Freyr

Årgang

Freyr - 01.10.1958, Side 13

Freyr - 01.10.1958, Side 13
FRE YR 309 skorun til Atvinnudeildar Háskóians, að hún reyni að finna framkvæmanlega leið til þess að meta síld- ar- og karfamjöl, sem selt er innanlands til fóður- bætis, eftir raunverulegu fóðurgildi þess og beita sér fyrir breytingu á gildandi lögum um þetta efni, svo sem þurfa þykir. Ennfremur skorar fundurinn á Framleiðsluráðið að vinna að auknu eftirliti með fóðurblöndun, þannig að þær fullnægi jafnan þeim kröfum, er gera verður til fyrsta flokks fóðurvöru." Samþykkt með samhljóða atkvæðum. 2. „Þar sem vitað er, að steinefnainnihald heyfóðurs er mjög misjafnt eftir jarðvegi, landshlutum o. fl„ skorar fundurinn á innflytjendur fóðurvara að hafa jafnan á boðstólum fleiri gerðir af fóðursaltblönd- um. Efnahlutföll fóðursaltanna verði ákveðin x samráði við yfirdýralækni ásamt forstöðumönnum Atvinnudeildar í jarðvegsrannsóknum og fóður- fræði. Þá bendir fundurinn á, að vegna langvarandi þurrka í vor og sumar á Suður- og Suðvesturlandi, er sýnt að steinefnaþörf verður meiri en í meðal- ári. Er því áríðandi að nægilegt magn fóðursalta verði flutt til landsins fyrir haustnætur." Samþykkt samhljóða. 3. „Fundurinn skorar á Framleiðsluráð og stjórn S.Í.S. að vinna ötullega að öflun nýrra markaða fyrii sauðfjárafurðir erlendis. Vill fundurinn einkum mæla með öflugri auglýsingastarfsemi á þessu sviði.“ Samþykkt samhljóða. Ekki urðu umræður um þessar tillögur nema þá síðustu. í sambandi við hana skýrði Sveinn Tryggvason frá rækilegum tilraunum og að- gerðum Framleiðsluráðs og Sambands íslenzkra samvinnufélaga í því skyni að afla markaða fyrir sauðfjárafurðir. Jafnframt brýndi hann fyrir mönnum að vöruvöndun væri bezta aug- lýsing og markaðstrygging hverrar vöru. Þá talaði Einar Halldórsson fyrir næstu til- lögu og gerði grein fyrir ástandi eggjasölumála og nauðsyn þess að skiþuleggja hana. En til- laga nefndarinnar var svo: 4. „Aðalfundur Stéttarsambands bænda 1958 skorar á Framleiðsluráð að viðurkenna Samband eggja- framleiðenda, samkvæmt lögum um breytingu á lögum um Framleiðsluráð o. fl. frá 23. marz 1956, sem sölufélag eggjafiamleiðenda." Samþykkt samhljóða. Garðar Halldórsson talaði fyrir öðrum tillög- um nefndarinnar og lagði þær fram. Þær voru þessar: „Þar sem vitað er að hin mikla niðurgreiðsla á smjörlíki, sem nú er, gerir mör svo til verðlausan og xlregur úr smjörneyzlu í landinu, skorar aðal- fundur Stéttai'sambands bænda á hæstvirta rikis- stjórn að láta hætta niðurgreiðslu á smjörlíki, en greiða í þess stað niður allt smjör á innlendum markaði.“ Formaður Stéttarsambandsins gerði grein fyrir ítrekuðum viðræðum Framleiðsluráðs við stjórnarvöldin um þessi efni, en þar fengjust engar undirtektir vegna áhrifa þeirra, sem nið- urgreiðsla smjörlíkis hefði á vísitöluna. Hins vegar hefði niðurgreiddur smjörskammtur fengizt aukinn. Tillaga þessi, þótt samþykkt yrði, mundi því fyrst og fremst verða að skoð- ast sem mótmæli gegn fyrirkomulaginu, en vonlaust mætti kalla um breytingu að sinni. Tillagan var síðan samþykkt með samhljóða atkvæðum. 6. „Aðalfundur Stéttarsambands bænda 1958 óskar eftir því, að Framleiðsluráð taki til endurskoðun- ar núgildandi reglur um heimsendingu á mjólk- uivörum, þannig að ekki verði framvegis sendar heim til framleiðenda mjólkurvörur fram yfir eðli- lega neyzluþörf á heimilum þeirra. Bendir fundurinn á eftirtalda leið til úrbóta: Að mjólkurbúunum verði heimilað að jafna heimsendinguna eftir óskum framleiðenda, þar sem mjólkurmagn og fólk í heimili er mjög mis- jafnt milli árstíma." í fyrstu var ein málsgrein enn í tillögunni, en framleiðslunefnd felldi hana niður áður en umræðum lauk Nokkrar umræður urðu um tillöguna og fyr- irkomulag heimsendinga. Þessir tóku til máls: Sverrir Gíslason, Garðar Halldórsson, Einar Ólafsson, Sigurður Elíasson, Guðm. Ingi Kristjánsson, Helgi Símonarson og Sveinn Tryggvason. Síðan var tillagan samþykkt með 14 atkv. gegn 9.

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.