Freyr - 01.10.1958, Qupperneq 15
FREYR
311
um og skorar því á rikisvaldið að tryggja Rækt-
unarsjóði fé til áframhaldandi lánastarfsemi, eftir
þvi sem heilbrigt getur talizt og verða mætti m. a.
til að koma í veg fyrir að byggilegar sveitir fari í
eyði."
Samþykkt með samhljóða atkvæðum.
7. „Aðalfundur Stéttarsambands bænda, haldinn i
Bifröst dagana 3. og 4. sept. 1958, ályktar að fela
stjórn Stéttarsambandsins að vinna að því, að lög-
um um stofnun Búnaðarmálasjóðs verði breytt
þannig, að sett verði inn í lögin ákvæði til bráða-
birgða svohljóðandi:
„Á árunum 1958—1961 að báðum meðtöldum
skal greiða i/2% viðbótargjald af söluvörum land-
búnaðarins sem um ræðir í 2. gr. og rennur það
til Búnaðarfélags Islands og Stéttarsambands
bænda til húsbyggingar félaganna við Hagatorg í
Reykjavfk í sömu hlutföllum og eignarhluti þeirra
er í byggingunni.
Um álagningu og innheimtu gjaldsins gilda sömu
reglur og um Búnaðarmálasjóðsgjaldið, sem nú
er."
Þessa tillögu, sem stjórn Stéttarsambandsins
hafði lagt fyrir fundinn, tók nefndin upp ó-
breytta og mælti Gunnar Guðbjartsson fyrir
henni. Um tillöguna urðu miklar umræður.
Þessir tóku til máls:
Sigurgrímur Jónsson spurðist fyrir um, hvort
hægt mundi verða að ná gjaldi fyrir árið 1958.
Sveinn Tryggvason kvað svo vera, þar sem
gjalddagi Búnaðarmálasjóðsgjalds væri ekki
fyrr en 1. apríl næsta árs. Jón Jónsson á Hofi
andmælti tillögunni og vildi ekki að svo komnu
samþykkja hækkun Búnaðarmálasjóðsgjalds,
sem rynni til „opinberrar stofnunar" eins og
hann taldi Búnaðarfélag íslands vera. Gunn-
ar Guðbjartsson rakti þá nauðsyn þess að fá
fjármagn til húsbyggingarinnar og samþykkja
tillöguna. Benedikt H. Líndal andmælti þá til-
lögunni, en Einar Ólafsson, Bjarni Bjarnason
og Jóhannes Davíðsson mæltu með samþykkt
hennar. Guðjón Hallgrímsson var tillögunni
andvígur, en Sæmundur Friðriksson lýsti þörf-
inni á húsbyggingunni og að halda áfram með
hafið verk. Enn töluðu þessir: Benedikt H.
Líndal, Þórólfur Guðjónsson og Jón Jónsson.
Þá var gefið hlé til kvöldverðar, en áður en
fundarstjóri sleit fundi, bar hann undir at-
kvæði þá tillögu, að ræðutími fundarmanna
verði hér eftir takmarkaður við 5 mínútur,
nema um framsöguræður sé að ræða.
Var þetta samþykkt með samhljóða atkv.
Að kvöldverði loknum var umræðum haldið
áfram. Gunnar Guðbjartsson mælti enn með
tillögunni. Þá talaði formaður Búnaðarfélags
íslands, Þorsteinn Sigurðsson, um sjónarmið
Búnaðarfélagsins í þessum efnum og þörf þess
fyrir húsið, og ennfremur um stöðu B. í. í þjóð-
félaginu, en hann kvaðst alla tíð hafa talið
það félag bændanna í landinu. Enn töluðu þess-
ir: Ásgeir Bjarnason, Gunnar Ólafsson, Ágúst
Hálfdánarson, Gísli Brynjólfsson, Guðm. Ingi
Kristjánsson, Þórir Steinþórsson og Benedikt
H. Líndal. Undir umræðunum kom fram þessi
dagskiártillaga:
„Þar sem nú þegar hafa komið fram mótmæli
margra búnaðarfélaga og bændafunda um hækk-
un Búnaðarmálasjóðsgjaldsim, sér fundurinn sér
ekki fært að mæla með hækkun þess, enda ekki
líkur til að Stéttarsambandið, með þeim tekjum,
sem því nú þegar eru tryggðar, skorti fé til þess
að standa straum af nauðsynlegum byggingar-
kostnaði, er fullnægi húsnæðisþörf sambandsins
eftirleiðis.
Hins vegar lítur fundurinn svo á, að Búnaðar-
félag Islands geti treyst því nú sem fyrr, að því
verði af hálfu hins opinbera séð fyrir nauðsynlegu
fjármagni til alhliða starfsemi sinnar eins og verið
hefur. Þá er og ekki viðeigandi að Stéttarsam-
bandsfundurinn skapi slíkt fordæmi að velta á
herðar bænda þeim kostnaði, er rfkissjóði ber að
standa straum af.
Samkvæmt framansögðu samþykkir fundurinn að
vísa máli þessu frá og tekur því fyrir næsta mál
á dagskrá.
Benedikt H. Líndal. Benedikt Kristjánsson.
Jón Jónsson. Guðjón Hallgrímsson.
Einnig kom fram þessi tillaga og talaði séra
Gísli Brynjólfsson fyrir henni:
„Aðalfundur Stéttarsambands bænda 1958 mælir
eindregið með því við búnaðarfélögin í landinu,
að þau samþykki allt að helmingshækkun á bún-
aðarmálasjóðsgjaldinu næstu 4 ár, vegna húsbygg-
ingar Stéttarsambandsins, ef þörf krefur."
Gísli Brynjólfsson. Þórólfur Guðjónsson.