeirra hefði óheppileg
áhrif á framleiðsluna. Jónas Pétursson birti
niðurstöður búreikninga sauðfjárbúsins á
Skriðukiaustri.
Einar Ólafsson vakti athygli á því, að innan
skamms myndi þurfa að flytja út helming af
sauðfjárafurðum landsmanna. Ennfremur
sýndi hann fram á, að þrátt fyrir verðhækkun
á fóðurbæti væri bændum hagstæðara að gefa
hann nú en árið 1952 miðað við mjólkurverð.
Sigurður Elíasson ræddi þörf þess að ívilna
bændum, sem búið hefðu við sprettuleysi í ár,
t. d. með verðlækkun fóðurbætis, hvatti til að
gefa sauðfé síldarmjöl, einkum með beit, og
benti á ýmis atriði í sambandi við afurðasölu
og markaðsöflun.
8. Nefndakosningar.
Fundarstjóri lagði til að kosnar yrðu 4 nefnd-
ir eftir venju. Hann lýsti því, að fram væri
komin tillaga frá Benedikt Kristjánssyni um
að kjósa sérstaka nefnd vegna óþurrkanna á
Norður- og Austurlandi og úrræða í því efni,
en stjórn sambandsins lagði til, að allsherjar-
nefnd fjallaði um það mál og yrðu nefndar-
menn valdir með tilliti til þess og fleiri en
venja væri. Tók þá Benedikt aftur tillögu sína.
Þá fór fram kosning í nefndirnar.
Framleiðslunef nd:
Sigurður S. Haukdal, Garðar Halldórsson,
Kristján Benediktsson, Össur Guðbj artsson,
Einar Halldórsson, Stefán Björnsson, Þórir
Steinþórsson, Sigurður Elíasson, Sigurgrímur
Jónsson, Hafsteinn Pétursson.
Verðlagsnefnd:
Jóhannes Davíðsson, Sigurður Snorrason,
Karl Magnússon, Guðjón Jónsson, Búrfelli, Er-
landur Magnússon, Steinþór Þórðarson, Jón
Jónsson, Erlendur Árnason, Ingvar Guðjóns-
son, Vilhjálmur Hjálmarsson, Einar Ólafsson,
Ólafur Bjarnason.
Fjárhags- og reikninganefnd:
Benedikt Líndal, Þrándur Indriðason, Þór-
ólfur Guðjónsson, Sæmundur Guðjónsson,
Eyjólfur Sigurðsson, Grímur Arnórsson, Ágúst
Hálfdánarson, Guðjón Hallgrímsson.
Allsher jarnefnd:
Sveinn Einarsson, Bjarni Halldórsson, Gunn-
ar Guðbjartsson, Helgi Símonarson, Guðmund-
ur Magnússon, Ásgeir Bjarnason, Eggert Ólafs-
son, Guðjón Jónsson, Dölum, Gunnar Ólafsson,
Jónas Pétursson, Páll Metúsalemsson, Jón
Gauti Pétursson, Benedikt Grímsson, Bjarni
Bjarnason, Benedikt Kristjánsson.
9. Erindi til fundarins.
Sæmundur Friðriksson las upp tillögur, sem
fundinum höfðu borizt. Voru þar á meðal á-
lyktanir frá tveimur kjörmannafundum, sem
haldnir voru í ágúst í Skagafjarðar- og Eyja-
fjarðarsýslum, en aðrar ályktanir einkum frá
fundum búnaðarsambanda bændafélaga,
kaupfélaga og einstakra búnaðarfélaga. Flest-
ar voru þessar ályktanir um verðlagsgrundvöll
og ýmislegt í því sambandi, en nokkrar voru
um óþurrkana í sumar og aðstoð við bændur
vegna þeirra. Bændafélög Þingeyinga og Fljóts-
dalshéraðs sendu ályktun um lífeyrissjóð fyrir
bændur, Kaupfélag Héraðsbúa m. a. um mark-
aðsleit fyrir dilkakjöt, Kaupfélag Austur-
Skaftfellinga um mat og efnagreiningu á inn-
lendum fóðurbæti. Einstök búnaðarfélög sendu
ályktanir um að hætta bæri niðurgreiðslu á
smjörlíki, en greiða niður allt smjör, og um
lækkun verðs á fóðurbæti og áburði.
Samband eggjaframleiðenda sendi erindi um
söludreifingarstöð.
Stjórn Stéttarsambandsins lagði fram til-
lögu um hækkun á Búnaðarmálasjóðsgjaldi og
rynni hækkunin til húsbyggingar sambandsins
og Búnaðarfélags íslands.
Jónas Pétursson o. fl. lögðu fram tillögu um
að fela stjórn Stéttarsambandsins að undir-
búa lagabreytingu um kosningu stjórnarinnar,
þannig að hún verði ekki kosin öll í einu og
kjörtímabil stjórnarmanna lengt.